Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.07.1963, Qupperneq 8

Æskan - 01.07.1963, Qupperneq 8
Ár í heimavistarskóla. ÆSKAN --------------------------- • í „refsingarskyni“ fyrir nætur- ferðina eiga Páll og Nancy að vera Betty litlu hjálpleg. Börnin klöppuðu, þegar þau heyrðu, hver „refsingin" var, og stúlkurnar lögðu sig beinlínis fram við að vera sem vingjarnlegastar við litlu stúlk- una. MAÐURINN MEÐ RAUÐA HÁLSKLÚTINN „Eigum við ekki að skreppa og sækja bréfið?“ spurði Páll systur sína nokkrum dögum síðar. „Bréf? Hvaða bréf?“ „Æ, þú gleymir alltaf öllu!“ svar- aði hann óþolinmóður. „Það er þó ekki liðin nema vika síðan bréfið var íalið í klausturrústunum, og nú ertu búin að gleyma því, vegna þess hve mikið þú leikur þér við Betty og hinar stelpurnar." Það var ekki laust við, að Páll væri svolítið afbrýðisamur. Honum fannst Nancy gefa sig svo mikið að stelpunum, að hún alrækti hann — þau voru þó systkini! „Heyrðu, taktu myndavélina með,“ sagði Nancy, „og svo tökum við nokkr- ar myndir í dag — sólin skín svo glatt — og svo getum við sent þær til pabba og mömmu. Þá eiga þau 'auð- veldara með að skilja, hvernig þetta lítur allt út, þegar við segjum frá.“ Páli þótti þetta ágæt hugmynd, og þau lögðu af stað í sólskinsskapi. Þetta var sannarlega eitthvað annað en að paufast þangað í næturmyrkri og vera svo með slæma samvizku í þokkabót. Þau tóku fyrst myndir af rústunum úr nokkurri fjarlægð, en íærðu sig síðan nær og tóku fleiri myndir. Loks klifraði Páll upp á hálffallinn múr- vegg — en þar stóð hann skyndilega hreyíingarlaus og gaf Nancy bend- ingu um að hafa hljótt. Hún fylgdi á eftir lionum og gægð- ist íorvitin yfir vegginn. Hvað var eiginlega á seyði? í grasinu handan við vegginn lá maður og svaf — reglulegur lassaróni að sjá, órakaður og skítugur. Um háls- inn hafði haiín val'ið rauðum, rytju- legum hálsklúti. „En hvað ltann er spaugilegur," hvíslaði Nancy og Páll kinkaði kolli. „Heyrðu, ég ætla að taka mynd af honum," sagði hann og stillti mynda- vélina. Páll tók myndina og Nancy sótti bréfið — það var vel geymt á sínum íelustað — og svo flýttu þau sér heim aftur. Þegar þau voru komin heim undn' skólann, mættu þau Tomma, sem var mjög hátíðlegur á svip. „Það var gott, að þið komuð — við megum ekki vera úti lengur — það hefur dálítið komið fyrir,“ sagði hann ákalur. „Hvað er það?“ „Innbrot! Uppi á herragarðinum!‘ Tommi elskaði leynilögreglusögur, í grasinu handan við vegginn lá maður og svaf — reglulegur lassaróni að sjá, órakaður og skítugur. Um hálsinn hafði hann vafið rauðum, rytjuleg- um hálsklúti.

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.