Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1956, Qupperneq 5

Æskan - 01.04.1956, Qupperneq 5
ÆSKAN Hrísa-Þorsteinn og Vormjöll. Eftir JOHAN FALKBERGET Hann stóð úli á túni, sveittur og móður, með skotthúfuna aftur á hnakka. Það var eins og jörðin hefði gleypt Vormjöll. Þorsteinn tók miklum stakkaskiptum eftir þetta kvöld. Hann varð þunglyndari en hann hafði nokkurn timann verið. Mamma hans gat tæpast dregið út úr honum orð. En á boganum skipti hann og gamalli tinnu- byssu. Hann skipti við Lappalcarl i Djúpaskarði. Hann gaf sex rjúpur og málmhnapp i milli. Þann dag hélt Þorsteinn upp í hliðina til að hitta Mikka, gasprarann þann. Ja, hann Mikki! Hann sat að venju í sólskininu uppi i hliðinni og góndi niður eftir, þangað sem Þorsteinn læddist. En hvað var það, sem Hrísa-Þorsteinn bar um öxl í dag? Eklci var það boginn! Mikki reigði sig og brosti. Hann trúði ekki sínum eigin augum. Ef Þorsteinn hefði komizt yfir byssu, þá væri líklega bezt að taka til fótanna. Honum kom í hug síðasti grikkurinn, sem hann hafði gert Þorsteini, svo að það myndi betra að liafa sig af stað fyrr en síðar. Mikki slcauzt af stað yfir þúfurnar með skottið milli fótanna. Og þótt Þorsteinn næði Miklca ekki í skotfæri, var hann samt hreykinn yfir þvi, að loksins hefði hann þó fengið skelmi þann til að bera tilhlýðilega virðingu fyrir sér. Á hverjum degi gekk Þorsteinn um með byss- Una hlaðna nöglum og smásteinum. Heldur lítið græddi hann á veiðunum. Mesta afreksverkið var uð drepa mús. Hana fékk Hrísa-kisa. Hún var svo uðframlcomin af hungri, að liana skorti afl og úræði lil að veiða mýs sjálf. Langferðo Og svo kom vorið. Þorsteinn hafði beðið og búið sig undir það uianuð eftir mánuð. Hann hafði fylgzt nákvæm- ^ega með í almanakinu. Það var harpa, og það var skerpla og sóhnánuðm'. En veðráttan fór nú ekki alltaf eftir almanakinu hér uppi í fjöllunum. Og morgun einn lagði Þorsteinn svo af stað yfir hjarnið í átt lil Hyrnunnar. Það setti að honum geispa, þar sem hann brun- aði ófram yfir snæbreiðuna. Honum hafði ekki runnið blundur á brá alla nóttina. Þegar hann kom upp í auðnirnar, rann sólin upp. Og það varð svo bjart, svo undurbjart á öllum hæðadrögunum. Ljósið skein í gegnum liann, svo að liann varð einungis eins og daufur skuggi á ferð yfir viðernin í hinu glampandi sólskini. Nú geklc hann um land gulls og silfurs og sólskins og ævintýra. í vestri risu blá háfjöllin, og þar sá hann Hyrnu- tindinn gnæfa mót himni. Hann var einnig drifinn gulli. Líldega sat Vormjöll inni í sólstofunni og hugsaði um hann. Hann varð að tylla sér á þúfu og blása mæðinni. Er hann sat þar og liugsaði, varð ný vísa til: Vormjöll árla úr rekkju rís, — roðar sólin bláan is —, grefur upp úr gylltri skál gulltvinna og silfurnál. Vormjöll þykir vænt um mig. Vífin sauma lífs um stig nokkur léreft, önnur ull, aðeins Vormjöll saumar gull. En ekki varð þetta ljóðið lengra, því að í sama bili kom stór hreinboli þjótandi. Á eftir hrein- inum kom kolgrimmur úlfur másandi með tung- una lafandi út úr gininu. Þorsteinn greip til byssunnar, miðaði og skaut. Úlfurinn rak upp ýlfur, sem smaug gegnum merg og bein, og þarna lá hann steindauður. En hreinninn nam staðar og geklc í átt til Þorsteins. — Hver ert þú, að vera þessi afbragðs skytta? sagði hviti hreinbolinn. Þakka þér fyrir, að þú bjargaðir mér úr þessum lífsliáska! Ef svo kynni við að bera, að ég gæti gert þér greiða í staðinn, þá væri mér það sönn ánægja. — Ó, ég heiti bara Hrísa-Þorsteinn, og faðir minn er aðeins gamall, vesæll sútari liérna norður í fjöllunum, svaraði Þorsteinn. En annars er ég á leið til Hyrnutröllsins sjálfs lil að athuga, hvort hann vill ráða mig til sín sem vikadreng. Ef svo vel vildi til, að þú gætir vísað mér leiðina þangað, þar eð þú gerir svo viðreist um fjöllin, myndi ég vera þér hjartanlega þakklátur fyrir það. 41

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.