Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 19.06.1903, Qupperneq 8

Æskan - 19.06.1903, Qupperneq 8
76 ÆSKAN bætti við með hálfgerðum þjósti: „Eg á enga.“ Konan strauk hægt og hægt hend- inni um höfuð honum. Hún einblíndi fram fyrir sig. Andlit þessa drengs var svo nauðalíkt öðru andliti, sem hún var að hugsa um. „Ertu svangur?" spurði hún alt í einu. Hún hefði eiginlega ekki þurft annað svar en það, sem hún gat lesið í augum hans. Hann svaraði kjökrandi og í hálfum hijóð- um: „Já, frú.“ Vagninn nam staðar og myndastyttan kom ofan í annað sinn, opnaði dyrnar og stóð svo grafkyr og sem steini lostinn, er hann leit inn í vagninn. „Eg fer ekki inn, Jóhann,“ mælti hús- móðir hans. „Flýttu þér heim aftur.“ Og svo bætti hún við brosandi: „Litli dreng- urinn þessi skreið inn í vagninn, meðan hann beið, af þvi að honum var svo kalt. Eg ætla að fara með hann heim. Flýttu þér nú eins og hægt er.“ Ökumaðurinn varð forviða. Hann lokaði vagninum og flýtt.i sér að komast í sæti sitt. Drengurinn gerði tilraun til að komast til dyranna. „Lof mér að komast út!“ æpti hann. „Eg vil ekki fara heim. Lof mér að kom- ast út!“ „Ekki heim til þírij“ svaraði konan vin- gjarnlega. „Heim til nún.“ Tom starði á hana steinhissa. Hann vissi hvorki upp né niður í þessu og lofaði henni því að lyfta sér upp í bekkinn við hliðina á henni. „Heim til mín,“ mælti hún aftur, „þar sem þér getur verið vel heitt, og þú getur fengið góðan mat, fengið að sofa eins lengi og þú vilt og það í mjúku rúmi. Hvernig lízt þér á það?“ . Tom varpaði mæðiiega öndinni, en svaráði engu. Þetta var alt meira en svo, að skilningur hans gæti gripið það. Hann — einn af drengjunum hennar mömmu Sal — átti að fara heim til ríku konunnar, þar sem börnin áttú heima, sem hann hafði séð fara þar inn um kvöldið. Hann leit upp alt í einu. „Voru það börnin yðar, sem eg sá áðan?“ spurði hann. Hún þrýsti honum fastar að sér og svaraði lágt: „Nei. Eg átti einu sinni dálítinn dreng — eins og þig. En hann dó.“ Þegar vagninn nam staðar aftur, var Tom sofnaður, og það svo fast, að öku- maðurinn, sem engu orði gat enn þá upp komið fyrir undrun, bar hann inn i húsið og lagði hann upp í rúm án þess að hann vaknaði. (Framh.) Kahpendur og útsölumenn „Æskunn- ar“ eru hér með mintir á, að gjalddagi blaðsins er í apríh Eru þeir því vinsaml. beðnir um að gera skil á borguninni svo fijótt sem unt er. Eldri árgangar „Æsknnnar44 fást nú innh. hjá afgreiðslumanni blaðsins, i Vestur- götu 21. Verðið á þeim er: I—III. árg. 1 kr. hver, IV.—V. árg. 50 aura hvor fyrir nýjaáskrifendur að blaðinu, en 1 kr.fyrir aðra. Úrsagnir úr „Æskunni“ tilkynnist slcrif- lega til afgreiðslum., og eigi síðar en fyrir lolc júlímánaðar. Afgreiðslumaður: Slgurður Jónsson, kennari, Rvík. Aldar-prentEmiðja. Pappírinn frá, J6ni OlafgByni.

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.