Æskan

Årgang

Æskan - 01.07.1963, Side 19

Æskan - 01.07.1963, Side 19
ÆSKAN Hinn drengurinn, sem ekki vildi vera neinn eftirbátur Micks, sagði mér, að faðir sinn væri í slökkviliðinu og starfaði við eitt af stóru leikhúsunum í borginni. Ég sagði þeim ekkert um heimili mitt og gaf mig yfirleitt frekar lítið að þeim. Þegar ég liugsaði til fyrri ielaga minna, þeirra Steerforths, Traddles og annarra pifta í skólanum og bar þá saman við Mick og Meipap, fann ég til biturs sársauka yfir því, að ég skyldi vera kominn niður á svona herfilegt mannfélagsstig. Ef til vill ætti það fyrir mér að liggja að húka hér við flösku- þvott öll æskuár mín og gleyma öllu, sem ég hafði lært. Draumar rnínir um að verða einhvern tírna færður og ágætur maður áttu þá afdrei að rætast. Ég átti þá að veslast upp í fávizku og eyrnd! Tilhugsunin um allt þetta tekk ákaflega mikið á mig, og fyrsta klukkutímann var ég sí-grátandi. Þegar klukkan var orðin eitt síðdegis, var kallað á mig inn í skrifstofuna, og hitti ég þar auk herra Quinions gildvaxinn náunga í svörtum frakka og á mórauðum brókurn. Hann var bersköllóttur og breiðleitur. Föt hans voru öll gljáandi og snjáð af siiti, og hái flibbinn hans var langt frá því að vera hreinn. Hann hélt á montpriki í hendinni og framan á frakkanum hans dingluðu nef- klípugleraugu. „Þarna er hann,“ sagði Quinion og benti á mig. „Svo-o, þetta er þá þessi ungi Copperiield,“ sagði sá digri mjög tigimnannlega og góðlátlega. „Það gleður mig að kynnast yður. — Ég vona, að yður líði hér vel.“ Ég hneigði mig og svaraði, að mér liði ágætlega. „Þetta er herra Micawber," sagði Quinion. „Hann er umboðsmaður okkar, og lierra Murdstone hefur mælt svo fyrir, að þú eigir að búa hjá honum." „Já, heimilisfang mitt er Windsor Terrace, en af því að ég býst við, að þér séuð enn ekki orðinn kunnugur í borginni, vildi ég mega hafa þann heiður að leiðbeina yður gegnum leyndardóma þessarar nýtízku Babýlonar . . . eða með öðrum orðum, ég ætla að koma í kvöld og fylgja yður lieim.“ Ég þakkaði honum innilega fyrir, og síðan kvaddi herra Micawber herra Quinion og labbaði bísperrtur og hnakka- kertur út úr skrifstofunni, vingsaði montprikinu með afarmiklum fjálgleik og sönglaði danslag. Þegar hann var farinn, borgaði Quinion mér vikukaup- ið rnitt fyrirfram. Það voru, ef ég man rétt, sex shillingar, og sagði mér jafnframt, hvað ég ætti að gera síðari hluta dagsins. Síðan fór ég út í borgina að borða miðdegisverð, það er að segja, ég keypti mér eggjakökubita í matsölubúð og át hann síðan úti á götu. Svo fékk ég mér vatn að drekka úr vatnsdælu einni. Klukkan tvö fórum við aftur til vinnu og unnum til kl. átta á kvöldin. Micawber kom klukkan á mínútunni átta að sækja mig, og á leiðinni 191

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.