Æskan

Volume

Æskan - 01.06.1948, Page 14

Æskan - 01.06.1948, Page 14
ÆSKAN ^o^OoaocXXXX^OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOCXXDOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOoOopjo^ •3)0 o°« Ooo- o ' o o us Hversdags lcjóll. Betri kjóll. (J ruo an. ► [ þetta sinn fáið þiá þrjá sumar- klaeánaái á brúáuna, sfábuxur meá blússu og röndóttu vesti, sem feráa- búning. Þunnan, léttan betri kjól og hversdags kjól úr köflóttu, einlitu efni. ?&°°% VAIA Feráabúningur. /O«°o"o°o°000000000000000000cx300000000000000000000000000cxx300000000000000000000o'o00o» °0 l0°o o°„0 o o • „Þegiðu strákur, og skammastu þín fyrir að hafa svona blótsyrði eftir. Þú veizt, að mamma hafði and- styggð á því,“ sagði Andrés, gramur og hryggur. „Já, það var elcki furða, þó að hún hefði það,“ hætti Anna Lísa við. „Maður kallar hið illa yfir sig með því að hugsa um það og tala um það.“ „Já, það er Ijótt að blóta. Og látið ykkur ekki detta í hug, að ég hefði viljað vita telpurnar á slíkum bæ, og það þótt þær hefðu fengið kaffi og pönnukökur á hverjum einasta degi,“ sagði Andrés, og það var fullnaðarafgreiðsla á þessu máli. ^ En Maggi hafði tekið eftir því, að fjórir hestar voru á bænum, riffill liékk uppi á þili og húsbónd- inn hafði skeiðarhníf með útskornu skafti. Þetta henti á ríkidæmi, og hann var á því, að telpunum hefði getað liðið vel þarna. „Ja-á, en þú hefur nú elcki séð hnífinn, sem skóg- arvörðurinn gaf mér,“ greip Andrés fram í fyrir Magga og sýndi honum skeiðarhníf með gljáandi svörtu skafti og leðurskeiðum, ágætan hnif, bæði heittan og oddhvassan. „Nei, Andrés!“ Maggi stóð þarna eins og salt- stólpi og gapti af undrun. „Hann hlýtur að eiga að minnsta kosti þúsund krónur eða meira, úr því að liann tímir að gefa svona hníf. — Af hverju gaf hann þér hann?“ „Ég var að hjálpa Dóru að kljúfa spýtur í eldinn og hafði ekki annað til þess en gamla sjálfslceið- inginn minn. Ég veit ekki, hvort hún hefur sagt skógarverðinum frá þessu, en þegar ég fór inn til hans til þess að þakka fyrir og lcveðja, þá gaf hann mér hnífinn, og svo sagði hann, að röskur maður, sem kann að beita hnífnum sínum rétt og vel, kemst alltaf sómasamlega áfram í heiminum.“ „En hvað mér finnst þetta vel sagt,“ sagði Lena dreymandi. „Þetta ættir þú að muna.“ „Og frúin, sem er svo ákaflega dugleg að sauma og prjóna, hún gaf mér, skal ég segja ylckur, dálítið af fínu prjónagarni. Viljið þið sjá!“ Og Lena rétti svolitinn höggul fram undan sjal- luskunni. „Sko, rautt garn í rósir, grænt í blöð og brún í Ieggi.“ „En livar i ósköpunum ætlarðu að hafa þær rós- ir?“ spurði Anna Lísa, alveg jafnhissa og hin syst- kinin. Þau skoðuðu rækilega þessi auðæfi Lenu, og þar voru meðal annars bæði prjónar, heklunál og sloppunál. Og Lena sagði þeim, liróðug og íbyggin, að frúin hefði kennt sér að prjóna vettlinga. Og svo dró hún upp liálfprjónaðan, hvítan vettling og sýndi þeim, að rósirnar áttu að vera á liandarbakinu. 66

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.