Afturelding - 01.07.1943, Page 2

Afturelding - 01.07.1943, Page 2
38 AFTURELDING AFTLRELDING kemur út annan hvern mánuð og verður 70—80 síður á ári. Argangurinn kostax kr. 3,00 og greiðist 1. mal Verð í Vesturheimi 1 dollar og á Norðurlöndum kr. 5,00. I iausasölu kostar blaðið 50 aura hvert eintak. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Eric Ericson. Ritstjórn og afgreiðsla: Hverfisgötu 44, Reykjavík. Slmi 524 2. — Prentsmiðja Jóns Helgasonar. — OTGEFANDI FILADELFIUFORLAGIÐ. — að meira væri í aðsigi. Kuldi og regn hjálpuð- ust til að bursta af okkur ferðarykið fyrsta dag- inn á Akureyri. , Sunnudaginn, klukkan 4, var svo móttökusam- koma. Bróðir Ramselius opnaði samkomuna og bauð alla velkomna, sem þá voru komnir. Hann las 45. Davíðssálm og lagði út af honum. Þar fór hann með okkur um fagran garð, livar mörg og fögur blóm var að lesa. Enn voru ekki allir komnir, en margir komu það kvöld og næstu daga, unz þátttakendur voru orðnir meira en hundrað manns. Trúsystkini okkar frá Isafirði gátu þó ekki komið fyrr en aðfaranótt laugar- dags, því miður. Samgangnaleysi kemur niður á ölhun — einnig hvítasunnufólkinu. Á móttöku- samkomunni 'fannst tvennt skyggja á. I fyrsta lagi: einn gestanna var orðinn veikur. Það var systir að sunnan, sem hafði orðið kalt og virt- ist nú vera búin að fá brjósthimnubólgu. I öðru lagi var mjög ljótt útlit með veður, en það lief- ir ávallt mikil áhrif á svona mót. Á þessari sam- komu var því ákveðið, að allir skyldu þrengja sér inn fyrir auglit Drottins og biðja liann um bót á þessu tvennu. Þá þegar ákölluðu allir Drott- in í brennandi bæn. Eftir bænina höfðu margir orð á því, að þeir hefðu fengið trúarfullvissu um bænheyrzlu, meðan þeir báðu. Daginn eftir, mánudag, kom systirin, sem veik hafði verið, heilbrigð á samkomuna klukkan 4. Kenndi hún aðeins nokkurs máttleysis, sem hvarf þó fljótt. I sama mund og samkoma þessi var að byrja svifti liinum úrsvölu skýjum af himn- inum og geislaflóð sólarinnar helltist yfir bæ og byggð. Það er ekki liægt að lýsa þeim hughrif- um, sem þessar tvær bænheyrzlur, gefnar á sömu stundu, höfðu á trúaða fólkið. Sem einn maður reis allur söfnuðurinn úr sætum sínum og gaf Guði dýrðina fyrir þessar undursamlegu bæn- heyrzlur. — Hélzt síðan óslitin veðurblíða með miklu sólfari allt mótið til enda. Það var því ekki fjarri sanni, sem eyfirzkur bóndi sagði við mig, er hann hafði spurt mig nokkuð eftir Hvíta- sunnuhreyfingunni: „Og svo hafið þið komið ineð sólina og sumarið með ykkur, minnsta kosti liingað í Eyjafjörð“. Ættum við ekki að taka lærdóm af þessu, og biðja Guð þess, að við fær- um alls staðar með sól liins eilífa sumars með okkur, þar sem við förum um bæ og byggð þessa lands á ókomnum árum? Hófst nú mótið með þrem föstum samkomum á degi hverjum, í 8 daga, að laugardeginum und- anskildum; þann dag var tilhö^gunin nokkur önn- ur. Bænasamkomur voru kl. IOV2, biblíulestrar kl. 4 og vakningasamkomur kl. 8. Biblíulestra héldu þessir: Á mánudag: Ás- mundur Eiríksson. Hann gekk út frá Opb. 3, 1—13. Benti hann á, hvernig hvítasunnuhreyf- ingin hefði rutt sér rúm í heiminum. En eftir því, sem hún fengi meiri viðurkenningu, væri hættan sú, að einstaklingarnir kepptu ekki nóg- samlega eftir hinu Andans fyllta lífi og krafti Guðs, eins og brautryðjendurnir hefðu gert. Þá gætu menn staðið uppi dag einn með fræðilega kenningu eina, en kraftinn og reynsluna vant- aði í lífið. Að lokum tók hann dæmi af því, er Kristur vafði saman bókina í samkunduhúsinu í Nazaret og rétti hana að þjóninum. Þannig, sagði Á. E., að við vefðum Biblíuna einhvern- tíma saman í síðasta sinn og réttum hana að þeim þjóni, sem kæmi í stað okkar í þjónustu Guðs ríkis. Við þurftum því að skila af okkur boðun- inni og starfinu í heild, þannig að það væri sönn útlegging á því, sem í Biblíunni, stæði. Þá legði þjónninn, sem af sér skilaði, ábyrgðina, sem felst í þessum orðum, réttilega á herðar þeim sem við tekur: „Minnst þú því hvernig þú tókst á móti og heyrðir, og varðveit það“. Opb. 3, 3. Biblíulesturinn á þriðjudaginn liafði Nils Ramselius. Efni sitt byggði hann að nokkru á Gal. 5. og 6. kap., en fór annars víða gegnum Orðið. Dró hann fram viss frumskilyrði fyrii því, að við næðum sama marki og Páll postuli — jafnt í kenningu og lífi. Guðs börn þurfa að

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.