Afturelding - 01.07.1943, Page 4

Afturelding - 01.07.1943, Page 4
40 AFTURELDING þeim anda, sem við vitum að Guði er velþókn- anlegur. Á ákveðnum tíma var fólki vísað til sætis við risastórt skeifumyndað borð, þar sem 130 manns skyldi drekka við. Þegar ég leit yfir þetta stóra borð úr sæti mínu og minntist um leið þess, livað systurnar hefðu haft lítinn tíma til undirbún- ings, flaug að mér liugsun, sem ég segi fyrst nú: Skákar ekki skipulagsgáfa systranna okkur bræðrunum hér í drottningarvaldi? Ilér voru engin mistök, enginn stakur strengur, allt með ágætum! Þessvegna snerist kaffidrykkjan fyrr en af vissi upp í brennandi vitnisburða-samkomu og yndislegan sálinasöng. Auk hvítasunnufólks voru gestir úr öllum félögum trúaðs fólks á Akureyri. Samkoman var því Iítið forspjall að uppfylling- unni á orðum Krists: „og það mun verða ein lijörð og einn hirðir“. En það átti víst að fylgja þessum laugardegi til enda, að liafa allar klukku- stundir sínar of stuttar, því að enn liðu svo fjór- ar stundir að enginn vissi af. Laust fyrir klukkan 12 á miðnætti var risið frá borðum, því að klukk- an 12 átti skírn að fara fram upp við sundlaug. Þegar fólkið var að ganga til dyra, heyrðust hér og þar úr mannþrönginni, orð, eins og þessi köll- uð upp: Dýrðleg stund! Bezta samkoman! Tómas efasýkinnar var þegar fyrir löngu horfinn úr hjarta mínu, svo að bann þurfti ekki að kveljast af þessum og þvílíkum orðum. I fám orðum sagt: Eg hekl að okkur hafi verið sýnt það í vöku, þetta lcvöld, sem Gídeon var sýnt gegnum draum forð- um, að kakan, undir vissum kringumstæðum, og þegar lienni er velt rétt, getur liaft meira að segja en herlúðrablástur. (Sjá Dóm. 7, 9—25). Um leið böfðu systurnar, er gáfu okkur kökuna — eða kökurnar, því að margar voru tegundirnar — gefið okkur postullega útleggingu á 1. Kor. 10, 31: „Hvort sem þér því etið eða drekkið, eða bvað sem þér gjörið, þá gerið það allt Guði til ,dýrðar“. Nú var gengið beint upp að sundlaug. Þar voru skírðar tvær ungar stúlkur og gift kona. Tvennt annað hafði beðið um skírn á mótinu, en vegna sérstakra kringumstæðna þurftu þau að hverfa lieim, áður en skírnin gat farið fram. Eflaust taka þessi tvö trúsystkini skírnina heima hjá sér við fyrsta tækifæri, því að hin biblíulega skírn er bvorki bundin við vissan stað eða vissan mann. I þess stað er hún og verftur sátt- máli góðrar samvizku við Guð. I lok mótsins fór svo önnur skírnarathöfn fram, og þegar þetta er ritað, er kunnugt um þriðju skírnaratliöfn- ina, sem stendur fyrir dyrum á Akureyri, eða liefir þegar verið framkvæmd. Það eru þeir tím- ar yfir heiminum í dag, að allir, sem elska Guð, ættu að vera fljótir á sér að gera Guðs vilja, hvort sem það er í þessu efni eða öðrum. 1 dag, ef þér lieyrið lians raust, þá forherðið ekki hjörtu yðar. Næsti dagur var síðasti dagur mótsins — sunnudagurinn. I stað biblíulesturs kl. 4, var nú brotning brauðsins. Um kvöldið var síðasta vakn- ingasamkoman. Hún var lík liinum en öllu lengri, var ekki úti fyrr en á 12 tímanum, en samt voru margir eftir að vitna. Það hefði sjálfsagt mátt lengja mótið úr 8 dögum upp í 16, ef allir liefðu átt að komast að til þess að vitna. En gott er að vita það, að vitnisburðartækifærin til þess að vitna um frelsi sitt í Kristi, bindast ekki við stult sumarmót. Nei, þau eru 365 daga ársins, og sæll er sá, sem notar þau öll til að vitna á einlivern liátt um trú sína á Krist — hvort sem það er gert með orðum eða verkum. Sumarmótið var búið. Næsta dag var farar- tækjunum beint frá Akureyri og heim á leið með góðvini og gesti, því að þar var vitað um eitthvað sem beið, og við getum nefnt annir og skyldu- störf. Allir, sem mótið sóttu, luku upp einum munni um það, að það hefði verið mjög bless- unarríkt frá uppliafi til enda. Ilelztu ástæðuna fyrir því, að svo fjölmennt mót tókst svo ágæt- lega, verðum við að telja þá, að löngu áður en mótið hófst, liöfðu söfnuðirnir, með bréfasam- böndum sín á milli, hvatt alla til að biðja mjög fyrir þessu móti. Það var til dæmis einn vilji allra safnaðanna, að annar dagur hvítasunnu yrði tekinn, sem föstu- og bænadagur. Jafnframt var það brýnt fyrir öllum, sem mótið ætluðu að sækja, að allir kæmu þangað í þeim markvissa tilgangi, að Guðs vilji og Guðs dýrð mætti op- inberast í öllu. Þegar árangur þessa móts er skoð- aður í þessu ljósi, þá ætti okkur öllum, sem mót- ið sóttum, að vera ljóst, að til þess að við fáum áframhaldandi eins dýrðleg sumarmót, þá þurf- um við í framtíðinni að búa okkur eins undir

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.