Æskan

Volume

Æskan - 31.12.1902, Page 2

Æskan - 31.12.1902, Page 2
Ö2 ÆSK AN. mynd sinni, gerðu þeir ekki annað en hæðast og hlæja að honum, og flestir álitu, að hann væri brjálaður, að láta sér detta slíka fjarstæðu í hug. En hann sinti því ekki, dg svo fór, að hætt var að hæðast að hon- um, þegar rnenn sáu, hve vel tilraunir hans hepnuðust. Árið 1803 gerði hann fyrstu tilraunina og notaði til þess dálítinn bát; en fjórum árum síðar reyndi hann að knýja stórt skip áfram með gufuafli, og tókst ágætlega. Var þá brátt farið að byggja gufuskip víðs vegar um heim. Fyrsta gufu- skipið, sem fór milli Ameríku og Englands árið 1819, var 26 daga á leiðinni. Nú hefir gufuvélin tekið svo miklum framförum og lagið á skipunum breyzt svo mikið síðan, að gufuskipin þurfa ekki nema 5 — 6 sólar- hringa til að fara þessa sömu leið. Gufuskipið, sem þér sjáið á myndinni, er eitt af hinum minni, og eru þau venju- lega ekki kölluð gufuskip, heldur gufubátar. í hugsunarleysi. „Jæja, börnin mín góð; eg Yeit, að ykk- ur þykir vænt um pabba ykkar og að þið gerið ekki viljandi það sem honum mislík- ar. En þið hafið öll gert ýmislegt i hugs- unarleysi, sem honum hefir fallið mjög þungt. Eruð þið ekki öll hrygg yfir því?“ „Jú, jú, amma,“ svöruðu öll börnin sem með einum rómi. „Nú, jæja, fyrst þið iðrist þess, skal eg segja ykkur skemtilega sögu.“ Börnin höfðu auðvitað ekkert á móti því, og tóku nú vel eftir, á meðan amma var að segja þeim söguna. „Þegar eg var dálitil stelpa, átti eg heima í fangelsi; eg fæddist í fangelsi, því að fað- ir minn var fangavörður. Það var skugga- legt hús og háir múrveggir hringinn í kring um það; en okkur börnunum þótti vænt hverju um annað, og vorum við því glöð og ánægð. Fangelsið var lítið, og hafði faðir minn alla umsjón með því. Eg gekk í skóla, og man eg, að eg átti oft erfitt- með lexíur minar. Oft varð eg að biðja Nellie Henderson að hjálpa mér; en hún var duglegasta stúlkan í skólanum og bezta vinstúlka mín. Einn dag átti eg að reikna mjög erfitt margföldunavdæmi; eg gerði það sem eg gat, til að reikna það rétt, en alt. af varð það rangt. Á þeim tímum var okkur refsað stranglega, ef við kunnum ekki það sem við áttum að læra, og var eg því mjög óttaslegin." „Hvað gerðirðu þá, amina?" spurði Tom ákafur. „í angist minni hljóp eg út á leiksvæðið til Nelliar. Það var rétt áður en kensian byrjaði. „Æ, hjálpaðu mér með óhræsis- dæmið, Nellie mín; þá ertu væn,“ sagði eg. En Nellie leit til mín óhýrum augum og fór síðan leiðar sinnar; sá eg, að hún var mjög reið við mig. Eg fór þegar að gráta,. er eg fékk þessar óvæntu viðtökur, en skömmu síðar fór eg á eftir henni, og sá eg þá, hvar hún stóð í hoini einu á leik- svæðinu og var að tala við allmargar skóia- systur okkar. Hún var hávær, og heyrði eg hana segja: „Leikið ykkur ekki fram- ar við Elísu,“ og þær svöruðu: „Ekki eg,. ekki eg.“ Eg varð mjög hugsandi út af því, hvað eg mundi hafa gert, sem verð- skuldaði svo harða refsingu. Gekk eg til

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.