Afturelding - 01.07.1943, Page 1
V
Frá
sumarmótinu
á Akureyri.
Föstudagskvöldið, 18. júní, runnu áætlunar-
bílarnir inn á Akureyri, í köldu og hráslagalegu
veðri. Þá kom fyrsti hópurinn, sem var að koma
á sumarmótið, um 50 manns. Á bifreiðarstöðinni
voru margir af Akureyrarvinunum til þess að
taka á móti gestunum. Eftir fáeinar mínútur var
allur liópurinn kominn inn í samkomuhúsið Zí-
on. Þar voru allir lesnir í sundur með nafnakalli
og sérhverjum vísað til vistarveru sinnar. Þeg-
ar bróðir Ramselius stóð fyrir framan söfnuð-
inn með nafnaskrána í hendinni og kallaði upp
eitt nafnið af öðru, brá fyrir ofurlítilli mynd af
því, sem Opb. 20, 11—15 segir að verða muni
á liinum efsta degi. Eins og engum í Zíon á Ak-
ureyri, þetta kvöld, datt í hug að hreyfa hinum
minnstu mótmælum, svo verða engin mótmæli
fundin, þegar dómari lifenda og dauðra kallar
upp nöfnin á hinni efstu stundu. Um átta daga
aðeins voru örlög okkar á Akureyri innsigluð,
en fyrir hvíta hásætinu verða þau innsigluð um
alla eilífð. Frelsið fyrir persónulega trú á Drott-
in Jesúm og þjónustu í kærleika er aðgöngumið-
inn að vistarverunni hægramegin við dómarann
mikla. Matt. 25, 31—40.
Innan stundar var sérhver kominn til síns
heimkynnis, og norðlenzk voraldar-nótt breiddi
sína blessuðu værð yfir þreytta ferðamenn. Næsta
morgun vöknuðum við við úrsvalan dag af norðri,
og dimmur skýjabakki, sem byrgði fyrir mynni
Eyjafjarðar og huldi himin allan, gaf til kynna