Afturelding - 01.01.1950, Blaðsíða 10
AFTURELDING
liefur setið hér og handleikið skammbyssuna allan tím-
ann, sem samkoman hefur staðið yfir. Hann hefur verið
að hugsa um að fremja morð mjög bráðlega. Guð hefur
opinberað mér að hann sé hér staddur — og nú sneri
hann sér að manninum persónulega — og þú verður að
koma hingað og frelsast. Guð vill losa þig við hatur
þitt og morðhugsanir.1
Maður einn reis þá upp úr sœti sínu, gekk upp að
ræðupallinum og þar féll han á kné. Síðan reis hann á
fætur, tók skammbyssu upp úr vasa sínum, sýndi hana
samkomunni og sagði:
„Ég hafði ákveðið með sjálfum mér að í kvöld skyldi
ég fara heim til mín og skjóta konuna mína og fjögur
börn, sem við eigum.“
í frásögn séra Olsons segir ennfremur: „Telpa frá
Virginía, sem bæði var blind og heyrnarlaus, fékk lækn-
ingu. Hún bað síðar borðbænina við máltíðir og gekk
oft um samkomutjaldið og sýndi fólki að hún bæði heyrði
og sá.
Nokkrir, sem höfðu æxli, urðu heilbrigðir í allra aug-
sýn. Liðamót, sem höfðu verið stíf, urðu aftur eðlileg.
Kona nokkur kastaði frá sér hækjum sínum og dansaði
um á ræðupallinum og hrópaði: Lítið á mig! Þetta hef
ég ekki getað gert í mörg ár. Guð hefur læknað mig.“
lllir andar voru reknir út. Stundum æptu þeir hástöf-
um um leið og þeir fóru.
Mörg smábörn voru losuð við illa anda, sem höfðu
náð tökum á þeim, og gátu síðan bæði skilið og talað.“
Að lokum segir séra Olson:
„Já, á þennan veg mætti lengi halda áfram að segja
frá hinum dásamlegu hlutum, sem Frelsari vor gerir,
þegar hann finnur verkfæri, sem er í senn nægilega auð-
mjúkt og viljugt til að gefa sig að fullu og öllú honum
á vald. Mætti hann blása oss öllum því í brjóst að Ieggja
frá landi nú á þessum síðustu dögum, og bjóða oss til
þjónustu, svo að vér gætum orðið verkfæri í hans hendi,
til þess að hjálpa hinu líðandi mannkyni og til þess að
útbreiða ríki hans.“ /• G.
Dagrenning, 23. hefti 1949.
GULLKORN DAGSINS.
Lífseigindi kristins manns er lestur Guös orSs. Þaö,
sem húsiö er fyrir manninn, haglcndiö fyrir dýriö, hreiör-
iö fyrir fuglinn, jjalliö fyrir steingeitina, og vatnið fyrir
jiskinn, þdð er hin Heilaga Ritning fyrir sál hins trúaSa
manns. Lúter.
Hatriö er einhver lœgsta hneigö mannshjartans. I því
merki deyja manninum öll Ijós vonarinnar.
Ótti Drottins er upphaf þekkingar, vizku og aga fyrir-
1 íta afglapar einir. Orökv. 1, 7.
10
Þrjár írásagnir
Þegar við höfðum samkomu hér (á Sauðárkróki) ný-
lega, sem oftar, var ég eins og oft áður að andvarpa til
Drottins um að Hann fyrir sinn blessaða Heilaga Anda
gæfi mér lifandi Orð til þess að bera fram. Og dýrð sé
Guði Hann er trúfastur.
Eins og svo margir þekkja sem boða Guðs Orð sam-
kvæmt köllun og í trausti á hjálp og aðstoð Heilags Anda,
þá verður oft Orðið skyndilega „lifandi“.
Það er eins Ijósi sé varpað yfir það og við finnum að
Drottinn er að gefa lifandi „Manna“ frá himnum, himn-
eskt brauð gefið fyrir þessa stund. Með því að það, sem
ég nú ætla að segja frá, hefur haldið áfram að blessa mig
og verið lifandi í hjarta mínu, þá finn ég mig eiga að láta
Aftureldingu bera brauð þetta úr fleirum til blessunar.
Það sem varð lifandi fyrir mér þetta sinn voru þrjár
vel þekktar frásögur. Mun ég reyna að gera ykkur, sem
þetta lesið, hluttakandi með mér í þeirri blessun sem ég
sjálfur hlaut frá þeim.
Fyrsta frásagan er um það, þegar Jesús læknaði menn-
ina tvo, sem haldnir voru af illu öndunum. Matt. 8.
28—34.
Þegar Jesús kom, J)á æptu illu andarnir móti honuin.
Þeir skelfdust komu hans og vildu forðast hann. Þetta
er svo líkt því sem margir gera í syndinni í dag.
Þegar Jesús kemur. „Hann sem kom til þess að leita
að hinu týnda, til þess að frelsa það“. Þegar hann kemur
og menn heyra óminn af kallandi, kærleiksríkri rödd
Hans þá æpa þeir í hjörtum sínum til þess að forðast
áhrif Guðs. Þeir reyna með innantómu skvaldri að úti-
loka áhrif Heilags Anda og vita ekki hvað til síns friðar
heyrir, fremur en Jerúsalem forðum. Vita ekki að e. t.
v. er hér um að ræða þeirra eina tækifæri til þess að
losna úr fjötrum syndarinnar fyrir tíma og eilífð.
Þess vegna, „í dag ef þér heyrið raust Hans þá for-
herðið ekki hjörtu yðar“. Hebr. 3. 7.—8. Gætið þess að
þér afbiðjið ekki þann sem talar, þ. e. Heilagan Anda.
ITebr. 12. 25. Eftirtektarvert er það einnig við þessa frá-
sögn að þegar Jesús hafði læknað mennina tvo, þá fór
öll borgin út til móts við Jesúm. Ekki lil þess að bjóða
Hann velkominn, heldur til þess að biðja hann að fara
burt úr héruðum þeirra.
Einnig þetta er svo líkt mönnum í dag. Þegar einn eða
annar af þjónum Drottins kemur til einhvers staðar þar
sem synd og andlegur dauði ríkir, kemur til þess að boða
Orð Krossins, sem er kraftur til hjálpræðis hverjum þeim
sem trúir. Ef svo einn eða annar lætur frelsast, þá byrja