Æskan

Årgang

Æskan - 01.12.1912, Side 3

Æskan - 01.12.1912, Side 3
Æ S K A N. !)1 Móðurinni óx þrek og kraftur við bænina, og það var eins og hjá henni vaknaði óljós von uni að þessi dagur yrði byrjun betri tima fvrir heimilið, og sú von brást ekki. Þá er að kvöldi leið og verki skvldi liætta, bað hún Hildi litlu um að fara á móti pabba sínum. Hún stökk af stað, þótt þunnklædd væri og frost og kuldi úti fyrir. I.angt í burtu kom hún auga áföður sinn, er kom á móti henni ásamt ein- um samverkamanna sinna. Hann sá hana einnig og varð allkynlega við, er hann veitli því eftirtekt, að hún var ver ldædd en önnur börn, er úli voru i vetrarnæðingnum. — Ætli henni sé ekki ógnarlega kalt? — Skyldi hann aldrei hafa efni á að gefa henni vetrarkápu? l’egar þeir komu móts við veitinga- Inisið, stóðu þeir við og töluðu saman í ákafa; Jóhannes andmælti þvi að verða samferða inn. Samstundis hljóp Hildur litla lil þeirra og kallaði: »Golt kvöld, pabbi!« Félagi hans leil lil hans háðslega og mælli: »Jæja, ætlarðu þá að koma með mér inn, eða þorir þú það ekki l'yrir krakka-anganum þeim arna?« Reiðin sljóvaði aftur ásetning bans, svo að við sjálft lá að hann færi inn, bara lil þess að sj'na að hann væri sjálfum sér ráðandi og hræddist engan. »Komdu heim með mér, pabbi! — líg heíi beðið Guð fyrir þér. Farðu nú ekki inn i veitingahúsið, heldur vertu mér samferða heim til hennar Augu hennar ílóðu í tárum, og er faðir hennar varð þess var, átli hann fult i fangi með að verjast gráti. Félagi hans skellihló. Það sem hörð orð og áminningar ekki gátu til vegar komið, því áorkuðu nú tár og bænir barnsins. Jóhannes sneri baki við lé- laga sinum, lók í hönd litlu stúlkunni og rnælti um leið og hann fór: »Guð gefi þér góðar nætur. Heyrir þú það? IJildur litla befir beðið fyrir mér!« A heimili Jóhannesar rikti gleði og ánægja þetta laugardagskvöld og ætið þaðan af. Konu hans og dóttur iðr- aði þess aldrei, að þær höfðu beðið fyrir honum, og hann sá aldrei eftir því, að hann hafði snúið baki við veitingahúsinu að lullu og öilu. (Sj. ,!. þýddi úr »Magno«), Verðlaun Æskunnar 1913. Peir, scin útvega Æskunni ÍO nýja kaup- endur aö næsta árg., og standa skil á and- virðinu fyrir l.júli næstk., fá auk sölulauna: 1) 1 bundið eint. af 13. árg-, Æskimiiar, 2) 1 lieft eint. af æfintýrinu Kalda hjartnð og 3) 1 eint. af ágætri sögu, Ættargrafreiturinn. Peir, sem útvega £» nýja kaupendur með sömu skilyrðum, fá auk sölulauna: 1) 1 bundið eint. af 12. árg. Æskuiinar og 2) 1 eint. af æfintýrinu Kalda lijartaö. Hér gefsl öllum golt lækifæri til að lá sér góðar bækur með mjög iiægu móti. mommu«.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.