Afturelding - 01.07.1943, Síða 5

Afturelding - 01.07.1943, Síða 5
AFTURELDING 41 þau og við bjuggum okkur undir þetta. Girðum fyrir það, að nokkur truflun, nokkur heimsandi geti komizt inn í sumarmót þessi, en tónn Guðs Ileilaga Anda samstilli alla fyrir augliti Guðs. Það gerum við bezt með árvakri bæn og sam- stilltum vilja í því að leita auglitis Guðs í öll- um greinum. Kostnaðarhlið mótsins var rúmar 7000,00 kr. En í tveim frjálsum fórnum, sem teknar voru, kom þessi upphæð nokkurn veginn inn. Já, frels- ið í Kristi það nær einnig til peninganna. Það sem á vantaði tók söfnuðurinn á Akureyri á sig. Eftirleiðis mun það verða atliugað, bvort ekki verði hægt að liafa annað fyrirkomulag í sam- bandi við mótin, þar sem kostnaðurinn þurfi ekki að verða svo mikill. Gæti þá komið til greina, livort trúsystur þrjár, sem komu frá Reykjavík og undu glaðar við sitt í tjaldi sínu, og voru ekki upp á neinn komnar á Akureyri, gætu ekki orð- ið lærimæður annarra í því, að njóta blessunar- ríks sumarmóts með litlum tilkostnaði. Trúsyst- ur þessar voru svo státnar, meira að segja, að þær liöfðu töluverða risnu hjá sér, buðu ýmsum góð- vinum sínum í kaffi og kakaódrykkju. Ef þær voru þá spurðar, livar þær liefðu fengið eldfæri, var sama svarið: Við komum með það að sunn- an. Já, þær komu með allt með sér. Ætli þetta væri ekki mögulegt fyrir fleiri en þrjár trúsyst- ur? Það er ársfrestur til að svara spurningunni. Það er ómögulegt að ljúka þessu yfirliti, án þess að þakka trúboðsfélaginu á Akureyri fyr- ir það, að lána okkur samkomuhús sitt, Zíon. Persónulega stórgladdi það mig, að finna, hve rík þakklætistilfinning var hjá öllum hvítasunnu- vinunum til þessa velgerðarfólks okkar og trú- systkina. Þess vegna þökkum við öll á hinn hlýj- asta liátt fyrir húslánið! Söfnuðurinn Filadelfía á ekki síður þakkir skildar fyrir allar fórnir og störf f þágu sum- armótsins og okkar gestanna, sem sóttum mótið. — Iljartans þakkir! Ég enda svo mál mitt með því að vitna í orð mjög liæglátrar, ungrar systur, er sótti sumarmót- ið og naut ríkustu blessunar á því. Hún sagði: „Ekki get ég hugsað mér, að nokkur, sem sótti þetta mót geti látið sig vanta á næsta sumarmót“. Á. E. VEGURINN 0G VEGAMERKIN Söfnu&urinn. [Frh. | Eftir skírnina lá leiðin í samfélag við þá, sem áður voru skírðir og bjuggu á sama stað. Grundvöllur þess samfélags var kenning postul- anna. (Efes. 2,20). Um leið og söfnuðurinn verð- ur til á livítasunnudag, er honmn sniðið ákveðið form með þessurn orðum: „Og þeir héldu sér stöðugt við kenning postulanna og samfélagið og brotning brauðsins og bænirnar“. (Post. 2, 42). Þessi fjögur liöfuðatriði voru eins og fjór- ir hornsteinar, er musteri liins nýja sáttmála, samfélag endurfæddra sálna, hvíldi á. I dýpztu og ósýnilegri merkingu er Jesús dyrnar inn í musterið (Jóli. 10, 9), en í grynnri og sýnilegri merkingu voru dyrnar í gegnum vatnið, skírn- ina. Um leið og maðurinn endurfæddist, inn- skrifast nafn hans í himininn og liann er orðinn meðlimur í allsherjarsöfnuði Guðs. Það er þessi lieildarsöfnuður Guðs, sem Páll talar um í Efes. 5, 22—32. En innan Iieildarsafnaðarins, sem all- ir endurfæddir standa í, án undantekningar, voru ótal minni söfnuðir. Það er ekki ósjaldan, sem við mætum manni, sem heldur því fram, að söfn- uðir — í fleirtölu — séu ekki til, lieldur aðeins heildarsöfnuður Guðs. Þetta er rétt og slétt helm- ingurinn af sannleikanum, enda rekur sú liugs- un sig heldur óþægilega á hiblíulegar staðreynd- ir. Það eru ekki aðeins postularnir, sem tala um söfnuðina í fleirtölu, heldur líka Drottinn sjálfur. í Rómverjabréfinu 16, 3—4 segist Páll ekki „einn votta þakkir heldur og allir söfnuðir lieið- ingjanna“. I sama kapítula, 16. versi, segir hann: „Allir söfnuðir Krists senda yður kveðju“. I I. Kor. 16, 19 talar Páll um söfnuðina í Asíu. Hann segir: „Asíusöfnuðirnir biðja að lieilsa yður, Ak- vílas og Priska, ásamt söfnuðinum í liúsi þeirra, hiðja kærlega að heilsa yður“. í Gal. 1, 22 er talað um söfnuðina í Júdeu, í fleirtölu, einnig í Sýrlandi og Kilikíu. (Post. 15, 41). Loks má benda á það, að Drottinn sjálfur talar um liina sjö söfnuði við Jóhannes og sérgreinir þá með nöfnum, meira að segja: „Stjörnurnar sjö“, segir hann, „eru englar þeirra sjö safnaða og ljósa- stikurnar sjö eru sjö söfnuðir“. (Op. 1, 20). Síð- an margendurtekur Drottinn þessi orð: „Hver,

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.