Ísland


Ísland - 29.08.1936, Síða 2

Ísland - 29.08.1936, Síða 2
2 ISLAND 29. ágúst 1936. Það er barist um marxismann, sem er rán, morð og ofbeldi — og um fascismann, sem er eining þjóðarinnar og farsæld. I5LAHD Útgefandi: Flokkur þjóðernissinna. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jens Benediktsson. Grundarstíg 3. Sími 4798. — Pósthólf 433. Afgreiðsla í Tjarnargötu 3. Opin laugardaga allan daginn, aðra daga. 11—12 og 5—7 e. h. Verð: 1 lausasölu 15 aura. 50 aura á mán. Árg. 6,00. Steindórsprent h.f. því skipað í það starf á næst- unni. Það er nú talið fullvíst, að Sigurður Einarsson, fréttasnápur útvarpsins, verði skinaður prófessor í guðfræði við Háskólann, eftir því sem hann segir sjálfur kunningjum sín- um. Að vísu er Sigurður ómerki- leg heimild, en ætla mætti þó, að hann vissi gjörla, hvaða bein eru á borð fyrir hann borin. Frá hinum „æðri stöðiun“ hefir líka frétzt um þessa ófé- legu embættisveitingu, og tek- ur það af allan vafa. Sigurður er, eins og kunnugt er, pólitískur þurfalingur, sem hefir selt öllum stéttaflokkum þessa lands, jafnvel íhaldinu, atkvæði sitt. Og með skipun hans sem prófessors yrði Há- skólanum sýnd sú megn- asta svívirðing, er nokk- ur viðurkennd mennta- stofnun hefir orðið fyrir. Hér verða kennarar og nemendur að taka til sinna ráða og hefja öfluga bar- áttu, sem ekki má linna fyrr en fullt sjálfstæði Háskólans verður tryggt í framtíðinni. Fyrir skömmu hitti Guð- brandur Jónsson, siðameistari ríksisstjórnarinnar og prófessor að nafnbót, vin sinn Sigurð Ein- arsson á förnum vegi. „Þeir ætla að gera þig að prófessor,“ sagði Guðbrandur við Sigurð. „Já. Von á ég á því. Það er þó alltaf betra að vera raun- verulegur prófessor, en prófes- sor að nafnbót,“ svaraði Sigurð- ur hróðugur. „Ekki er ég viss um það. Síð- ur er þó hætta á að fákunnátt- an komi í Ijós þannig,“ sagði Guðbrandur þá og glotti við tannbrotin. Varla er nú rætt meir um nolckurt land í heiminum en Spán og hið pólitíska ástand þar. Fyrst og fremst er talað um byltinguna og þá viðburði, er af henni hafa leitt. Ætla ég þess vegna að drepa með nokkr- um ofðum á ástandið fyrir bylt- inguna, ástandið á þeim tíma, er hin rangnefnda Alþýðufylk- ingarstjórn fór með völdin. Eftir að konungdæmið féll 1931 var mynduð vinstriflokkastjóm á Spáni og stóð hún þar til 1933, er hægri flokkamir unnu kosn- ingarnar og mynduðu stjórn. Leið svo fram á haust 1934, en þá þoldi marxistaskríllinn ekki að vera lengur í minnihluta og gerði uppreisn „gegn hinni lög- legu stjóm landsins“, eins og Alþbl. kallar það. Þá fannst Al- þýðublaðinu ekkert athugavert við uppreisnina, þá talaði það ekki um, hve mörg börn hefði orðið foreldralaus, þá var allt í lagi, fyrst að marxistaskríll átti hlut að máli. En eftir eina viku var marxistaskríllinn uppgefinn og öll mótspyma af hans hálfu brotin á bak aftur. Þetta var mikill ósigur fyrir marxismann og þess vegna var nú unnið af öllum kröftum að því,. að vinna aftur hið tapaða. III. Inter- nationale í Moskva lagði mikla áherzlu á að koma Spáni undir ok kommúnismans, og þess vegna var fundið upp á sam- fylkingu allra marxistískra flokka í landinu, sem átti að ryðja skrílræðinu braut inn í landið. Óhemju gullsendmgar streymdu frá Moskva til Madrid Marxistar fóm að gefa út ný blöð og fjölga útgáfudögum annarra blaða sinna. Bela Kun, morðvargurinn frægi frá Ung- verjalandi, sem laumaðist yfir löndin í kvenmannsfötum, var sendur á vettvang, til þess að skipuleggja og stjórna bylting- unni. Öll vélin var sem sé kom- in í gang. Árangurinn var líka farinn að koma í ljós, því að allt af jukust óeirðimar og óróinn. Svo rennur upp hinn mikli dag- ur skrílfylkingarinnar, 16. febr. 1936. Það var kosningadagui og skríifylkingin sigraði með kosn- ingaloforðum, sem slá út 4-ára- áætlunina hér og þá er nú mik- ið sagt. Nú var mynduð stjóra, en það einkennilega við stjóm- armyndunina var það, að eng- inn kommúnisti eða „jafnaðar- maður“ átti sæti í henni, held- ur ,,frjálslyndir“, borgaralegir vinstriflokkar, er nutu stuðn- ings marxista. Strax eftir þenn- an atburð jukust allar óeirðir og gripdeildir um allan helming og réði stjóruin ekkert við menn sína. Stjórnin var á milli tveggja elda, annars vegar hinna ,,frjáislyndu“ borgara- flokka, er heimtuðu óeirðirnar bælaar niður, og hins vegar /ar hún bundin málefnasamningi við „Alþýðufylkinguna", sem helzt vildi láta stjórnina lafa við völd eittnvað fram eftir með aðstoð borgaraflokkanna, með- an jarðvegar byltingarinnar yrði betur undirbúinn og siðan yrðí stjórninni steypt af marx- istum og stofnað „alræði öreig- anna“. Það var vegna þessa innbyrðis ástands í stjórnar- flokkunum, að kirkjubrennur, morð, rán, gripdeildir og óeirðir voru látnar eiga sig. Og auð- vitað féll atvinnulífið að miklu leyti niður, er þannig var ástatt, atvinnuleysið jókst og hagur allrar alþýðu versnaði stórum. Stjórnin hafði hvorki tíma, vilja né getu til þess að framkvæma hin gullnu kosningaloforð sín og þess vegna snéri verkalýðurinn að miklu leyti baki við stjórn- inni og hóf verkföll, krafðist réttar síns. Spænskir þjóðernis- sinnar unnu fjöldan allan af verkamönnum inn í verkalýð- félög sín og þau hófu harða baráttu gegn stjórninni. Jafn- framt harðnaði barátta marx- ista og voru nú stöugir árekstr- ar milli þjóðernissinna og marx- ista. I þeirri baráttu hafa marx- istar hagað sér svo skepnulega, að flest það, sem áður var þekkt af slíku tagi, kemst ekki í hálf- kvisti við það. Skal hér bent á nokkur dæmi: I spænska þing- inu birti foringi kaþólska flokksins þann 15. júní ákæru á marxista, þar sem sagt er, að á síðustu 48 klst. hafi þeir brennt til grunna 36 kirkjur og eyðilagt 48 hús og ennfremur, að hinar stöðugu óeirðir hafi þá kostað 269 manns lífið og 1500 hafi særst, og að mikill efnis- legur skaði hafi átt sér stað í hinum 340 verkföllum, sem út höfðu brotist frá því er stjóm- in komst til valda. Til þess að gefa lesendum tækifæri til að sjá framkomu marxistaskríls- ins við eyðileggingu kirkna o. fl., skal hér tekin upp lýsing franska blaðamannsins Pierre- Francois Arminjou, þegar kirkj- ur í Yekla, sem er í héraðinu Murcia, voru eyðilagðar: „Við eyðileggingu kirknanna í Yekla hafa hinir rauðu glæpa- hundar komið fram með dæma- lausri spillingu. Fyrst var kirkj- an Saintes-Especes skemmd, þar sem kommúnistakvennsnifti gengu sérstaklega vel fram í eyðileggingarstarfseminni. Mér er ómögulegt að lýsa því með orðum, hvernig hinir heilögu gripir voru lítilsvirtir og saurg- aðir. Kirkjan La Purissima, kirkja Hins Heilaga Jesú, Erlös- kirkjan, kirkjurnar í Gayentano, San Francisco, San Iuan, Santa Barbara og San Roque, klaust- urkirkjan Conceptionnistes Re- collets og kirkja klaustursspít- alans de la Virgen de Los voru allar eyðilagðar og svívirtar. Hin heilaga kirkja E1 Castillo, sem geymir í kapellu sinni verndardýrðling borgarinnar, ásamt hinu litla íbúðarhúsi að- stoðarprestsins, var algerlega jafnað við jörðu. Kirkjuskraut- ið var svívirt á alla lund. Það var drukkið ur kaieik kirkjunn- ar og trampað á myndum af dýrðlingum, og í hinum f jórum hornum kirkjunnar og í kapell- unni voru framdar hinar gróf- ustu svivirðingar. I kirkjuuni San Francico höfðu um 1000 kommúnistar á einum einasta eftirmiðdegi hinar andstyggi- legustu eftirhermur í frammi eftir helgum siðum. 22 ára gamall maður, er hét Ortuno, ætlaði að reyna að hindra kirkjuspjöllin í La Purissima, varð sakir hetjudáð- ar sinnar að gjalda með lífinu. „Fascisti! Fascisti! æpti skríll- inn úr öllum áttum og ruddist á hann. Með naumindum tókst Ortuno að flýja inn í hús eitt þar nálægt, en hinn örvinglaði húseigandi bað hann fara burtu, því hann kæmi sér í mikil vand- ræði með nærveru sinni. Og hinn ungi maður fór hugdjarfur út á götuna f von um að finna ann- an griðastað, en ekki var hann fyr kominn út en kúla fór gegn- um fót hans. Hann féll niður og var drepinn af hníf stungum, fót- spörkum og grjótkasti hins brjálaða, rauða marxistaskríls. Þarna lá hann lengi dags og spörkuðu margir í dauðan búk- inn. Síðan dróg skríllinn hinn óþekkjanlega líkama út í götu- ræsið, þar sem hann lá allan daginn. Prestinn batt skríllinn á planka og bar um göturnar, rifu af honum klæðin og stungu hann með löngum nálum þar til hann var örendur. Þannig stjórnar „Alþýðufylk- ingin“ á Spáni! Þannig mælir þessi franski blaðamaður og þannig mæla þúsundir annara; t. d. skeði, 4. júní 1936, í þorpi einu í Kata- loníu eftirfarandi atvik: Marxistiskur skríll fór fylktu liði heim til prestsins, tók hann með valdi og batt saman fætur hans. Síðan var hann bundinn aftan í bíl og dreginn um göt- urnar þar til blóðið lagaði alls- staðar úr honum og var loks- ins leystur, nær dauða en lífi. Þá var helt á hann benzíni og Frh. á 3. síðu.

x

Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/388

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.