Alþýðublað Hafnarfjarðar - 07.04.1962, Side 3
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
3
S
4
I
í
i
i
enda leggux- höfundur áherzlu
á lága byggð við Strandgötu.
Dómnefndin telur nýtingu þessa
of lága, og þar af leiðandi of
fá bílastæði. Staðsetning opin-
berra bygginga er góð, og út-
sýnis- og veitingastaður syðst á
svæðinu er vel og skemmtilega
leyst.
Höfundur hefur tekið liæfi-
legt tillit til varanlegra mann-
virkja við Strandgötu, en ekki
gert neina tilraun til endurbóta
a útliti byggðarinnar að hinni
nýju hafnargötu.
Gerð er ráð fyrir mikilli aukn-
nigu hafnarmannvirkja meðfram
ahri strönd hafnariirnar. Fram-
an miðbæjarkjarnans eru ráð-
gex-ð vöruhús og flutningaskipa-
afgeiðslur, sem þá væru á nán-
Um tengslum við hann. Séð er
fyrir möguleika á tengslum
hafnarinnar með sérstakri um-
ferðaræð framan Strandgötu.
2. VERÐLAUN —
30 ÞÚSUND KRÓNUR
Höfundur: Ormar Þór Guð-
nmndsson, arkitekt. Aðstoðar-
maðúr: Ulrich Stahr.
Höfundur hefur séð vel fyrir
aðalumferðaræðum. Hann legg-
Ur nýja hafnargötu á uppfyll-
mgu og notar núverandi Strand-
gótu sem göngugötu í miðjum
bæjarkjarnamim. Breikkuð Lækj
argata tengir miðbæinn við aust-
Urhverfin.
A svæðinu að Læk gerir höf-
undur ráð fyrir byggingum með
ca. 30.000 m2 gólffleti, sem
llægja myndi bæjarþörfum 15.
000 manna byggðar. Bílastæða-
þörf slíkrar byggðar er nálega
420 bílastæði, en höfundur ger-
ú' grein fyrir nálega 300 bíla-
stæðum. Nýtingin á svæði þessu
nxeð Uppfyllingu er ca. 0,6. —
Uppbygging miðbæjarkjarnans
°r allgóð, og gerir höfundur til-
lögu að byggingum að hinni
n)'ju hafnargötu, sem lokar fyr-
ú' hinar leiðu bakhliðaT‘ bvgg-
úrgainga Strandgötuna í dag.
Staðsetning ráðlmss er góð,
cn staðsetning 3ja hæða álm-
nnnar mjög vafasöm. Höfundur
befur tekið hæfilegt tillit til var-
anlegra mannvirkja, á svæðinu.
Ekki eru gerðar neinar ákveðn
ar tillögur um aukningu liafn-
|u'mannvirkja, aðrar en smábáta-
böfn, en land framan hinnar
uýju hafnargötu er ætlað sem
•ski úðgarðsbelti með göngustíg-
um og svæðið því ekki nýtilegt
fyrú' hafnármannvirki.
3- VERÐLAUN —
20 þúsund krónur
Höfundur: Þorvaldur S. Þor-
GÚdsson, arkitekt. Aðstoðar-
menn: Per Iversen, Stephan
aPpel, Björn Skánes.
Tenging iðnaðarsvæða 1101'ð-
au °g sunnan hafnarinnar um
handgötu er mjög óheppileg,
ýu höfundur byggir að öllu leyti
a btrandgötu sem umferðaræð
Uxiðbæjarins. Hann gerir góða
Dein á skiptingu bæjarlandsins
að teugiugu bæjarhlutanna. Höf
'Uidur leitast við á skemmtileg-
" hatt að létta á umferð um
tiandgötu með all stórum bif-
Gf astæðum beggja vegna
TILKYNNING
FRA
Sjovatryqqi
aqíslands
Sjóvátryggingarfélag íslands hf. tilkynnir hér með, að hr. kaupmaður
Valriimnr Vongr sem um áratugaskeið hefur haft með höndum
umboð vort í Hafnarfirði hættir störfum fyrir oss frá og með 1. apríl.
Um leið og vér
færum hr.
Valdimar Long
þakkir fyrir ágætt
og heillaríkt starf,
viljum vér
tilkynna að:
Sjóvátryggingarfélag íslands h.f. hefur nú opnað
umboðsskrifstofu að Strandgötu 25, Hafnarfirði,
á vegum lögfrædiskrifstofu Árua Grétars
Finn§souar og mun Jóhann Petersen annast
tryggingarstörfin
Óskum vér þess, að heiðraðir viðskiptamenn vorir snúi sér til hinnar nýju
skrifstofu vorrar hér eftir.
Skrifistofan cr opin
iilla virka daga frá kl. 10—12 f. h. og kl. 2—5 e. h.,
nema föstudaga til kl. 7 e. h. og
laugardaga kl. 10—12 f. h.
Sínii skrifstofunnar er 51177
SjóvátrgqqiEMaq Islands
Tilkyimiiig: frá umboði
¥aldimar§ Long:
Með skírskotun til ofanritaðrar tilkynningar Sjóvátrygg-
ingarfélags Islands hf., vil ég undirritaður þakka félaginu
langt og mjög ánægjulegt samstarf. Um leið vil ég þakka
viðskiptamönnum félagsins, sem samskipti hafa átt við um-
boð mitt, einstaka vinsemd og háttvísi í allri framkomu,
fyrr og síðar.
Hinum nýja umboðsinanni félagsins hér, hr. lögfræðingi
Árna Grétari Finnssyni óska ég alls velfarnaðar í starfinu
og að viðskiptamenn Sjóvátryggingarfélags íslands hf., láti
hann njóta jafn traustra og ánægjulegra samskipta og um-
boð mitt hefur jafnan orðið aðnjótandi hjá þeim.
Hafnarfirði 31. marz 1962.
Valdimar Long.
Feimnismál íhaldsins
(Framhald af bls. 4)
ar liennar rætist. Þess vegna
mun liún styðja A-listann í
komandi kosningum, því sigur
hans, er sigur íþróttahússins,
sigur hugsjóna hafnfirzkrar
íþróttaæsku.
kjarnans, sem tengist Reykja-
víkurvegi að norðan og útvíkk-
aðri Lækjagötu að sunnan.
U ppby gging miðbæ j ark jarn-
ans vestan Strandgötu að sjó er
athyglisverð, og samband byggð
arinnar og svæðisins sunnan
Lækjar og fjarðarins frumlegt
og skemmtilegt.
Hæfilegt tillit er tekið til
varanlegra mannvirkja á sam-
keppnissvæðinu.
All víðtæk grein er gerð fyrir
nýtingu hafnarinnar. Ráðgerð
er aukning hafnarbakka til vest-
urs frá núverandi uppfyllingu
norðan hafnarinnar. En aðal-
aukningin er þó lögð sunnan
fjai'ðarins, þar sem all náin grein
er gerð fyrir skiptingu svæðis-
ins. Hinir tveir hafnarhlutar eru
þó algjörlega leystir úr tengsl-
um hvor við annan með því að
byggja miðbæjarkjarnann alveg
fram í höfnina.
Aðalfundur
Kvenfélags Alþýðuflokksins í Hafn-
arfirði var haldinn mánudaginn 19.
marz og var fjölsóttur. Fornraður fé-
lagsins flutti skýrslu um starf félags-
ins á liðnu ári og hafði það verið
hið blómlegasta. Fjöldi nýrra félaga
hafði gengið inn á árinu.
Mikill sóknarhugur var í konunum
á fundinum og ætla þær ekki að láta
sitt eftir liggja, til þess að sigur
A-listans verði sem glæsilegustur í
vor.
Stjórn félagsins var öll endurkjörin,
en hana skipa: Þórunn Helgadóttir,
formaður, Svanfríður Eyvindsdóttir,
varaformaður, Sigríður Erlendsdóttir,
gjaldkeri, Guðrún Guðmundsdóttir,
ritari og Þuríður Pálsdóttir meðstjórn-
andi.
V.k.f. Framtíðin
Aðalfundur Verkakvennafél. Frarn-
tíðarinnar var haldinn sl. þriðjudag.
Stjórnin var öll endurkjörin, en hana
skipa: Sigurrós Sveinsdóttir, formað-
ur, Málfríður Stefánsdóttir, ritari,
Halldóra Bjarnadóttir, fjármálaritari,
Guðríður Elíasdóttir, gjaldkeri, Guð-
björg Guðjónsdóttir, varaformaður.
Varastjórn: María Jakobsdóttir,
Ilalldóra Jónsdóttir og Kristín Magn-
úsdóttir.
Trúnaðarráð: Sigríður Björnsdóttir,
Kristín Þorsteinsdóttir, Hildigunnur
Kristjánsdóttir og Elín Kristjánsdóttir.
Dagheimilisnefnd er sú sama og
áður og er formaður liennar Sigríður
Erlendsdóttir.
A fundinum var samþykkt að
i hækka ársgjaldið til félagsins úr kr.
| 100.00 í kr. 200.00.
„Klcrkar I klípu*‘
(Framliald af bls. 4)
er fyrsta hlutverk hennar, og
lofar það góðu í framtíðinni.
Sigurður Kristinsson leikur bisk-
upinn, frænda Penelopu. Leik-
ur Sigurðar er látlaus og kemst
hann sæmiléga frá hlutverkinu.
Sverrir Guðmundsson leikur
þýzkan strokufanga og Gunn-
laugur Magnússon leikur ensk-
an sergeant. Eru þetta lítil hlut-
verk, og gera þeir þeim allgóð
skil.
Fyrir þessa leiksýningu á því
Leikfélag Hafnarfjarðar skilið
beztu þekkir, og ef einhver eig-
inmaðurinn eða eiginkonan er
í fýlu nú eða á næstunni ætti
betri mótparturinn bara að taka
maka sinn með sér á þennan
gamanleik og mun þá öll fýla
rokin út í veður og vind að
leiksýningu lokinni.
BÍLSKÍIl
til sölu og flutnings.
Eyjólfur Gunðmundsson,
Tunguvegi 2 - Sími 50607.