Barnablaðið - 01.12.1897, Page 3
Barnablaðið.
1. ár.
Reykjavík, desember 1897.
Nr. 1.
Til kaupenda.
egar jeg stofnaöi Kvennabladid fyrir
3 árum, og sá, hvað því var vel tek-
kom mjer til hugar, að þörf væri á að
koma líka á fót blaði handa börnum og
unglingum. En af því jegvissi ekki, hvaða
áframhald kynni að verða á vinsældum og
kaupendaljölda Kvennablaðsins, vildi jeg
ekki ráðast í meira að sinni, en sjá hverju
fram færi.
I fyrra hafði jeg þetta líka í huga, og
var þá svo langt komin, að jeg hafði hugs-
að mjer nafn og stærð blaðsins. En lengra
komst það þá ekki, og var það af því, að
jeg vildi ckki bæta ofan á þann blaðafjölda,
sem þá var, og von var á.
Nú hafa ýmsir kaupendur Kvennablaðs-
ins skrifað mjer, og hvatt mig til að halda
út þess konar blaði f sambandi við Kvenna-
bladið, því bæði þeir og aðrir vildu gjarna
fá eitthvað að lesa handa börnum sfnum
og þeir vildu fúslega borga nokkra aura á
ári fyrir þann viðauka.
Jeg hefi því ráði/.t í, að gefa út þetta
blað. Jeg vil fegin stuðla að því eftir mætti,
að kaupendur Kvennablaðsins, og aðrir sem
vildu, gætu fengið hentugt lesmál handa
bönum sínum kostnaðarlítið.
Eins og lesendurnir sjá heitir það
BARNABLAÐIÐ, og vona jeg það mæli
sjálft með sjer. Fyrst um sinn kemur það
ut einu sinni í mánuði, hálf örk í senn, og
verður scnt lit með Kvennablaðintt.
Barnabláðið flytur skemmtisögur og ýms-
ar skemmtandi og fræðandi frásögur með
myndum, og ýmislegt fleira, sem til saklausr-
ar dægrastyttingar má verða. Efni og orð-
færi mun verða við hæfi barna á ýmsu reki..
Verð Barnablaðsins er 50 aurar um ár-
ið, fyrir þá sem kaupa Kvennablaðið, en 75,
aur. fyrir aðra. I Reykjavík kostar blaðið'
að eins 60 aura fyrir þá sem ekki kaupa
Kvennablaðið.
Fyrsta tölublað Barnablaðsins er nú.
sent út með nóvemberblaði lCventiablaðsins,
og er það blað fyrir desembermánuð. I því
hcfir ekki vcrið hægt að hafa neinar mynd-
ir, af því það varð svo síðbúið, að prentun
þeirra hefði seinkað svo litkomu þess, að-
það hefði ekki orðið sent út um land með'
þessari síðustu póstferð á árinu.
Þetta blað verður sent öllum kaupend-
um Kvennablaðsins. og vil jeg vinsamlegast
mælast til, að heiðraðir útsölumenn Kvenna-
blaðsins láti mig vita með fyrstu póstferðum
ef þeir hafa ekki eða gjöra sjer ekki von
um jafnmarga kaupendur að báðum blöð-
unum árið 1898, og einstaka kaupendur
Kvennablaðsins bið jeg einnig að láta mig
vita, af þeir kaupa ekki Barnablaðið. Þeir
sem engin skeyti gera nijer, álít jeg að kaupi
eða hafi kaupendur að báðum blöðununi,
og held áfram að senda þeim jafnmörg cin-
tök af þeim báðum.
Um borgun og uppsögn Barnablaðstns
eru sctt sömu skilyrði og gilda um Kventia-
blaðið.
Jeg vona svo góðs til kaupenda Kventia-
blaðsins, sem hafa sýnt mjer sjerstaka vel-
vild, að þcir taki einnig vel á móti Barna-
blaðinu og láti það ekki gjalda þess, að það
er lítið í fæðingunni. Jeg mun gjöra mjer
allt far um að gera það svo vel úr garði,