Æskan

Årgang

Æskan - 01.07.1916, Side 6

Æskan - 01.07.1916, Side 6
54 Æ S K A N skáld hinna síðari alda hafa ausið úr gnótt sinnar mælslcu. Eg vildi fremur ráðleggja ungling- unum að fletta upp í Eddu í tóm- stundum sinum, heldur en að sóa dýrmætum tíma æskuáranna með því að liggja yfir lestri ómerkilegra skáld- sagna, sem þyrlað er upp nú á tím- um eins og moldryki og slráð í augu auðleiddra og óþroskaðra æskumanna. Stafir þeir, er forfeður vorir skrif- uðu fj'rst framan af árunum, voru harla ólíkir stöfum þeim, sem nú eru notaðir, og hafa þeir verið nefndir rúnir. Af þeiin eru nú 23 stafir þekLir, sem mér er kunnugt um, og líta þeir þannig út: 1 -M t rr * i r r r v t $ (a) (b) (d) (e) (f) (g) (li> (ij) (k) (1) (m) (n) (ó) (p) it h t iu n> 11. (r) (s) (t) (u) (y) (z) (þ) (æ) (ö). Nú geta lesendurnir borið saman slafagerðirnar, þá fornu og nýju. Magnús Guðmundsson Böðmóðsstöðum. „Kúarektor“. (Smásaga.) IGURÐUR hét hann og var oftasl kallaður »Siggi litli«. Hann var 12 ára að aldri, og fremur lágvaxinn og grannur, cn að ýmsu leyti einkenni- legur og eflirlektarverður: Höfuðið mjög stórt, — miðað við líkamann að öðru leyti, og einkennilega lagað. Ennið slútti dálítið fram; — hann hafði hinn svonefnda »enniskökk«. Augun fremur lítil og aðallitur þeirra grár, annars nokkurs konar samkemb- ingur af gráum og mórauðum lit. Þau voru sakleysisleg og lýstu mein- leysi, og í augnasvipnum bjó barns- leg forvitni. Hárið skoljarpt. Eyrun slór og útstæð. — Að öllu saman- lögðu var »Siggi Iilli« skritinn, lílill strákur, og efnilegur. Það var mál manna, að hann væri »ekki svo vit- Iaus!« — »Hann er ekki svo vitlaus, hann Siggi Iilli«, var viðkvæðið. Og liann var það héldur ekki. Hann sýndi oft merki góðrar greindar og enda ekki ómerkilegrar athyglisgáfu. Og honum gekk fremur vel að læra, þegar hann lagði sig fram. — En mikið kveið hann fyrir prófunum á vorin. Hann reyndi reyndar að láLa ekki á þeim kvíða bera, en það var nú svona samt, að hann, kvíðinn, skein og gægðist fram gegnum fram- komu litla Sigga. Þetla var alveg ósjálfrált. En sérstaklega bar mikið á þessu daginn fyrir prófið. Þá lá litli Siggi uppi í rúmi inni í bað- stofu og las og las fræðibækur sinar. Þá var hann allur og óskiftur í lær- dómsheiminum. Og kinnarnar höfðu þá ef til vill óvanalega mikinn roða, og augun óróakendan kvíðablæ. Það ólgaði kitlandi kvíði á neðsta grunni vilundarlífs hans. Svo þegar að próf- inu kom, — þá gátu hin innibyrgðu eldsumbrot sprengt af sér fjötrana, þá gat komið táragos. En þetta baln- aði brátt, þegar bæði kennari og próf- dómari önduðu til hans hlýleika í huggandi orðum. Þá gufaði vætan burt. Og mikil var gleðin, þegar próíið var búið og þar með alger lausnar- timi upprunninn. Þá réði lilli Siggi sér ekki fyrir gleði. Kom þá gleðin ef til vill út i sýnilegum sjálfsþólta, í orðum eða tilburðum, svo að full- orðna fólkinu fanst ástæða til að »taka í taumana«. Gleðin var svona mikil yfir glæsilegum lærdómslyktum. Og svo þurfti að fá einkunnirnar upp- skrifaðar á blað, og það blað var

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.