Æskan - 01.04.1933, Blaðsíða 6
30
ÆSKAN
glöð yfir því, hve fagur hann var. 1 nótt hafði
hún áreiðanlega fengið að fara eitthvað með engl-
unum. Hún hafði einu sinni í húsleslri heyrt sögu
um það, að englarnir færu stundum með sálir
barnanna á nóttunni inn i æðri heima og sýndu
þeim þar margt fallegt. 1 sögunni var sérstaklega
talað um munaðarleysingja, sem alast upp í skugga-
hverfum stórborganna og eiga hvergi höfði sínu
að að halla, eiga ekkert heimili, en sofa á nóttunni
í ýmsum skúmaskotum, undir tunnum eða vögn-
um, innan um allskonar óhreinindi. En á meðan
líkamirnir liggja sofandi, koma góðar verur og
taka sálirnar með sér til æðri heima og kenna
þeim og hjálpa. — Sigga hafði hugsað svo mikið
um þessa frásögn, og nú var hún þess fullviss, að
í nótt hafði hún sjálf fengið að koma inn í ein-
hverja fagra, nýja veröld.
»Gerðu svo vel, Sigga mín«. Það var Gunna
vinnukona, sem kom með morgundrykkinn hennar.
»Heyrðu«, hvíslaði hún, »þú fær nú samt að
fara til kirkjunnar, skal eg segja þér. Húsbóndinn
mælti eftir þér. Eg heyrði það allt saman. Hann
sagði, að það væri nógu hart að vera foreldralaus,
þó að þeir, sem væru svo miklir einstæðingar, væru
ekki settir hjá, en fengju að njóta þeirrar gleði, sem
hægt væri að veita þeim. Já, hann kann nú að koma
fyrir sig orði, húsbóndinn. Hann sagði, að Svenni
og Gudda skyldu ekki fara eitt fet, ef þú færir
ekki líka. Svo var eg send niður i Hjáleigu, og nú
ætlar Lauga gamla í Hjáleigunni að vera hiá þeirri
gömlu í dag, svo að þú fáir að fara með okkur
til kirkjunnar. — Vertu nú kát, og flýttu þér á fætur«.
Sigga drakk morgundrykkinn sinn þegjandi. Sið-
an hoppaði hún fram úr rúminu. Hún var svo
glöð, sem þeir einir geta orðið, sem hafa yfir fáu
að gleðjast, og eru ekki vanir þvi, að fá æfinlega
allar óskirsínar uppfylltar. Hún raulaði fyrir munni
sér páskaversið sitt:
»í garði sat engill við grafarstein,
par greru liljur á foldu.
Hann benti með pálma grænni grein,
hvar Guðsson reis upp úr moldu«.
O
e
•
o
tteoeoooooioMiioioo
DÆGRADVÖL
Stafaliglar.
'O
o
c
o
o
o
Fyllið auðu
reitina bók-
stöfum, svo
að þeir, á-
samt stöfun-
um, sem
fyrir eru, og
standa eiga
óhreyfðir,
myndi: Borg
í Asíu, sveit
á íslandi, þjóð í Afríku, sveit á íslandi,
verzlunarstað á fslandi, nes á íslandi.
Krossinn í miðjum reitinum myndi,
sveit á íslandi.
Raðið pessum stöfum
niður í reitina pannig,
að þeir myndi fræga
sögustaði í ísafjarðar-
sýslu, Barðastranda-
sýslu, Rangárvallas.
og Mýrarsýslu.
H. Rögnvaldur B.
(13 ára).
Felunafnavísur.
Kvenmannanöfn.
A B D D
G G G H
I I 0 0
R R í U | Ö
G - - - - n, - - 1 - -, - e - - P------------ r,
- u - - - u -, - - r -, --------í - - r,
- - - b - - - g, - -1 -, - - ð - - - u -,
- - - - e - f, - -1 - -, S------------r--------r.
Karlmannanöfn.
p . .. d - -, - - - g -, - ó - - -, - v - • - n,
- - r - r, - - -1, - ó -, - o - - - i - -,
- í - - i, M - - n - - r - - r, - - e - - n,
-n-a-, — e - - i, - á - - - -, - t- --n,
Arnarungi.
Gátur.
Karlmannanöfn.
1. Nafn mitt hefir seggi sent
úr sáru jarðarkífi.
Eg hef gefið birtu og brennt,
bjargað margra lífi.
2. Sá í skógi hleypur hart
hnarreistur og lipur,
hann með fagurt höfuðskart
er höfðinglegur gripur.
Arnarungi.
Gömul gáta.
Eins hlutar nafn er með einkenn-
um þessum:
Galli í gullkeri, gott fyrir búsmala,
fylgsni fjalla, féhirzla blómi,
meðal mcstorða, mýking kóngsreiði.
Guör. Guðmundsd. (sendi).
Ráðningar
á dœgradvöl í febrúarblaðinu.
1. Mjallhvít.
2. Felunafnavísur.
Nafnorð:
Sómi, þytur, andi, afl,
ómur, fegurð, saga,
Rjómi, litur, gleði, gafl,
gómur, megurð, baga.
Gaukur.
Lýsingarorð:
Fagur, ljótur, stuttur, stór,
stinnur, léttur, þungur,
hagur, fljótur, magur, mjór,
merkur, réttur, ungur.
Arnarungi.
3. Gáta.
QooooooooooooooooooooooooooooooooO
OO0OO0OO0OO0OO0OO0OO0OO0OO
° ORÐSENDINGAR °
í jóiabókinui síðustu hét »Æskan«
þessum verðlaunum fyrir útvegun
nýrra kaupenda:
Fyrir 2 nýja kaupendur, 23. eða 24.
árg. blaðsins.
Fyrir 5 nýja kaupendur, vasablýant.
— 10 — — Sögur Æsk-
unnar, Otto og Karl eða Karen.
Fyrir 15, skauta, skiði eða lindarpenna.
— 20, kaffistell eða framant. bækur.
— 25, 12 manna kaffistell eða Con-
klins lindarpenna.
Aðalvinningur er vasaúr, fyrir flesta
nýja kaupendur á árinu.
I)avfð Copperíleld kemur undir næstu
mánaðamót. Drátturinn stafar af þvi
að pappir, sem pantaður var, kom
seinna en til stóð.
Vonum við, að áskrifendur fyrirgefi
dráttinn, er þeir vita um ástæöuna.
Ooooe*>iiaooioooo«MiðiMM*i<*v'0