Afturelding - 01.06.1954, Side 11

Afturelding - 01.06.1954, Side 11
AFTURELDING Áður krypplingur, nú kröftugur lækningaprédikari. Lorne Fox heitir trúboffi einn í Araeríku. Hann er frá Killom, Alberta, Kanada. Þegar hann var lítill drengur, var hann ekki aðeins krypplingur, heldur hafði hann auk þess marga fleiri sjúkdóma, sem læknar sögðu að væru ólæknandi. En þá var það á samkomu einni hjá dr. Price að hann varð alheilbrigður á einu augabragði. Fox hafði fengið tónlistargáfuna í vöggugjöf. Þessi gáfa var afburðamikil hjá honum. Fimm ára gamall setti hann heimsmet, er hann lék stykki eftir Beethoven á píanó. Eftir það tóku veikindin hann. Hendur hans krepptust líka, sem aðrir hlutar líkamans. — F.n þá kom krafta- verkið. Faðir hans var prédikari. Og Fox varð það einnig, en þó eiginlega á móti sínum eigin vilja, því að hann taldi sér trú um það, að hann væri of málstirður. Það var svo einu sinni, að bræðurnir í söfnuðinum þvinguðu hann til þess að tala á samkomu í forföllum annars nianns. Þá var hraulin mörkuð. Síðan kom dagurinn ,er hann fór að biðja fyrir sjúkum. Var það þá jafnan, að hinir sjúku féllu í gólfið um leið og hann lagði hendur sínar yfir þá. Margir læknuðust alltaf. Nú hófst ofsókn og mótstaða gegn Fox, jafnvel frá hans eigin trúbræðrum, Hvítasunnumönnum. Hann bað því Guð að stöðva það, að hinir sjúku féllu í gólfið, þeg- ar hann bæði fyrir þeim. Hann fékk jiað, en um leið tók fyrir lækningamáttinn og brátt kom þar, að sjúkir hættu að læknast fyrir bænir hans. Þannig liðu nokkur ár. Þá mætti Guð honum að nýju. Sömu einkennin komu nú aftur í Ijós, að fólkið féll í gólfið um leið og hann lagði hendur yfir það og bað fyrir því til lækninga. Þetta var fyrir þremur árum. Þegar Fox bað fyrir sjúkum hné næstum hver einasti maður niður í gólfið undir krafti Guðs Anda, eins og fólk hefði orðið fyrir rafstraumi. Eftir tíu til tuttugu mínútur reis fólkið upp aftur, einn og einn, án þess að nokkur hvetti þá eða hjálpaði þeim. Jafnan stóðu tveir bræður fyrir aftan þann, sem beðið var fyrir, svo að hann félli í arma þeirra. Áklæði var ávallt látið yfir konur, sem féllu í gólfið. Fox hefur frá fleiri og merkilegri sýnum og opinber- unum að segja, sem Guð hefur sýnt honum, bæði um himininn og víti, en við höfum heyrt frá nokkrum öðrum trúboðum. Lorne Fox segir svo frá: „Eg minnist þess mjög vel, þegar Drottinn Jesús kom inn í herbergið til mín, eitt sinn, síðari hluta dags. Lfm leið og hann sté inn í her- bergið sagði hann: ,Þú manns-son! Nú eða aldrei! Hvað velur þú?‘ í mörg ár hafði ég farið miðlunarveginn, vildi ekki hneyksla neina. Vegna þess hafði ég beðið Guð, að hann tæki fyrir það, að hinir sjúku féllu í gólfið. Ég fékk það, sem ég bað um, en um leið tók fyrir lækningakraftinn.“ Kvöldið áður en Jesús birtist honum í herbergi hans, hafði hann haft samkomu í mjög stóru samkomuhúsi í borg einni í Kanada. En á samkomu jiessa hafði ekki komið nema um 250 manns. Enginn vitnaði heldur um það, að hann hefði læknazt! IJans nýja starfsaðferð hafði ekki fengið viðurkenningu hjá Guði! „Mér leið þannig,“ sagði Fox, „eins og minn innri maður væri orðinn fársjúkur. Sál mín var í baráttu. Ég her sjálfur alla ábyrgð á því, að ég sveik leiðbeiningu Drottins á þessum tíma. Ég sagði við Jesúm. að ég rnegn- aði ekki meir, kraftur minn væri þrotinn Ég sagði hon- um að ég hefði ekki þrek til að sjá biðröð sjúkra manna fyrir framan mig lengur. Ég veit nákvæmlega á hvaða augnabliki Jesús kom inn í herbergið mitt. Ég veit á livaða mínútu hann kom að rúminu til mín. Um leið færði ég mig lítið eitt til hliðar, til að gefa honum rúm við hlið mína. Ég veit og mau stundina, þegar hann rétti hönd sína út og lagði hana yfir hönd mína og sagði: .Sonur minn! Nú eða aldrei! Hvað velur þú?‘ Meðan ég beið jiarna hikandi í nærveru hans, hélt hann áfram að tala við mig. Hann sagði við mig, að hann mundi úthella Anda sínum í stórurn stíl og sálir mundu hjargast Jmsundum saman. Það mundi verða múgvakning fyrir orð fagnaðarerindisins og gegnum hreinsandi kraft blóðs hans. Það mundu jafnhliða verða tímar tákna, undra og kraftaverka. Það mundi verða síðasta úthelling Andans í heiminum til þess að frelsa synduga mcnn, og til að undirbúa Guðs fólk til að mæta Jesú í skýjunum! Ég lokaði augum mínum og Guð gaf mér sýn: Eins langt og ég sá, leit ég fólk liggja fallið á jörðinni undir krafti Guðs Anda. Ég spurði: ,Drottinn, hvað þýðir J>etta?‘ .Sonur minn, þessir eru þeir, sem þú átt eftir að leggja hendur þínar yfir með bæn um lækningu og lausn frá Satans valdi og ánauð. Það eru einnig jieir, sem þú átt eftir að leggja hendur þínar yfir til Jiess að þeir fái 43

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.