Alþýðublað Hafnarfjarðar - 16.05.1962, Side 1
Jafnaðarstefnan
er stefna
•alþýðunnar.
ALÞYDUBLAÐ
AJþýðublað
Hafnarfjarðar kemur
nsést út miðvikudaginn
23. maí n. k.
IHIAJFNAdRt IFJJAJRUD)/2*JR1
XXI. ÁRGANGUR HAFNARFIRÐI, 16. MAÍ 1962 10. TÖLUBLAÐ
Yöxtur Haínarf|arðar sýnir traust fólksins til stjórnenda
bæjarins - Framsýni og fyrirhyggja í skipulagsmálum
Fólksflutningur til Hafnarfjarðar hefur á undanförnum árum verið til-
tölulega meiri en til flestra annarra kaupstaða. Atvinnufyrirtæki frá ná-
lægum byggðarlögum hafa sótt eftir aðstöðu fyrir starfsemi sína hér í bæ.
Hvoru tveggja þetta sýnir, að Hafnarfjörður er byggðarlag, sem hefur upp
a margt að bjóða og laðar að sér fólk og fyrirtæki. Það sýnir líka að stjórn
bæjarins er með þeim hætti, sem vekur traust fólksins.
Hluti af verkum stúlknanna ú hinni mijndarlegu liandavinnusýningu í Flenshorgarskólanum.
Hin öra uppbygging bæjar-
ins hefur í för með sér ýmis
vandamál. Eitt þessara vanda-
mála eru skipulagsmál. Þau eru
í eðli sínu slík, að þau verða
ekki leyst nema á löngum tíma
og með mikilli vinnu. Skipu-
lagsmálin þarf því að vinna af
mikilli kostgæfni og fyrirhyggju.
Alþýðuflokkurinn hefur sýnt
fullan skilning á þessum mál-
um. Hann héfur á undariföm-
um árum beitt sér fyrir því, að
unnið hefur verið að lausn
hinna margvíslegu þátta iskipu-
lagsmálanna.
Fjölgun atvinnufyrirtækja í
bænum hefur haft í för með sér,
að iðnaðarlóðum á Flatahrauni
er nú öllum ráðstafað. Sama
máli gegnir um lóðir fyrir fisk-
vinnslufyrirtæki á Oseyrartúni.
Og hin mikla eftirspum eftir
lóðum fyrir ýmiskonar iðnrekst-
ur heldur áfram. Þess vegna
hefur verið unnið að skipu-
lagningu svæða fyrir ný iðnfyr-
irtæki. Þess vegna er nú verið
að skipuleggja svæðið sunnan
Hvaleyrarholts og annað svæði
norðanvert við Reykjanesbraut,
sem ný iðnaðarhverfi.
Jafnframt hefur verið unnið
að skipulagningu nýrra íbúða-
hverfa t. d. í Vesturbænum
vestan Norðurbrautar og skipu-
lagi íbúðarhverfa norðan Arn-
arhrauns er nýlega lokið og það
endanlega samþykkt.
Hinn öri vöxtur bæjarins hef-
ur skapað algerlega ný viðhorf
í skipulagi Miðbæjarins. Nú-
gildandi skipulag Miðbæjarins
er frá 1933. Það liggur því í
augum uppi, að nauðsyn bar til
að endurskoða það skipulag. En
það er erfitt verk og vandasamt.
Þess vegna var ákveðið að efna
til hugmyndasamkeppni um
skipulag Miðbæjarins á sl. ári,
til þess að tryggja beztu fáan-
legu sérfræðinga á þessu sviði,
til þess að finna bezta og hag-
kvæmasta skipulagið á Mið-
bænum, og gera hann þannig
að þeirri bæjarprýði, sem hann
á að vera.
Niðurstöður þessarar hug-
myndasamkeppni liggja nú fyr-
(Framhald á hls. 5)
Aðgerðir til varnar hagsmunum
bæjarins kalla Sjálfstæðismenn
„atvinnuofsóknir“
Einstæðar
fjárkröfur
S'
Arna G.
Finnssonar
á hendur
bæjarsjóði
í síðasta Hamri er risafyrirsögn, þar sem
Alþýðuflokkurinn er sakaður um „atvinnu-
ofsóknir" gegn Árna G. Finnssyni lögfræð-
ingi, fimmta manni á lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði. Tilefni þessarra æsiskrifa
eru ábyrg og sjálfsögð viðbrögð bæjarins,
til þess að verjast óbilgjörnum fjárkröfum
og eindæma innheimtuaðferðum, sem Árni
G. Finnsson beitir gegn Hafnarfjarðarbæ.
Þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur kos-
ið að gera þetta mál að opinberu blaða-
máli af lítilli hlífð við frambjóðanda sinn,
Árna Grétar, þá kalla þeir líka fram stað-
reyndirnar í málinu, en þær eru þessar:
1. Árni Grétar Finnsson skrifaði bæjarsjóði bréf
hinn 4. maí síðastliðinn og krafðist greiðslu á
reikningi fyrir hönd umbjóðanda síns, auk kr.
7.140.00 þóknunar sér til handa. Til þess að
greiða þetta hvoru tveggja gaf hann viku frest,
en hótaði málsókn að öðrum kosti.
2. Umræddur reikningur er dagsettur 30. apríl sl. og
kom í pósti á bæjarskrifstofurnar 2. maí, tveim-
ur dögum áður en Árni Grétar Finnsson ritar inn-
heimtubréf sitt. Á þessum tveimur dögum hefur
því heildarupphæðin, sem bærinn var krafinn um
í þessu tilfelli hækkað um kr. 7.140.00 kr. og
voru það innheimtulaun, sem hinn „dugmikli" lög-
fræðingur, Árni Grétar Finnsson krafðist sér til
handa.
3. Á þessum tveimur dögum var ekki nægilegt svig-
rúm til þess að kanna réttmæti reikningsins, en
raunar var strax ljóst, að hann var tölulega rangur.
4. Á fundi bæjarráðs hinn 7. maí sl. ákvað meirihluti
bæjarráðs að fela lögfræðingi bæjarins að kanna
(Framhald á bls. 2)