Æskan - 01.11.1987, Blaðsíða 31
PARISKÓR
hlýni,“ sagði hún umhyggjusöm og
leiddi Tóta inn í stofuna eins og hann
v®ri brothættur.
»Eg skal hita handa honum kakó,“
s3gði Nína.
Það var eins og þær hefðu gleymt
nema Tóta. Gerður vafði ullar-
tePpinu vandlega utan um hann og
nuddaði á honum axlirnar. Nína var á
Þönum. Hún vildi að hann færi úr fínu
skónum svo að hún gæti nuddað lífi í
^rnar á honum. Svo kom hún með
fínkandi kakó og þær settust báðar á
Sólfið og horfðu áhyggjufullar á sjúkl-
lnginn sem langaði helst til að vera
kalt það sem eftir væri ævinnar. Erni
vnr nóg boðið. Hann reyndi að láta
Sem ekkert væri og litaðist um í ný-
öskulegri íbúðinni. Nína stóð letilega
nPp og setti plötu á fóninn. Hún
'Vgndi augunum og sönglaði með.
Eún var með ótrúlega hrúgu af máln-
Ingu framan í sér og Emi varð ómótt
af ilmvatnslyktinni sem streymdi frá
henni. Svo mundi hann allt í einu eftir
sælgætinu sem hann hafði keypt.
Hann fór fram á ganginn og tíndi það
upp úr úlpuvasanum sínum.
„Gemm mé gott rnanni," var allt í
einu sagt fyrir neðan hann. Þarna stóð
þessi krullaði krakki með útrétta
hönd. Hann rétti henni nokkrar
karamellur og brosti til hennar.
„Gedda, Gedda, manninn gaf mé
gott,“ skríkti sú litla og hljóp til systur
sinnar.
„En þú sætur að koma með sælgæti
handa henni,“ hrópaði Gerður og
horfði með aðdáun á Örn.
„Maður verður nú líka að hugsa um
litlu börnin," sagði Örn með tilfinn-
ingu og klappaði á krullaða kollinn á
baminu.
„Ekki hefði ég trúað því að þú vær-
ir barnagæla," sagði Nína með aðdáun
í röddinni. „Lúlli þolir ekki börn. Mér
finnst það alveg agalegt. Litli bróðir
minn er alveg logandi hræddur ef
Lúlli kemur til mín þegar ég er að
passa. Lúlli er alveg ofsalega fúll við
litla krakka. Hann gefur bróður mín-
um aldrei sælgæti. Samt á pabbi hans
margar sjoppur.“
„Mér finnst svo sjarmerandi strákar
sem eru góðir við lítil börn,“ sagði
Gerður og horfði enn með aðdáun á
Örn.
Hann beygði sig niður að krullaða
barninu og brosti framan í það.
„Gúllí, dúllí, dúll,“ sagði hann og
kitlaði barnið undir hökuna.
Stelpan skríkti og vafði handleggj-
unum utan um hálsinn á Erni. Hann
tók hana upp og horfði útundan sér á
Tóta sem enn skalf í stólnum þótt
hann væri vafinn inn í teppi sötrandi
sjóðheitt kakó. Tóti horfði með fyrir-
litningu á Örn eins og hann vildi
segja:
„Hræsnari, þú sem þolir ekki smá-
krakka.“
En Tóti þagði. Sú krullaða vildi alls
ekki sleppa Erni. Hann settist því
með hana í sófann og lét sem honum
líkaði mjög vel að vera barnapía.
„Settu þetta í skál ef þú vilt,“ sagði
hann mannalega við Gerði og lét hana
fá poka með afganginum af sælgætinu.
„En þú sætur," galaði Gerður og
fór inni í eldhúsið eins og stormsveip-
ur. Hún kom svo með sælgætið í skál-
um og setti á borðið.
Nína sneri plötunni við og var farin
að líta á klukkuna.
„Ætlaði Lúlli að koma?“ spurði
Tóti sem fannst hann vera orðinn út-
undan.
Nína kinkaði kolli og dansaði af
innlifun fyrir framan stóran spegil.
Gerður settist hjá Erni og litlu syst-
ur sinni.
„Nú á lítil karamellustelpa að fara
að sofa,“ sagði hún með smábarnaleg-
um rómi og horfði á systur sína.
„Nei, é ekki sofa. É vera hjá góða
manninn," sagði sú krullaða ákveðin.
Gerður hló.
„Kannski getur Örn bara svæft
hana,“ söng Nína og hélt áfram að
dansa.
Örn fraus.
„Viltu það ljósið mitt?“ spurði
Gerður í gælutóni. „Viltu biðja góða
manninn að svæfa þig?“
Barnið kinkaði kolli ákaft og lagði
handleggina um hálsinn á Erni.
„Þú svæfa Lóló.“
Tóti var farinn að glotta óþarflega
mikið og Erni fannst hann kominn út
á hálan ís. Hann ákvað þó að leika
hlutverkið til enda. Hann tók utan um
barnið og kyssti það á kinnina. Tóti
fór að flissa. Örn leit á hann með
vorkunn og strunsaði á eftir Gerði inn
í svefnherbergið með barnið í fanginu.
„Þú ert algjört æði,“ hvíslaði hún og
horfði ástúðlega á hann.
„É pissa,“ sagði barnið.
„Já, elskan, Gedda skal hjálpa
þér.“
„Nei, ekki Gedda. Bara góði mann-
inn,“ sagði barnið og hélt fast í Örn.
Gerður yppti öxlum og blikkaði
Örn.
„Hún bara elskar þig,“ sagði hún
yfir sig glöð og fór.
31