Æskan

Årgang

Æskan - 01.06.1948, Side 6

Æskan - 01.06.1948, Side 6
ÆSKAN ^innshir íuenshátar með fá ana sina. símstöðvar og tilkynna hershöfðingjanum þetla. Komdu inn i bílinn, Matti.“ „Nei, pabbi, ég verð að fara heim aftur, svo að mamma verði ekici hrædd.“ „En heldurðu, að þér takist að smjúga fram hjá þýzku varðmönnunum ?“ „Ég ætti að geta það aftur eins og mér tókst það áðan,“ sagði Matti borginmannlega. Feðgarnir kvöddust í flýti. Liðsforinginn ók til baka sem liraðast, en Matti lagði af stað lieim til sín aftur, til þess að láta mömmu vita, að allt hefði gengið að óskum. En allt i einu var æpt fyrir framan hann á þýzku „Halt!“ („stanzaðu!“) Og Matti sá skammt frá sér þýzkan hermann, sem miðaði á liann byssu sinni. Hann tók viðbragð skauzt til liliðar og stakk sér inn í skógarþykknið. Það reið af skot. Iivellurinn var eins og þruma í næt- urkyrrðinni, og ein ungbjörkin í skóginum brotn- aði og seig brakandi og skrjáfandi til jarðar. Kúlan hafði brotið stofninn. Matti hentist i ofboði í krákustig á milli trjánna. Iivert skotið reið af á fætur öðru. Það var eins og skógurinn væri allt í einu orðinn morandi af Þjóð- verjum. Loksins fann liann fylgsni, sem hann vissi af. Þetta var þröngt jarðfall, alveg hulið skógarkjarri- Enginn gat séð það, sem ekki vissi af því. Hank hrölti inn í smuguna undir greinunum, alveg inn J hotn. Þar lagðist hann fyrir. Og nú fyrst fann hanú stingandi sársauka i vinstri handleggnum. Hann heyrði Þjóðverjana hlaupa rétt fram hjá- Og hann verkjaði meira og meira í handlegginn. hann þorði ekki að stynja eða liljóða af ótta við, a® þá myndu Þjóðverjarnir finna hann. Og allt í einJl sortnaði honum fyrir augum. Það leið yfir hann. Daginn eftir kom pabbi Matta með finnska heí' deild til Pahi, en þá voru Þjóðverjarnir farnir. Oé bærinn stóð í hjörtu báli. Þeir liöfðu kveikt í hoO' um, áður en þeir fóru. En engan af íbúunum hafðJ sakað, sem betur fór. Jafnvel lögregluþjónarni1' liöfðu sloppið heilir á húfi. Matti var hinn eini, sem var saknað. „Það var einhver skotinn úti í skóginum í gí®r' kvöldi,“ sagði mamma hans náföl. Nokkur hluti liðsveitarinnar lijálpaði hæjarbúun1 til að reyna að slökkva eldinn, en aðrir fóru að leit3 að Matta. Yiljo litli hróðir hans fór með þeim. Hann var líl{9 kunnugur skógarfylgsnunum og rataði beint á jar®' fallið, þar sem bróðir hans lá. Matti var fluttur J 58

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.