Alþýðublað Hafnarfjarðar - 07.04.1962, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐ IIAFNARFJARBAR
„Klerkar í klípu“
Leikfélag Hafnarfjarðar hef-
ur nú hafið sýningar á enska
gamanleiknum „Klerkar í
klípu“ eftir Philip King, í þýð-
ingu Ævars R. Kvaran. Leik-
stjóri er Steindór Hjörleifsson.
Leiktjöld málaði Bjarni Jónsson
og bregst honum ekki smekk-
vísin. Er Hafnfirðingar vilja
hlæja eina kvöldstund, ættu
þeir sannarlega að skreppa á
þessa leiksýningu leikfélagsins
í Bæjarbíói.
Leikurinn gerist á heimili
séra Lionels Toops og konu
hans, sem er fyrrverandi leik-
kona og gengur henni illa að
setja sig inn í hlutverk virðu-
legrar prestsmadömu. Svo ber
gesti að garði, hermann, sem
er vinur prestsfrúarinnar og
fyrrverandi mótleikari; biskup-
inn frænda liennar, séra Hump-
rey og þýzkan strokufanga. Og
nú fer að færast líf í tuskurnar.
Atburðarásin verður svo hröð,
að leikhúsgestir finna ekkert til
þess, þótt efnið sé ekki hátt
skrifað upp á andlegheitin. Þeir
hafa ekki við að hlæja og
skemmta sér, og stundum eiga
leikararnir fullt í fangi með að
komast að með brandara sína
fyrir hlátursköstum áhorfenda.
Og svo er allt búið og ekkert
eftir nema endurminningin um
hlátrasköll í Bæjarbíói. en það
skyldu menn muna, að hlátur-
inn lengir lífið og hafa þeir þá
ekki til einskis farið til leik-
félagsins. Leikendurnir eru
flestir Hafnfirðingum að góðu
kunnir og leysa yfirleitt hlut-
verk sín vel af hendi. Nokkuð
bar stundum á ýkjum í túlkun
leiksins, enda er hann þannig
úr garði gerður frá höfundarins
hendi, að hann býður upp á
fjölmörg tækifæri í þeim efn-
um.
Minnisstæðasta persóna og
sjálfri sér samkvæmust verður
sér Arthur Humprey, sem Val-
geir Oli Gíslason leikur. Er
þetta lítið hlutverk en svo vel
af hendi leyst, að unun er á að
horfa.
Eins og að ofan er sagt, hefur
Steindór Hjörleifsson á hendi
leikstjórn, og hefur honum far-
izt það verkefni ágætlega úr
hendi. Steindór fer með lilut-
verk séra Toops, í stað Karls
Guðmundssonar, sem forfallað-
ist vegna veikinda. Steindór fer
vel með hlutverk sitt, eins og
hans er von og vísa, enda er
hann einn að kunnustu leikur-
um okkar íslendinga.
Auður Guðmundsdótt leikur
prestsfrúna Penelopu, sem á
erfitt með að samlagast þeirri
virðulegu stöðu, sem prestsfrú
og frænka biskupsins á að
gegna. Leikur Áuðar er mjög
góður, framsögn skýr og lát-
bragð með ágætum. Ungfrú
Sillon, hina siðavöndu pipar-
mey, leikur Margrét Magnús-
dóttir. Fer hún sérlega vel með
hlutverk sitt, og voru þau ekki
fá hlátursköstin, sem spruttu
frá áhorfendum vegna leiks
hennar. Ragnar Magnússon fer
með hlutverk Clive Winton,
corporals. Þurfti hann að skipta
um gervi í leiknum, úr her-
manni í prest. Kom fram ýmis-
legt kátbroslegt við það, er hinn
léttlyndi hermaður tók á sig
:
í srurru háu
FJÁRSÖFNUNIN vegna hinna hörmulega sjó-
slijsa í vetur liefur farið fram um allt land. Forgöngumaður
söfnunarinnar í Hafnarfirði er séra Garðar Þorsteinsson, pró-
fastur. Skátar fóru um bæinn og söfnuðu upphæð að kr. 26.961,-
00. Auk pess höfðu tjmsir aðrir einstaklingar gefið kr. 21.335.00.
Hafa því safnazt parna kr. 48.296.00.
★
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag fór fram vígsla á
nokkrum smábýlishúsum í Fredriksberg, vinabæ Hafnarfjarðar.
Einu pessara húsa var gefið nafnið Ilafnarfjarðarhús. Stefán
Gunnlaugsson, bæjarstjóri, mætti fyrir hönd bæjarstjórnar við
vígsluna.
★
TOGARAVERKFALLIÐ er enn óleyst. Togar-
arnir liggja nú flestir bundnir í höfn. Vonandi tekst fljótlega að
leysa verkfallið nú á aðalvertíð togaranna. AUir hugsandi lands-
menn hafa Jmngar áliyggjur af framtíð togaraútgerðarinnar.
Fljót laiisn togaraverkfallsins er bnjnt liagsmunamál allra lands-
manna, ekki hvað sízt Hafnfirðinga, ]>ar sem logaraútgerð er
jafn stór Jjáttur í atvinnumálunum, sem raun ber vitni.
★
ÞAÐ VAR BROTIÐ BLAÐ í símamálum Hafn-
firðinga, er Emil Jónsson var símamálaráðherra og lét Iwfjast
handa um byggingu nýs póst- og símaliúss í Hafnarfirði. Árang-
urinn af pessu verki hans hefur verið að koma smátt og smátt
í Ijós með auknum Jjægitulum fyrir Hafnfirðinga, og nú síðást
um helgina, er um 500 mj símanúmer voru tekin í notkun í
bænum.
Myndin var tekin á leiksýningu Leikfélagsins. Hér sjást biskupinn (Sigurður Kristinsson) og corporalirín (Ragn-
ar Mugnússon til hægri) vera að basla við að koma Penelopu (Auði Guðmunclsdóttur) aftur til lífsins.
prestsgervi. Þetta er erfitt hlut-
verk frá höfundi, en Ragnar
gerði því ágæt skil á köflum,
og framsögn hans var með
ágætum. Vinnustúlkuna Idu
leikur Svana Einarsdóttir. Þetta
(Framhald á bls. 3)
Aðalfundur
Verkamannafél. Illífar
Verkamannafél. Hlíf í Hafn-
arfirði hélt aðalfund sinn sunnu
daginn 18. marz s.l.
Lýst var kosningu stjórnar,
en aðeins einn listi hafði kom-
ið fram, listi uppstillingar- og
trúnaðarráðs, og varð hann því
sjálfkjörinn.
Listinn var þannig skipaður:
Stjórn: Hermann Guðmunds-
son, formaður, Ragnar Sigurðs-
son, varafonnaður, Hallgrímur
Pétursson, ritari, Sveinn Georgs-
son, gjaldkeri, Gunnar Guð-
mundsson, vararitari, Helgi Kr.
Guðmundsson., fjármálaritari,
Reynir Guðmundsson, með-
stjórnandi.
Varastjórn: Arni Jónsson,
Bjarni Jónsson, Benedikt Ing-
ólfsson.
Endurskoðendur: Sigurður T.
Sigurðsson (eldri), Sigmundur
Björnsson, varamaður: Jón Ein-
arsson.
Trúnaðarmannaráð: Ilalldór
Helgason, Þórður Ivarsson, Sig-
mundur Björnsson, Gunnar Hall
grímsson.
Varamenn: Sumarliði Guð-
mundsson, Kristján Þorvarðar-
son, Guðmundur Guðmundsson,
Björn Sveinsson.
Stjórn styrktarsjóðs: Þórður
Þórðarson, Sigmundur Björns-
son, Gunnar Hjálmarsson,
Bjarni Erlendsson, Sigurbjartur
Loftsson. Varamenn: Magnús
Þórðarson, Guðmundur Guð-
mundsson, Þórður Magnússon,
Hinrik Einarsson.
Laganefnd: Karl Elíasson,
Guðmundur Georgsson, Sigurð-
ur Stefánsson.
Fræðslunefnd: Pétur Oskars-
son, Ólafur Jónsson Norðfjörð,
Guðjón Jónsson.
Fermingfar I
Frlkirkjau
Ferming 8. apríl, kl. 2 e. h.
STÚLKUR:
Birna Haralds Njálsdóttir, Melabraut
7.
Guðbjörg Helga Bjamadóttir, Norð-
urbraut 19.
Guðrún Ilildur Finnsdóttir, Ásbúðar-
tröð 3.
Guðrún Guðniundsdóttir, Suðurgötu
18.
Guðrún Björt Ingvadóttir, Hraun-
gerði v. Garðaveg.
Guðrún Elin Magnúsdóttir, Ilraun-
hvammi 4.
Jónína Margrét Pétursdóttir, Þing-
hólsbraut 15, Kópavogi.
Kristjana A. Kristinsdóttir, Hellis-
götu 7.
Magnea Halldórsdóttir, Ilraunbrún
12.
Svandís Ellertsdóttir, Illíðarbraut 3.
PILTAR.
Björn Hafsteinn Jónsson, Eyrarhrauni.
Björn Magnússon, Hraunhvammi 4.
Friðrik Elvar Ingvarsson, Lækjarkinn
14.
Gunnar Borgþór Sigfússon, Ilverfis-
götu 54.
Jóhann Eyþórsson, Grænukinn 10.
Pétur Jónsson, Arnarvogi 1, Garða-
hreppi.
Sigurður Brynjólfsson, Álfaskeiði 24.
Sverrir Marinósson, Lækjargötu 10 B.
Hafnarfjarðarkirkja
sunnudaginn 8. apríl kl. 2 síðd.
DRENGIR:
Birgir Kristmar Finnbogason, Garða-
vegi 15.
Bjarni Ilelgason, Ásgarði 5, Garða-
hreppi.
Björn Stefán Eysteinsson, Melabraut
7.
Bragi Jens Sigurvinsson, Suðurgötu 6.
Erlendur Grétar Sveinsson, Köldu-
kinn 12.
Gestur Jónsson, Lækjarkinn 10.
Gisli Gunnlaugur Haraldsson, Mosa-
barði 4.
Guðmundur Gunnar Guðmundsson,
Ilringbraut 15.
Guðmundur Hólm Hjörleifsson, Ilóla-
braut 5.
Gunnar Krístjánsson, Mjósundi 15.
Ilaraldur Kjartansson, Ilraunkombi 4.
Olafur Guðmundur Emilsson, Oldu-
götu 11.
Ólafur Guðnmndur Guðmundsson,
Hvaleyrarbraut 9.
Óskar Þór Sigurðsson, Lækjarkinn 20.
Ilafnarlirði
Óskar Þórðarson, Herjólfsgötu 34.
Pétur Rúnar llagnarsson, Strandgötu
28.
Sigurður Ilaraldsson, Fögrukinn 15.
Steingrimur Guðjónsson, Ólduslóð
44.
Valdimar Sveinsson, Hverfisgötu 63.
Þórarinn Guðlaugsson, Melholti 4.
Þorleifur Valgeir Kristinsson, Öldu-
götu 37.
STÚLKUR:
Anna Björg Ilalldórsdóttir, Áslrúð-
artröð 5.
Elinborg Ragnarsdóttir, Álfaskeiði 45.
Elisabet Sonja Harðardóttir, Vita-
stíg 6 A.
Elsa Anna Bakkmann Bessadóttir,
Ilringbraut 57.
Erla Guðrún Gestsdóttir, Ölduslóð 6.
Erna Friðfinnsdóttir, Sjónarhæð,
Garðahreppi.
Eyrún Hafsteinsdóttir, Austurg. 34.
Guðborg Þórðardóttir, Gunnarssundi
3.
Guðný Jóhannsdóttir, Herjólfsg. 28.
Guðríður Ilalla Bergsdóttir, Hring-
braut 61.
Guðríður Óskarsdóttir, Öldugötu 44.
Guðrún Albertsdóttir, Selvogsgötu
14.
Guðrún Bergþóra Þórsdóttir, Hraun-
stíg 5.
Ilalldóra Magnúsdóttir, Stekkjarbraut
15.
Ingunn Anna Jónasdóttir, Öldug. 42.
Jakobína Gunnlaugsdóttir, Köldukinn
9.
Jóhanna Jónsdóttir, Kirkjuvegi 20.
Jóhanna Kristjana Ellertsdóttir, Mosa-
barði 30 B.
Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Þórólfsgötu
5.
Jóna Sigurðardóttir, Álfaskeiði 16.
Jónína Ágústsdóttir, Tjarnarbraut 23.
Jónína Ágústa Jónsdóttir, Flókag. 3.
Katrín Sigríður Viggósdóttir, Ilóla-
braut 13.
Lilja Ágústa Guðnmndsdóttir, llring-
braut 15.
Margrét Púlsdóttir, Mánastíg 6.
Sigríður Guðbjörg Sigurbjörnsdottir,
Selvogsgötu 1.
Sigrún Dagbjört Sigurðardóttir, Arn-
argötu 30.
Sigurlaug Stefánsdóttir, Lækjaríit 6,
Garðahreppi.
Sóldís Aradóttir, Öldutorgi 2.
Svanhildur Pálsdóttir, Ihiukinn 8.
Valdís Jóna Sveinbjömsdóttir, Hring-
braut 80.
Valgerður María Guðnmndsdóttir,
Hvaleyrarbraut 9.
Yngva Margretha Skaalum, Strand-
götu 50.
Þórhildur Brynjólfsdóttir, Hringbraut
11.