Alþýðublað Hafnarfjarðar - 19.12.1955, Blaðsíða 3

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 19.12.1955, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR 3 MTNNINQftR - § JÓLIN 1913 Allir Hafnfirðingar kann- ast við Gísla Sigurgeirsson fyrrv. verkstjóra, enda er hann fæddur og uppalinn hér í bæ, og hefur alið hér ailan sinn aldur. í eftirfar- andi þætti segir Gísli frá reijnslu, er hann hlaut ung- ur maður, og haft hefur var- anieg áhrif á viðhorf hans til iífsins. Vorið 1913, þegar Runólfur sál. Þórðarson organisti varð að láta af störfum sem organisti við Garðakirkju sökum veikinda, þá sótti ég um það starf og var ráð- inn organisti við kirkjuna. Eg fann það þá, að ég var ekki þessu starfi vaxinn, hvað menntun snerti, en hugsaði mér að auka á þekkingu mína í þeim efnum, enda þá aðeins 20 ára gamall. Um haustið fór ég svo að æfa söngflokk kirkjunnar eftir beztu getu, og eftir ósk séra Árna Björnssonar, er þá var nýtekinn við Garðaprestakalli, fór ég að æfa hátíðasöngva séra Bjarna Þorsteinssonar. Var nú æft af kappi jólasöngvar og hátíðasvör. Þetta sumar var Fríkirkjan í Hafnarfirði byggð, og fór vígsla hennar fram þann 14. des. Þann dag hljómuðu kirkjuklukkur í fyrsta sinn í Hafnarfirði og köll- uðu íbúana til guðsþjónustu. Organisti í hinni nýju kirkju var Friðrik Bjarnason tónskáld, og hafði hann æft fjölmennan kór fyrir vígsluna og jólahátíðina. Um þetta leyti er langt komið söngæfingum hjá mér fyrir jóla- hátíðina, en þann 17. des. er söng æfing hjá mér í Gamla barnaskól- anum, þar sem nú er Suðurgata 10, en þar fórú æfingar fram fyr- ir Garðakirkju. Undanfarna daga hafði ég verið hálflasinn. I mér var einhver ónotahroll- ur og skjálfti, og mér fannst alls staðar kallt, þar sem ég kom. Að æfingu lokinni, um kl. 10—11 um kvöldið, þegar ég var á leið heim, var ég var við, að eldur var uppi einhvers staðar í bæn- um. Brunalúðrarnir gjalla og kalla alla verkfæra karlmenn í bænum til starfa. Mér fannst ég verða að fara, enda þótt ég væri svona lasinn. Þegar ég fór að gæta betur að, kom í ljós, að Böðvarsbræðrabúðin, þ. e. hús- ið Strandgata 50 eins og það er nú kallað, er að brenna. Ég er við bruna þennan að bera sjó og færa til vörur o. fl., þangað til tekizt hafði að ráða niðurlögum eldsins, en það var um kl. 2 um nóttina. En þegar ég kem heim er ég orðinn heldur aumingja- legur, og er ég hef mælt í mér hitann, kemur í Ijós, að hann er 41°. Næsta dag er svo læknis vitjað, og segir hann mig vera kominn með brjósthimnubólgu. Er nú ekki að orðlengja það. Ég ligg þarna með ofsahita, óþol- andi takverk og fyrirsjáanlegt er. að ég verð ekki kominn á fætur fyrir jól, hvað sem öðru líður. Ég ætla ekki að lýsa hugsunum mínum daga og nætur fram til blessaðra jólanna. Nótt og dag var ég að hugsa um kirkjuna í Görðum og jólasönginn. Dagarn- ir líða. Hitinn er alltaf um 39 til 40°. Nú geri ég boð fyrir Jóel Ingv- arsson skósmíðameistara, en hann var einn af kórfélögunum og fer að ráðgast við hann, hvað gera skuli, því að hann var sá eini, er ég í augnablikinu sá lík- legan til að leysa þennan vanda fyrir mig. Varð það svo að ráði, að liann spilaði fyrir mig og stjórnaði söngnum um hátíðirn- ar, en hátíðasöngvar Bjarna Þorsteinssonar voru ekki sungn- ir þar þessi jól, og ég held að þeir hafi aldrei verið sungnir í Gísli Sigurgeirsson Garðakirkju eða Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði síðan, nema þá að mjög litlu leyti. Nú kveið ég fyr- ir jólunum, en áður höfðu þau verið mér mikið tilhlökkunarefni. Ég var í góðum foreldrahúsum og foreldrar og systkini vildu allt fyrir mig gera til að létta mér byrðina. Móðir mín flutti legubekk inn í herbergi mitt og vék ekki frá mér nótt eða dag, og vinur minn, Jón Einarsson, sat hjá mér öll- um stundum, þegar hann var ekki við störf. Svo komu blessuð jól- in. Klukknr Fríkirkjunn- ar sendu í fyrsta sinni á jólum hljóma sína út yfir Hafnarfjörð. Ég hlustaði á þá hljóma í hrifningu, en í stað þeirrar gleði er þeir undir öðrum kring- um stæðum hefðu vakið í huga mér, þá grét ég nú. Mig langaði svo til að vera frísk- ur og geta verið við aftansönginn -ý í Garðakirkju. Ég bað guð að gefa mér þrótt, svo að ég gæti ^v sem fyrst komizt á fætur og tek- js ið til starfa. . vv Aðfangadagskvöldið líður. Jól- \ in líða. Mér batnar ekki sjúkdóm- urinn, og á milli jóla og nýárs kveður Þórður læknir Edilons- son upp úr með það, að skennnd sé komin í annað lungað. Ég er mjög veikur um nýárið og á ann- ^ an í nýári er ákveðið af læknin- \ um, að ég verði að fara á heilsu- hælið að Vífilsstöðum, og kveðst hann þegar vera búinn að útvega hælisvist fyrir mig, og eigi ég að vera í herbergi með ungum pilti af Vestf jörðum. Einhvern veginn ^ hefur þessi ákvörðun um hælis- <é vist þau áhrif á mig, að næstu nótt sofna ég ekki dúr, og mér leið afar illa. Alls konar hugsan- >v ir flugu um huga minn. Hinar 'v glæstu vonir, sem ég hafði gert mér um lífið voru fallnar í rúst. Ég fann það, að ég myndi aldrei verða organisti í Garðakirkju framar. Mér fannst, að allir myndu verða hræddir við mig, forðast mig, þar sem ég væri komirin með berkla, enda var litið til slíkra sjúklinga öðrum augum fyrir rúmum 40 árum heldur en gert er í dag. Þar sem ég áður sá ljós í öllu og alls stað- \ ar, fannst mér nú komið myrkur, 'v myrkur vonleysis og vanmáttar. 'v Morguninn, sem ég átti að fara A á Hælið, kom Þórður læknir til mín, en hann kom á hverjum degi alla mína legu. Hann var glaður og reifur að vanda og spyr hvernig líði. Móðir mín segir eins og er, að líðan mín sé mjög bág- jt borin. Segir læknir Jrá að bata- von sé minni, ef leiðindi setjist að sjúklingi og telur því bez.t, að ég verði kyrr heima og sjá svo til hverju fram vindí. Verður þetta að ráði. Eru all- ar rúður í glugga herbergis míns (Framhald á bls. 5) (jleiiley jcl! Farsælt nýár! Þökkum viöskiptin á liðna árinu. Olíufclagið h.í. (jleliiey jci! Landssmiðjan GLEÐILEG JOL! Iðnaðarmannafélag Hafnarfjarðar. ' ■ >»» '■ ■■ . » ■'■p !'A : ■"■■■: .'■:' '■■■■;; ; í ■;:.■;;■■ , ■'■■■■'■.v; i ■. V • ; V* HAMARSKOTMOL ÁRIÐ 1884. A miðri mijndinni sést Böðv- arsbræðrabúðin, sem getið er um t grein Gísla Sieur-

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.