Valsblaðið - 01.01.1939, Síða 6
6
VALSBLAÐIÐ
Einn hinna fremstu leikmanna, sem
Valur hefir nú á að skipa, er án vafa
Jóhannes Bergsteinssón. Hann mun og
liklega vera sá keppandinn í urvals-
iiði Vals, sem lengst hefir átt ]>ar sæti,
ásamt Hrólfi. í vor munu Jiðin 11
ár síðan Jóhannes komst i úrvalslið fé-
lagsins, þá aðeins l(i ára. Sýnii; það,
hve snemma bar á hæfileikum hans i
knattspyrnii, enda átti hann þá þegar
á bak að sjá glæsilegri knattspyrnu-
braut í IIT. og II. fl. félagsins. Meðal
annars var hann í hinum fræga II.
flokki 1927—1930, sem hvað mestu orði
kom á kappleiki II. aldursflokks.
Jóhannes liefir leikið á fleiri stöð-
um á vellinum en títt er um menn
hér á landi, en það sýnir nokkuð, hve
alhliða og þroskaður Jóhannes er í
íþróttinni. Hann hefir lengst af leikið
og leikur enn miðframvörð í liði Vals
og gerir það með þeirri prýði, að ég
persónulega tel hann fremstan allra
reykvískra knattspyrnumanna, er sýnt
liafa sig á þeim stað. Hann hefir manna
hest vald á likama sinum og bolta-
meðferð hans er þannig, að honum
tekst oftast að koma knettinum á rétt-
an stað. Leikur hans er Jirunginn festu
og leikni yfirburðanna og aðeins mið-
aður við að koma að sem mestu liði,
enda stjórnar hann og skiftir spilinu
vel, en slær ekki um sig með of löng-
um og ónýtum spörkum, eða hringsóli
um sjálfan sig.
Hin ómetanlega reynsla hans á kapp-
leikum, ásamt raungóðri þekki'ngu á
íþróttinni, er hann hefir aflað sér með
vakandi áhuga, gefur honum ávalt gott
innsæí í leikinn, enda var hann tal-
inn sjálfsagður foringi liðsins á velli,
er Frímann Helgason lét af því starfi
á síðastl. sumri.
Jóhannes hefir nokkrum sinnum átt
og á nú, sæti í stjórn félagsins. Starf
hans þar nú er „formaður kappliðs-
nefndar“, en sá maður hefir mest með
val manna í kappliðin að gera.
Iló-
Úr
ársskýrslunni 1938.
I. flokkur A, íslands- og Reykja-
víkurmeistararnir, liafa leikicS
11 leika, unnið 8, jafntefli 3, og
engum lapað.. Skorað 37 mörk
gegn 18.
/. flokkúr 13, varð annar í B-liðs-
mótinu, leikið 3 leika, unnið 2
og tajtað einum. Skorað 9 mörk
gegn 5.
II. flokkur: Unnið 1 leik, jafn-
tefli 3, og tapað 3. Skorað 7
mörk gegn 1(5.
III. flokkur: Vann haustmótið og
4 leika, en tapað 5. Skoraði 11
ntörk gegn 10.
Alls hefir félagið leikið 30 leika,
unnið 15, jafntefli (5 og tapað 9.
Skorað 64 mörk gegn 49. Tekið
])átt i 7 mótum, þar af unnið 3.
Alls hafa 55 menn tekið ])átl í
kappleikjum fyrir félagið, þar af
5 í úrvalsliðunum móti Þjóðverj-
unum.
V\aHsynabuLh.
Ingjaldur Kjartansson, sem lék síð-
ast í II. flokki" Vals 1937, hefir dval-
ið í Kaupmannahöfn síðan í jan. 1938,
við nám. Ingjaldur hefir æft knatt-
spyrnu af kappi, ög kept með II. fl.
K.F.U.M.s Boldklub, — en það félag
varð hið þriðja i röðinni í þessuin
aldursflokki i haust. Einnig hefir hann
kept með skólanum, sem hann stund-
ar nám í, og varð sá flokkur efstur
í skólakepninni, en fór síðan snögga
ferð til Svíþjóðar og lceppti þar. Hlaup
og sund iðkar Ingjaldur lika, með góð-
um árangri, og hlaul bikar i sund-
keppni skólans. Námið stundar hann af
mikilli kostgæfni, og hlaut, nú fyrir
skömmu, 100 kr. verðlaun fyrir iðni
og siðprýði. Næsta sumar fær hann
mánaðar frí, og mun þá koma hingað
til lands. Hann biður að heilsa öllum
Valsúngum, og óskar þeim gleðilegs
nýárs. E.
ÁRSDANSLEIKUR VALS
Ársdansleikur verður hald-
inn 11. febrúar n. k. í Odd-
fellowhöllinni. Er þess vænst,
að sem flestir Valsungar mæti
á þessum eina dansleik, er
haldinn verður á árinu.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Sigurður Ólafsson.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Borðsilfur allskonar.
Bókmerki.
Bókhnífar.
Manschettuhnappar
o. s. frv.
Smíðum einnig
Trúlofunarhringa.
ÓsKar Oíslason
GULLSMIÐU R
Laugav. 4 Sími 2584. Reykjavík.
Verslunin Varmá
SÍMI 45 0 3.
HVERFISG. 84. HVERFISG. 90
i/hatvjöhuh. SmpitLuÁh.uh..
'H.hjdv&œtisvjohuh.. (f/ítnaðuh..
Sœdyoeti o$JL. JSdldþnty o.(l.