Æskan - 01.05.1926, Blaðsíða 6
38
Æ S K A N
ipxuziu clpci aftmœh
9
unglingarcglunnar á '|jr'ðlandi,
Framkvæmdanefnd elztu barnastúk-
unnar á landinu, Æskunnar nr. 1, hafði
það mál til meðferðar á nokkrum fund-
um í vetur að minnast 40 ára afmæiis
unglingareglunnar og jafnframt stúku
sinnar 9. maí þ. á. Var undirbúningur
hafinn og mikið starfað að þvi að gera
þetta merkisafmæli sem hátíðlegast.
Langan tíma fyrir afmælisdaginn
hafði veður verið einmunagott, en að-
faranótt dagsins brast á stórhríð með
frosti og fannkomu. Brá mörgum í
brún, er þeir litu út um morguninn og
sáu jörð alhvíta og heyrðu Kára kveða
við raust. Varð þetta veðurlag til þess
að draga úr þátltöku i fyrri hluta há-
tíðarhaldsins.
Rúmri stundu eftir hádegi tóku fé-
lagar úr öllum barnastúkum í bænum
að safnast saman í G.-T.-húsinu. Var
gengið þaðan í fylkingu í dómkirkjuna
með fána Æskunnar í fararbroddi.
Piédikaði séra Fiiðrik Hallgrímsson
(fyrsti æ. t. Æskunnar), en fjölmennur
barnafiokkur, undir stjórn Hallgríms
söngkennara í’orsteinssonar, söng fjóra
sálma.
KI. 5 síðd. komu félagar Æskunnar
saman i G.-T.-húsinu ásamt gæzlumönn-
um allra stúknanna og nokkrum fleiri
boðsgestum. Eftir að samkoman hafði
verið sett og sungin herhvöt ungtempl-
ara (»Oss í hernað Kristur kallar«),
voru afhjúpaðar myndir af öllum
gæslumönnum Æskunnar frá fyrstu tíð
og fram á þennan dag. Fyrstur hafði
verið stofnandi hennar, Björn Pálsson
ljósmyndari, en nú veita henni forstöðu
Stefán H. Stefánsson verzlunarmaður
og Jón Leví ] gullsmiður. I’á mælti
Pétur Zóphóníasson fyrir minni stúk-
unnar, en á eftir var sungið nýort
kvæði eftir séra Fr. Fr. Síðan léku
saman á fiðlu og slaghörpu Theodór
Árnason og Emil Thoroddsen. Að því
búnu söng Bjarni Bjarnason frá Geita-
bergi nokkur lög. Þá voru 9 félagar
gerðir að heiðursfélögum og þeim af-
hent skírteini af umdæmisgæzlumanni
Ágúst Jónssyni, er ávarpaði hvern
þeirra með nokkrum orðum, en þeir
þökkuðu fyrir heiðurinn. Voru það
þeir Júlíus Árnason verzlunarstjóri,
Jón Árnason prentari, Aðalbjörn Stefáns-
son prentari, Jón E. Jónsson prentari,
Borgþór Jósefsson bæjargjaldkeri og
Sigvaldi Bjarnason trésmiður, og hús-
frúrnar Guðlaug R. Árnadóttir, Vigdís
Sæmundsdóttir og Jónína Hermanns-
dóttir. Höfðu tveir þeir fyrstnefndu
verið félagar í 38 ár og sá þriðji i 30
ár, en konurnar slðan þær voru 8 ára
gamlar. Eflir það sagði frú Guðrún
Lárusdóttir fallega sögu, en barnaflokk-
ur sá, sem söng í kirkjunni, söng nokk-
ur lög. Þá skemti O. Westlund prentari
með hlægilegum sjónhverfingum, en
nokkrir félagar st. íþöku léku gaman-
leik. Endaði svo hátíðin á því, að
söngflokkurinn söng aftur nokkur lög
að skilnaði. Mörg heillaskeyti bárust
Æskunni, bæði frá öðrum stúkum og
einstökum félögum.
Tveim dögum síðar var skemtunin
endurtekin með dálílið breyttri skemli-
skrá fyrir foreldra barnanna, og var
þá flult ræða sú, er hér fer á eftir.
A. S.