Æskan

Árgangur

Æskan - 19.06.1903, Síða 5

Æskan - 19.06.1903, Síða 5
ÆSKAN. ur nærri mér, svo að enginn stígi ofan á ykkur. og varið ykkur á köt,tunum.“ fvi næst komu þau inn í andagarðinn; þar var gríðarlegur hávaði, því þar var tvi- býli, og bæði heimilin börðust um álhöfuð, sem þó lenti í kettinum á endanum. „Svona gengur nú lífið í veröldiimi, “ sagði móðir unganna og sleikti útum um ]eið, því að hana langaði líka í álhöfuðið. „Haflð þið nú fæturna fyrir ykkur og reyn- ið að spreyta ykkur, og hneigið ykkur í hálsinum fyrir gömlu öndinni þarna; hún er lang-göfugust allra, sem hér eru, hún er af spönsku blóði, og því er hún gild, og lítið á! Hún hefir rauða dulu um fótinn, og það er Ijómandi fallegt og einhver hin mesta upphefð, sem nokkur önd getur hlot- ið. Það þýðir ekki nema það, að enginn vill missa hana, og að bæði dýr og menn skulu þekkja hana úr. Ráf, ráf! Ekkiinn- stígir! Yel dubbaður andarungi lætur vera langt á milli fótanna, eins og faðir hans og móðir gera. Svona, beygið nú hálsinn og segið: ráf!“ Og það gerðu þeir. En hinar enduruar þar umhverfis horfðu á þá og sögðu upphátt: „Já, já, við eigum þá að fá þetta hyski í viðbót, eins og við værum ekki nógu mörg fyrir! Og svei aftan! Hvað einn unginn lítur ólánlega út! Honum skulum við koma af okkur.“ Og óðara rauk ein öndin á hann og beit hann aftan í hnakkann. „Látið hann vera!“ sagði móðirin. „Hann gerir víst engum neitt." „Jú, hann er of stór og annarlegur,“ sagði öndin, sem beit, „og því á hann að hafa það.“ „Hún á lagleg börn, .heillin,“ sagði gamla öndin með duluna um fótinn. „Öll lagleg 73 nema eitt. Það hefir ekki tekist. Eg vildi óska, að hún gæti gert það upp aftur." „fað er nú ekki hægt, frú mín góð,“ sagði andamóðirin; „hann er ekki laglegur, en hann er bezta barn, rýjan, og syndir fult svo laglega og hver hinna. Já, mér liggur við að bæta því við: eg held að hann fi'ikki með aldrinum, eða hann verð- ur smáfeldari með tíð og tíma; hann hef- ir legið of lengi í egginu, og hefir því ekki náð réttu lagi og lögun,“ og svo nartaði hún aftan í hálsinn á honum og snotraði til á karli. „Ilann er lika steggi,“ sagði hún, „og þá hefir það lítið að þýða; eg á von á að hann fái góða krafta, og þá vona eg, að hann spjari sig, svo dugi.“ „Hinir eru dáfallegir ungar,“ sagði gamla öndin. „Yerið þið nú eins og heima hjá ykkur, og ef þið finnið álhöfuð, getið þið fært mér það.“ Og svo fóru ungarnir að gera sig heima- komna. [Niðurl. næst.] ------O-kX.------ Tom. [Ensk saga.] EiÁ ULDINN var nístandi — framúrskar- andi nístandi og bitur, og auk þess var koldimt, því að gasljósin, sem hoppuðu og ósuðu i storminum, lýstu varla 10 skref frá sér. Yindurinn þaut gegnum götuna, eins og hann væri tryltur, og sópaði burt með sér snjó og ryki og öllum hræran- legum hlutum, sem hann gat við ráðið. Þar á meðal var veslings gamall, útslitinn dreki, sem einhvern tíma um haustið hafði sezt að hæst uppi í stærsta trénu í ná- grenninu, og hafði hann hvílt sig þár siðan

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.