Afturelding - 01.07.1943, Blaðsíða 3

Afturelding - 01.07.1943, Blaðsíða 3
AFTURELDING 89 frelsast frá lioldinu, sagði bróðir R., ekki siður en frá djöflinum og heiminum. Tók liann að siðustu dæmi af Móse, er liann drap Egyptann. Þar kom fram armur lioldsins, er skilur ávallt eftir sig dauða í staðinn fyrir líf í þjónustu Guðs ríkis. Frelsið í hinni réttu mynd, sem er hið frjó- berandi líf, kemur ekki til sýnis, fyrr en við höf- um dáið frá okkur sjálfum. Þetta er mark Guðs með okkur, hvort sem hann þarf að fórna til þess 40 áriun æfi okkar, eins og var með Móse, eða fáum árum aðeins. Miðvikudag: Eric Ericson. Efni lians var lækn- ing fyrir trú. Hann gekk út frá 2. Mós. 15, 26. Tók síðan fjölmarga staði aðra, einkvun úr Nýja testamentinu og sýndi fram á, að lækningar fyr- ir trú voru mjög áberandi á dögum Krists og í frumkristninni. Dvaldi hann og nokkuð við þann lyfseðil, sem öllum veikum, er trúa á Drottin, er gefinn í Jak. 5, 13—16. Þegar hann liafði lok- ið máli sínu, voru nokkrir sjúkir smurðir og beðið fyrir þeim samkvæmt þessu orði. Manna á milli sögðu sumir frá því seinna, að þeir hefðu fengið bót. Bezt hefði verið, að þeir hinir sömu hefðu vitnað um það á samkomum. Fimmtudag: Birger Ingebrigtsen. Það er norsk- ur hvítasunnubróðir, sem starfar, sem trúboði á vegum norska hersins. Hann dró fram nokkur alhliða og þýðingarmikil atriði frá Guðs Orði, 6em gátu verið holl íhugunarefni fyrir alla trú- aða. Þótt „smurning“ trúarlífsins, eins og hann nefndi það, væri mikil hjá sumum, þá bæri að varast að dæma trúarlíf annarra, sem sýndust ekki hafa eins mikla „smurningu“ í sínu trú- arlífi. Allt bæri að varast, einnig það, sem heyrt gæti undir yfirborðslegt trúarlíf. Eftir dýptinni í öllu andlegu lífi bæri fyrst og fremst að sækjast. Föstudag: Sigmund Jacobsen. Efnið mætti, ef til vill, nefna.: Biblíulegar sannanir fyrir því, að skírn Andans er fyrir alla tíma, með öllmn sömu einkennum og lienni fylgdu í upphafi kristn- innar. Þegar ræðumaður hafði rökstutt mál sitt með mörgum tilvitnunum í Orðið, spyr systir ein, hvort hún mætti gera fyrirspurn til skýr- ingar efninu. Að því lieimiluðu, spurði hún, livort hægt væri að álíta, að menn hefðu lilotið skírn Andans eða fyllingu Andans, hvort orðið sem notað væri yfir hugtakið, ef þeir hefðu ekki tal- að tungum. Jacobsen benti þá á Post. 2, 1—4; 10, 44—48; 19, 1—7. Systirin virtist gera sig ánægða með svarið, enda mun tilgangurinn með spurningunni einkum hafa verið sá, að vekja athygli á tákninu, sem fylgdi skírn Andans í upphafi, af því að margir trúaðir menn virðast blátt áfram óvirða það nú á dögum. Annars voru þau skil gerð efninu, að ekki var hægt að efast um, að ef um sömu Andans fyllingu væri að ræða nú, sem í upphafi, og það vill nú víst eng- inn efast um, þá lilyti lienni að fylgja sama ein- kennið og þá — það er tungutalið. Annars væri ekki um hið sama að ræða. Fleiri komust ekki að með biblíulestra. Aftur á móti komu margir fleiri fram, sem ræðumenn á vakningasamkomunum. Þessir til dæmis: Eric Ericson, Jónas Jakobsson, Nils Ramselius, Hall- dór Magnússon, Sigmund Jacobsen, Óskar Gísla- son, Arnulf Kyvik, Árni Eiríksson, Birger Inge- brigtsen, Kristján Jónsson, Kristín Sæmunds og Ásmundur Eiríksson. Tekin voru ýms efni til meðferðar, sem rúmsins vegna er ekki hægt að minnast frekar á liér. Frjálsir vitnisburðir voru alltaf á hverri vakningasamkomu og tóku þá jafn- an margir til máls. Vitnisburðirnir voru fersk- ir og lifandi, og breiddust eins og sólkögur yfir samkomurnar. Oft stóðu tveir og þrír upp í einu. Þótt oftast væri húsfyllir á samkomunum, liefði aðsóknin átt að vera hundruðum meira, ef hús- rúm liefði leyft það. Á laugardaginn fóru margflestir í Vaglaskóg. Sjá grein annarstaðar í hlaðinu. Klukkan 8 um kvöldið var samdrykkja — kveðjustund nokkurs konar, þótt enn væri einn dagur eftir af mótinu. Mörgum þótti þetta djarft fyrirtæki, þar á meðal þeim, sem þetta ritar. í fyrsta lagi mátti álíta það hæpið, að hægt væri í skyndi að búa borð, svo að vel færi, fyrir á annað hundrað manns. í öðru lagi var það ásetn- ingur allra, sem mótið sóttu, að enginn stund þess skyldi missa marks — allt 6kyldi miða til andlegrar uppbyggingar. Kakan og kaffið var fyrir líkamann — en hvað var þá fyrir andann? Það var spurningin. En systurnar á Akureyri höfðu svör við henni: Þetta hlýtur að verða Guði til dýrðar, því að við höfum unnið að þessu í

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.