Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 16.05.1962, Blaðsíða 4

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 16.05.1962, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR KosDÍn^Askrifssofa Slþýðflokbsins í Hnfnfirfírdí er \ Alþgðuhúsinu ogr cr opln all.'t dagra frá kl. ÍO árdcgis til kl. ÍO síödegris: jSímar; 9149$ 9U99 Sluðningrsnicnn A-lis4:nis crn hvattir til að hafa samband við skrifstofnna ypjvi Rofo BaMvinsson: Með því að halda námskeið í hag- nýtum vinnuaðferðum í undirstöðu atvinnuvegum þjóðarinnar, er æsk- unni komið í nánara samband við lifið Flestir þeir, sem nú eru komnir á miðjan aldur eða meir, munu bafa alist upp í sveit eða sjávarþorpum í mjög nánum tengslum við íslenzka náttúru og atvinnulíf þjóðarinnar. Börn og unglingar fóru að vinna, strax og þau gátu vettlingi valdið, enda veitti í flestum til- fellum ekki af, til þess að fólk hefði í sig og á. Tómstundir urðu fáar, lífið var eilíft strit myrkranna á milli. Þegar efna- hagur fólks fór að batna, börn og unglingar fóru að sitja lang- dvölum á skólabekk og lands- menn að safnast saman í kaup- túnum og kaupstöðum, fór að skapast vandamál, sem áður var óþekkt. Stór hluti æskufólks ir við að dansa kring um gull- kálfinn, meðal annars til þess að börnunum gæti liðið betur, en þeim á þeirra uppvaxtarár- um, þá virðist fólk ekki hafa gert sér það ljóst að samfara auknum tómstundum og meiri fjárráðum eru líka meiri freist- ingar. Illgresið í blómagarði íslenzkrar æsku er farið að þrengja að þeim fagra gróðri, sem þar vex. Ur því sem komið er„ er að- eins ein leið fær, en það er að uppræta illgresið með öllum tiltækum ráðum. Hér er um mjög hættulegt ástand að ræða. Slæpingsháttur, lauslæti, drykkjuskapur og siðspillandi skemmtanir eru eitt af því, Ármann Sigurðsson leiðbeinir einum þátttakanda á sjóvinnunámskeiðinu. Yngvi Rafn, form. Æskulýðsráðs, fylgist með starfinu. fann ekki sjálfan sig í tómstund- um sínum. Hann vandist á á- huga- og iðjuleysi, sem stafaði af því fyrst og fremst, að hann skorti verkefni við sitt hæfi. Hófleg vinna er undirstaða allrar lífshamingju. Of mikil vinna barna og unglinga hafði oft mjög skaðleg áhrif á vöxt og þroská unglinga fyrri tíðar. En verri og skaðlegri áhrif hef- ur aðgerðarleysið og áhugaleys- ið á öllu og öllum, sem margt ungt fólk þjáist af í dag. Þetta hefur skapast vegna stórfelldra flutninga fólks úr strjálbýli í þéttbýli, og að fólk er ekki að fullu farið að átta sig á þeim miklu breytingum, sem þetta hefur á uppeldi æskufólks. Það má með nokkrum sanni segja að þeir sem eldri eru beri hér nokkuð þunga ábyrgð. Með- an þeir hafa verið önnum kafn- sem allir geta orðið sammála um að nauðsyn beri til að koma í veg fyrir. Spurningin er bara, á hvern hátt á að snúast gegn þessum vandamálum. Eins og málum er nú komið hlýtur að verða að gera þær kröfur til bæjarfléagsins, skól- anna og þeirra félaga, sem láta sig þessi mál varða, að þau sam- einist um að koma þessum mál- um í viðunandi horf. Iþróttafélögin hafa hjálpað hér mikið til og forðað mörgum unglingum frá vondum félags- skap og slæmu líferni. Góðtempl arar efndu fyrstir til tómstunda- námskeiða hér í bæ, fyrst einir, en síðan með fjárhagsaðstoð frá bæjarsjóði. Árið 1960 skipaði bæjarstjóm 5 menn í nefnd er kölluð er Æskulýðsráð Hafnar- fjarðar. Verkefni þess átti að vera, að stuðla að tómstunda- iðju og heilbrigðum skemmtun- im meðal unglinga í bænum. Góð samvinna hefur verið um þessi mál með Æskulýðsráði og Góðtemplurum og hefur Áfeng- isvarnarráð einnig styrkt þessa starfsemi. Hér hefur verið unnið mikið og gott starf. Námskeið hafa verið haldin í milli 15 og 20 greinum tómstundaiðju undir leiðsögn hinna hæfustu kenn- ara. Haft hefur verið „opið hús“ sem kallað er, þar sem ungl- ingar gátu komið og leikið bob, spilað og teflt, lesið blöð og tímarit og farið í skemmtilega leiki. Á sl. ári var starfandi skemmtiklúbbur á vegum þess- ara aðila. Þær reglur voru sett- ar í upphafi að þar mætti hvorki hafa um hönd vín né tóbak og eftirlitsmaður yrði á hverri skemmtun. Þetta reyndist mjög vel. Unglingarnir sáu um und- irbúning að mestu leyti sjálfir og fórst það vel úr hendi. Umbætur á skemmtanalífi unga fólksins er mjög brýn og bezta ráðið til þess er að efna til fleiri slíkra klúbba þar sem unga fólkinu er gefinn kostur á því að skemmta sér á ódýran og heilbrigðan hátt. I febrúarbyrjun í vetur efndi Æskulýðsráð til sjóvinnunám- skeiðs, Var það til húsa í nýja Öldutúnsskólanum. Kennt var í tveim flokkum og kennari Ár- mann Sigurðsson, skipstjóri. — Nemendur voru mjög áhuga- samir og var hér unnið gott brautryðjendastarf. Bíða þessi ungu sjómannsefni nú með eft- irvæntingu eftir því, að fara sína fyrstu sjóferð, á vegum Æskulýðsráðs og mun það verðaverða eftir nokkra daga. Segja má að þama hafi verið brotið blað í sögu þessarra mála hér í bæ. Með því að halda námískeið í hagnýtum nútíma vinnuaðferðum í undirstöðu at- vinnugreinum þjóðarinnar, þá er verið að koma unglingunum í nánara samband við lífið og starfið og gera þá hæfari til þess að taka að sér þessi störf þegar skólanámi Iýkur. AÐSTAÐA TIL TÓM- STUNDASTARFA Þegar Æskulýðsráð hóf starf- semi sína hafði það ekki yfir neinu húsnæði að ráða. Góð- templarar komu þar til hjálpar og hefur meirihluti starfseminn- ar farið fram í Góðtemlarahús- inu. Utvarpsumræður á mánudagskvöld Það hefur orðið að samkomulagi flokkanna hér í bæn- um, að útvarpsumræður um bæjarmálefni Hafnarfjarðar verði næstkomandi mánudagskvöld og hefjast þær klukk- an 8 síðdegis. Dregið hefur verið um röð flokkanna í um- ræðunum og verður hún þessi: Alþýðubandalag, Alþýðu- flokkur, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur. Talaðar verða fjórar umferðir þannig að í fyrstu umferð hefur hver flokkur 20 mínútur til umráða, í annarri og þriðju umferð 15 mínútur í hvorri og í fjórðu og síðustu um- ferð 10 mínútur. Almennur framboðsfundur verður því ekki, enda ekk- ert húsnæði til hér í bænum, sem rúmaði alla þá, sem slíkan fund vildu sækja. Hins vegar munu allir Hafnfirð- ingar eiga þess kost að hlusta á útvarp og geta þess vegna allir bæjarbúar heyrt málflutning flokkanna og vegið hann og metið. Allir stærri kaupstaðir munu nú hafa lagt framboðsfundina niður og. útvarpsumræður leyst fundina af hólmi. Alþýðuflokkurinn vill hvetja alla bæjarbúa að fylgjast vel með útvarpsumræðunum á mánudagskvöldið kemur. Hann mun hér eftir sem hingað til treysta á góð- an málstað og réttlátan dóm kjósenda. Þess vegna munu fimm Alþýðuflokksmenn sitja í næstu bæjarstjórn Hafnar- fjarðar. Nú um áramótin síðustu fékk Æskulýðsráð afnot af kjallara nýfa barnaskólans við Öldutún. Er þar hin prýðilegasta aðstaða fyrir alls konar tómstundanám- skeið og sjóvinnunámskeið. Nú hefur bæjarstjórnin keypt hlut K.R.H. í félagsheimilinu á Hval- eyrarholti og mun þar verða íþrótta- og tómstundalieimili. í sambandi við íþrótta- og æsku lýðshöllina, sem nú er hafin bygging á, er Æskulýðsrúði ætl- að þar mikið liúsrými til starf- semi sinnar. Þegar það hús verður fullgert verður aðstaða hér í Ilafnarfirði, til tómstunda- og félagsiðkana einhver sú fullkomnasta, sem þekkist hér á landi. Fráfarandi bæjarstjóra hefur sýnt þessu máli mikinn skilning og ef bæjarbúar sýna AlþýSu- flokknum verðugt traust í kosn- ingunum 27. maí n. k., með þvi að veita honum hreinan meiri- hluta í bæjarstjórn, þá mun verða unnið að því að efla og auka þessa starfsemi, sem nu hefur verið byrjað á. Sjónarmið unga fólksinls eru þau sömu og Alþýðuflokksins i þessum málum. Sigur Alþýðuflokksins er þvi sigur unga fólksins.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.