Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1923, Síða 4

Æskan - 01.04.1923, Síða 4
28 Æ S K A N að þreifa sig áfram að kjailarastigan- um í myrkrinu og loks káfaði Dick á hurðarhún. »Húrra! Hérna eru dyrnar!« hróp- aði D ck í gleði sinni, reif dyrnar upp og steyptist inn i einskonar fataklefa, fullan af gömlum, mygluðum fötum, sÞetta eru ekki dyrnar«, sagði þá Nany og lá við gráti, »við komumst aldrei út úr þessu svartholi«. En nú herti Dick sigupp: »Ég man það svo vel, að kjallaradyrnar voru beint á móti borðstofudyrunum; við skulum reyna að komast að þeim aftur«. Þau héldust nú í hendur og leit- uðu að borðstofudyrunum og fundu þær; siðan tókst þeim að fálma sig áfram að kjallaradyrunum. »Hérna koma þær«, sagði Nany sigurglöð, »og þær standa opnar. Gættu þín nú að detta ekki niður«. Þegar þau komu dálítið niður í stigann, lagði skimuna frá gluggan- um til þeirra, og þá var myrkfælnin öll á bak og burt. Þau héldu siðan heim, og þegar þangað kom, hristu þau af sér regnið, sem streymt hafði yflr þau á leiðinni. Þau fóru inn i sólbyrgið, og þar lá Golíat í tága- stól, og leit á þau svo einstaklega kunnuglega. »Heyrðu, Nany«, sagði þá Dick, »hvað ætlaðirðu að sýna mér á veggnum í dagstofunni, þegar ljósið slokknaði? Ég sá það aldrei«. »Já, það! Pað var dálítið skrítið«. Ósjálfrátt lækkaði Nany róminn og hálfhvislaði að Dick: wÞað hékk stór mynd yfir arinbríkinni, en — en bakið á henni snéri út«. 4. kapítuli. Myndin af fögru stúlkunni. Nokkrum dögum síðar sat Dick í skólanum, hálfboginn yfir Cæsar í latínukenslustundinni, og átti við ótrú- lega mikla erfiðleika að stríða. Alt í einu vissi hann ekki fyrri til en sessunautur hans laumaði saman- brotnum miða í hendina á honum. Hann varð feginn tilbreytninni, og fletti miðanum í sundur og las: »Seinni partinn í dag í m. h. Hvað áttu mikla peninga?« Dick réði fljótt fram úr skamm- stöfunum, en hitt skildi hann ekki, hvað skolsilfur hans kom mannlausa húsinu við. Þó skrifaði hann i skyndi svar: »Já; að eins 21 eyrir, því mán- uðurinn er bráðum liðinn«. Siðan sendi hann miðann sömu boðleið til baka, en alt fór þetta fram í laumi, og Nany sat langt frá Dick. Hann sökti sér svo aftur niður í Cæsar, og var nú ekki jafn-vonlaus og áður; þetta rósamál gaf þó von um tilbreytingu seinni part dagsins. »Hvað í ósköpunum eigum við að gera við peninga?« spuröi Dick Nany undir eins og hann hitti hana, þar sem hún beið hans i skólagarðinum kl. 2. »Jú, sjáðu til, mér dalt í hug, að við þyrftum að kaupa okkur al- mennileg kerti og eldspýtnastokk, svo við þyrftum ekki að hnupla smá- bútum heima; en ég á ekki nema 6 aura í eigu minni. Með því móti gætum við skoðað okkur mikið betur um, og þyrftum síður að óttast að Katrin kæmist að öllu sarnan. Tvö kerti og einn eldspýtnastokk getum við fengið fyrir þessa aura okkar beggja. Svo er komið að mánaða- mótum, og þá getum við keypt við- bót. Stjaka verðum við líka að hafa, svo við getum látið ljósið standa á borðinu; það er líka svo leiðinlegt, þegar vaxið rennur niður á hend- urnar á manni«. (Framh.).

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.