Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 19.06.1903, Qupperneq 6

Æskan - 19.06.1903, Qupperneq 6
74 ÆSK AX, í næði og með þeirri fullu sannfæringu, að erfiði hans væri nú á enda. Nú hreif stom- urinn hann vægðarlaust út úr fyigsninu og íeykti honum burt. Hann gerði margar iilraunir til að komast inn í skjól á rnilli húsa, bak við tröppur og inn á umgirt •svæði; en alt var árangurslaust. Stormur- inn kom í veginn fyrir hann og þeytti honum burt í gagnstæða átt, sveiflaði honum hringinn í kring um nokkrar tunnur, sem stóðu í röð eins og hermenn meðfram gangstéttinni, og beint í fangið á dálitlum 'dreng, sem sat á steini í skjóli við tunn- ■urnar. Drengurinn var bæði lítill og fátækleg- ur. far sem hann sat var hann engu líkari en tusku-hrúgu; flíkurnar utan á honum voru slitnar og rifnar og drengur- inn nær dauða en lífl af kulda. Neflð, eyrun, hendurnar og fæturnir, sem voru berir, var allt helblátt. Honum var nærri •of kalt til þess að hann gæti skolfið, og •drekanum, sem óvinur hans, stormurinn, feykti til hans, veitti hann enga eftirtekt. Það leit út eins og drekinn hjúfraði sig upp að honum til að biðja hann ásjár; en i sama bili kom vindurinn aftur beggja megin við tunnurnar, eins og hann spenti greipar utan um þær og í gegnum veslings 'Tom litla, og ískraði í honum af ánægju um leið og hann náði aftur tökum á her- fangi sínu, drekanum, og feykti honum iburt. Hann hét „Tom*, litli drengurinn; hann átti ekkert annað nafn. Enginn vissi, hver hann var eða hvaðan hann var, nema kannske fátæka gamla konan, sem hann „átti heima* hjá. En þetta, að hann átti þar heima, þýddi að eins það, að hún lét hann sofa á gólflnu í stofukytrunni sinni; lá hann þar á bunka af gömlum druslum. Stundum gaf hún honum brauðskorpu, en miklu oítar barði hún hann. Þegar hún var drukkin, flýði Tom út á götuna, en drukkin var hún oftast nær,' og á kvöldin var hún það altaf. Hann var víst hér um bil 6 ára gamall; en hver sem hefði séð hann, þar sem hann sat á stéttarsteinunum niðurlútur og áhyggjufullur, hefði vel getað ímyndað sér að hann væri að minsta kosti tífalt eldri en hann var. Nú kom vagn akandi eftir götunni og nam staðar rétt þar sem Tom sat. Vagn- dyrnar opnuðust og tvö börn hoppuðu út, skildu dyrnar eftir opnar og flýttu sér upp tröppurnar og inn í húsið. Tom leit þreytu- lega á eftir þeim, heyrði dyrabjölluna hringja, sá að eins bregða fyrir daufri glætu innan úr stofunni, og virtist honum að þar væri bæði bjart og hlýtt; en svo lokuðust dyrnar aftur, og alt var koldimt sem áður. Hann sneri sór að vagninum til að sjá, hvort hann væri farinn, en hann stóð kyr enn þá. Ökumaðurinn sat í sæti sínu hreyfingar- laus, eins og hann væri myndastytta. Annar vagnhesturinn stappaði óþolinmæðislega nið- ur í götuna og leit tortryggnislega kringum sig; en myndastyttan sat. hreyfingarlaus. Tom horfði dapur í bragði inn í vagn- inn um opnar dyrnar. Pó dimt væri, sá hann, að vagninn var fóðraður innan með þykku hlýju efni. Hann leit upp og í kringum sig. Ef hann væri kominn inn í vagninn, þá gæti stormurinn ekkert gert honum. Ó, að hann mætti koma þar inn, þó ekki væri nema eitt augnablik! Hann skyldi læðast út aftur, undir eins og hús- dyrnar opnuðust. Hann staulaðist á fætur

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.