Æskan - 01.08.1932, Blaðsíða 5
ÆSKAN
69
Þeir nota stórfenglegar lyftivélar, er lyfta frá jörðu
hverju sem vera skal, með rafmagnskrafti. »Það
er laglega af sér vikið«, segjum vér. En hvað má
þá segja um byggingarmeistara, er gerðu nákvæm-
lega hið sama fyrir árþúsundum síðan? Og án þess
að þekkja eða nota þau hjálpartæki, er nú tíðkast.
Þú kannast sjálfsagt við pyramidana, sem
Egyptar byggðu, nokkrum þúsundum ára fyrir
fæðingu Krists. En þú hefir ef til vill ekki heyrt,
að »hangandi garðarnir« í Babýlon voru svo háir,
að múrar þeir, er enn standa eftir, eru 102 metrar
á hæð og 22 metrar á breidd. Og þetta eru þó að
eins hálf hrundar rústir.
Kínverska múrinn veizt þú eitthvað um. Hann
var reistur í kringum 300 fyrir Krist, i stjórnartíð
keisarans Che Huang Te, til þess að vernda ríkið
gegn villtum nágrannaþjóðflokkum. Hann er hvergi
lægri en 5 metrar, en 10 metrar er hann þar, sem
hann er einna hæstur. Hann er svo breiður, að
sex vögnum má aka samhliða uppi á honum. Og
hann er að minnsta kosti 3000 kílómetrar á lengd,
eða 300 mílur. Þetta er líka stærsti varnargarður
veraldarinnar.
Stærstur og fegurstur er kinverski veggurinn hjá
Peking, hinni fornu höfuðborg Kínaveldis. Þar er
hann 12 metrar á hæð og 18 metrar á breidd. Og
upp frá þessum volduga steinvegg hefjast turn-
arnir 9, yfir hinum 9 borgarhliðum. Þeir eru 24
metrar á hæð, og hver út af fyrir sig mesta
furðuverk.
Rómverjarnir fornu lærðu myndhöggvaralist og
byggingarlist af Grikkjum. En þeir fundu einnig
sjálfir upp á að framkvæma stórvirki í byggingar-
list og verkfræði, sem minna mjög á byggingar
Forn-Egypta og Babýloníumanna. Júlíus Cæsar
lagði undir sig öll lönd umhverfis Miðjarðarhaf,
á Krists dögum. Og eftir hans daga byggðu Róm-
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOCK
Framh. fra bls. 67
öllum vonum. Milliröddin má heita góð. Fyrsta
kálfs kvfgur syngja hana, þessar, sem eru að kom-
ast í kúatölu. En lagið sjálft er ágætt, enda syngj-
um vér það, mjólkurkýrnar. — Þessi söngur er
kallaður samsöngur og heyrist vfða. Verður hann
að fara nokkurn veginn vel, því að söngdómarar
eru kröfuharðir og lýðurinn allur söngvinn. —
Syngið þér, kríurnar, í Nesi?
Kría: Já, á hverjum einasta degi. Vér syngjum
ástasöngva, tvísöngva og fjölsöngva. Einsöngvar
eru hjá oss fátíðir. En — tiðkast fleiri skemmtanir
meðal nautpeningsins?
Kýr: Ekki svo teljandi sé. Vér iðkum lítilsháttar
verjar varnargarða, kastala og vatnsleiðslur svo
hrikalegar, að þessar byggingar gnæfa enn i dag
sem risaverk.
Eg hefi séð mikið af þessum mannvirkjum
suður í Þýzkalandi. Þau finnast einnig á Englandi,
Frakklandi, Spáni og Portúgal. Þau eru einnig lil
í Norður-Afríku og Vestur-Asíu. Rómverjar lögðu
stundum vegi, sem minna á kínverska múrinn.
Eg sá frá lestinni hinn hrikalega Rómverja-veg:
»Via romana della Emélia«. Hann var lagður á
dögum Ágústusar keisara. Nútíma vegagerð er
barnaleikur bjá sliku. Alþekktar eru hinar róm-
versku vatnsleiðslur í Segovia á Spáni, og vatns-
leiðslurnar i Rómaborg. Þær voru byggðar, þegar
Claudius var keisari. Þær eru 60 kilómetrar, eða
6 mílur, á lengd. Þeir leiddu vatnið frá hálendi,
helzt úr tæru fjallavatni, niður í rennu, er hvildi
á sterkum múrbogum. Þessir múrar, allir í róm-
verskum hringbogastíl, liggja langar leiðir yfir fjöll
og dali, og eru stórkostlegt minnismerki um róm-
verska byggingarlist.
Mennirnir hafa byggt og grafið einnig í seinni
tíð. Þú hefir heyrt getið um Panama-skurðinn og
Suez-skurðinn. En veizt þú um Korintu-skurðinn?
Hann er stórvirki. Hann er 22 metrar á breidd,
og dýptin undir vatnsfletinum er 8 metrar; en þar
sem skurðurinn liggur i gegn um fjallgarð, eru
veggirnir til hvorrar handar sumstaðar 87 metra
háir. Þessi skurður er 8300 metra Iangur.
Vatnsleiðslur hafa menn einnig nú. Borgin Los
Angeles í Ameríku hefir 378 kílómetra langa
vatnsleiðslu. Og í einni borg í Ástralíu er vatns-
letðsla, sem er 564 kílómetrar á lengd. En nú á
dögum er vatnið ekki leitt á sama hátt og Róm-
verjar gerðu. Nú er það leitt i pípum, sem liggja
annaðhvort ofanjarðar eða niðri í jörðunni.
Pýtt úr norsku. M. J.
Dooooooooooœooooooooœoœooooooooooooooo
sund. Það er gott haglendi hérna í grenndinni, en
leiðin liggur yfir vog. Látum vér það ekki fyrir
brjósti brenna og leggjum í voginn. Lengi fáum
vér ekki að vera í þessu góða haglendi. Oss er
jafnan fylgt aftur heim. Þá eru hestar og hundar
í förinni. Er þá farið geyst. Állt það sund er
fremur óreglulegt. En heyrt hefi eg til þess tekið,
hve rólega vér kýrnar syndum og vel. Og áreiðan-
leg baula hefir tjáð mér, að almenningi þyki vér
tignarlegar á sundinu. Það kvað vera sagt, að vér
minnum á hvæsandi kugga og hámöstruð hafskip.
Kría: Fréttir segir þú mér, og hugði eg yður
ekki svo frægar né fjölhæfar. Eruð þér fleiri
iþróttum búnar?