Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1956, Side 2

Æskan - 01.04.1956, Side 2
ÆSKAN Breiðasta brosið. Riddarinn hleypur. Þátttakendur skipa sér í tvöfaldan hring. Þeir, sem eru í fremri hringn- um, eru „hestar“, en hinir riddarar. Riddararnir fara nú á bak hestum sin- um, en þegar merki er gefið, þá yfir- gefa þeir hestana og hlaupa einn hring í kringum alla „hestana" og aftur á bak hestum sínum. Sá, sem er síð- astur, er úr leik og „hestur“ hans lika. Þeir vinna, sem eftir eru. Siðan er hægt að skipta urn. Riddarar verða hestar, en hestar riddarar. Skrifa rétt nafn. Pappaspjald er lagt á borð og er þvi skipt í marga reiti. Á reitina eru lagðir ýmsir hlutir. Þátttakendum er leyft að horfa á borðið í eina mínútu. Síðan fara þeir i næsta herbergi og fá papp- írsörk, sem þeir eiga að teikna á jafn- marga reiti og voru á borðinu og skrifa i hvern reit nafnið á hlutnum, sem var í honum. Þorskkausar. Norskur sveitamaður átti einu sinni að hafa komið í kaupstað og seldi þar búsafurðir sínar. En nú vildi hann ENN þá cr veðrið ekki svo gott, að þið getið leikið ykkur úti, þegar þið eruð í afmælisboðum hjá vinum ykkar. En hérna sýnum við ykkur alveg nýjan leik, sem getur verið skemmtilegur í hóp félaganna. — Þið skulið einfaldlega fá ykkur málband og mæla, hver gestanna brosir breiðast! Hægt er að snúa þessu upp í keppni og verðlauna sigurvegarann. kaupa ýmislegt til búsins og leitaði víða fyrir sér um sitt af hverju í mesta flýti. I flýtinum fór hann eitt sinn dyravilt, lenti inn i skrifstofu í stað- inn fyrir verzlunarbúð. Þar inni sat skrifari. Sveitamaðurinn vildi ekki láta á neinu bera og spyr þvi: „Með hvað verzlið þið hér?“ Skrifarinn, er þótt- ist hafa orðið fyrir ónæði, var fljótur til svars og segir: „Með þorskhausa.“ „Jæja,“ varð sveitamanninum að orði. „Það er víst vara, sem gengur út. Hér er ekki sjáanlega nema einn eftir.“ drengurinn með skyggnishúfuna. Hér sjáum við Helga litla ofan frá. Hvað er hann að gera? Svör sendist til blaðsins fyrir 1. júní nœstkomandi. — Þrenn verðlaun, síðustu útgáfubœkur Æskunnar, verða veitt. Margret Ákadóttir, Akureyri, hefur sent blaðinuj þessa mynd. Hún er frá skemmtun barna á Akureyri og sýnir Grýlu fjölskyld- una. 38

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.