Alþýðublað Hafnarfjarðar - 16.05.1962, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
j ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
j Útgefandi:
/ ALÞÝÐUFLOKKURINN í HAFNARFIRÐI
/ Ritstjóri og ábyrgSarmaSur:
/ HÖRÐUR ZÓPHANÍASSON
ÍAfgreiðsla t Alþýðuhúsinu, sími 50499
PRENTSMIÐJA HAFNARFJARÐAR H.F.
Sjálfstæðisílokkurinn
í næst síðasta Alþýðublaði Hafnarfjarðar var lögð
prófraun fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Hafnarfirði, sjö
spurningar, sem Hamri var falið að svara fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Enn er autt blað hjá Sjálfstæðisflokkn-
um. Hann vill ekki svara þessum spurningum, svo að
kjósendur geti áttað sig betur á stefnu flokksins. En
autt blað er líka svar fyrir kjósendur. Með þögn sinni
samþykkir Sjálfstæðisflokkurinn, að hann ætli að selja
einstökum gæðingum sínum meira og minna af eignum
og fasteignum bæjarins, ef hann fær aðstöðu til.
Sjálfstæðisflokkurinn samþykkir líka með þögn sinni,
að hann telur vinnubrögð sín í málefnum Bæjarútgerð-
arinnar röng og að Fiskiðjuverið og aðrar eignir Bæjar-
útgerðárinnar eru í hættu fyrir ágirnd íhaldsgæðinganna,
ef Sjálfstæðisflokkurinn fær þar einhverju að ráða.
Sjálfstæðisflokkurinn segir okkur með þögn sinni í
Hamri um Bæjarbíp, að þar sé góður biti, sem einhverj-
um íhaldsgæðingum þætti ekki ónýtt að hremma, og
Morgunblaðið skundar á vettvang, því til írekari stað-
festu.
Sjálfstæðisflokkurinn lýsir yfir með þögn sinni, að
hann sé reiðubúinn að reyna að endurtaka leikinn með
hlutabréfin í Lýsi og Mjöl og setja annars staðar hlið-
ef Sjálfstæðisflokkurinn fær þar einhverju að ráða.
Sjálfstæðisflokkurinn segir með þögn sinni, að hann
geti ekki viðurkennt það álit Alþýðuflokksins, að ekki
sé sjálfsagt að lúta boði og banni Reykjavíkurvaldsins
í stóru og smáu.
Sjálfstæðisflokkurinn lýsir því yfir með þögn sinni,
að hann hafi skipt um skoðun um bílastyrkina, eftir að
hann frétti um bílastyrk Páls V. Daníelssonar.
Og síðast, en ekki sízt, hefur Sjálfstæðisflokkurinn með
þögn sinni í prófinu undirstrikað það, að hann hefur
enga stefnu í íþróttahúsmálinu og er áhugalaus um
málið.
Þetta er í stórum dráttum það, sem hið auða prófblað
Hamars segir okkur. Hins vegar er enn tími fyrir Hamar
að leysa prófverkefni sitt betur af hendi fyrir kosningar,
en hann ætti að vera minnugur þess að autt blað er hafn-
firzkum kjósendum augljóst svar. Og þeir munu svara
sunnudaginn 27. maí á þann eina hátt sem verðugt er:
Fimm Alþýðuflokksmeiiii í bæjarstjórn
Hainarlj arðar
Hrcinn meirihluii Alþýðuflokksins
% Á að leigja íhaldsgæðingum Fiskiðfuverið?
0 Á að láta Bæfarbíó í hendur einstaklinga
fyrir lítið verð?
0 Á að láta Reykvíkinga ráða því, sem þeir
vilja ráða hér í Hafnarfirði?
0 Ef ekki, þá er öruggasta leiðin til þess að
koma í veg fyrir það að kfósa A-listann.
Þessi mijnd er 'frá handavinnusýningu drengjanna t Flensborg. Eins og hér má sjá voru þar margir eigulegir munir.
Hagsmuna bæjaríns gætt
(Framhald af bls. 1)
réttmæti kröfuupphæðctrinnar, og hvort
þessar innheimtuaðferðir Árna Grétars
Finnssonar stæðust reglur Lögmanna-
félags íslands.
5. Hinn 10. þ. m. lagði lögfræðingur bæj-
arins niðurstöður athuganna sinna
fram á bæjarráðsfundi. Þar taldi hann
að umrædd reikningsupphæð væri
órökstudd og tölulega röng, og þess
vegna hefði verið bæði rétt og skylt
af bæjarstjóra að neita að greiða reikn-
inginn að svo stöddu, þegar reikning-
urinn var sýndur.
Með þessar staðreyndir í huga liggur
það alveg ljóst fyrir í þessu máli, að
reikningurinn var tölulega rangur og
bæjarstjóri því í fyllsta rétti að neita
greiðslu á reikningnum þegar hann kom
hinn 2. maí, án þess áður að ganga úr
skugga um réttmæti hans. Bæjarráð var
samþykkt þessari ákvörðun bæjarstjóra.
Augljóst er, að kröfuhafinn hefur þá
þegar snúið sér til Árna Grétars Finns-
sonar og óskað eftir innheimtu hans, og
að Árni Grétar Finnsson hefur tafarlaust
skrifað hið einstæða innheimtubréf sitt á
bæjarstjóð og krafizt fyrir það ritlauna að
upphæð kr. 7.140.00. Ætla verður að lög-
fræðingurinn hafi spurt umbjóðanda sinn
um ástæður fyrir neitun bæjarstjóra á
greiðslu umrædds reiknings og fengið um
það réttar upplýsingar.
Hér hefur því Árni Grétar Finnsson á
einstæðan hátt ráðizt að bæjarsjóði með
svo óheyrilegar fjárkröfur, að ekki var
annað hægt fyrir ábyrg bæjaryfirvöld,
sem gæta vilja hagsmuna bæjarins, en
að leita úrskurðar réttra aðila um rétt-
mæti þessara innheimtuaðferða. Þess
vegna hefur bæjarráð ákveðið að leita
umsagnar stjórnar Lögmannafélags ís-
lands um hina fruntalegu innheimtuað-
ferðir Árna Grétars Finnssonar, sem hann
beitir gegn bæjarfyrirtækjum. Jafnframt
hefur honum verið tilkynnt, að ekki komi
til mála að greiða honum „ritlaun" þau
kr. 7.140.00, sem hann hefur krafizt, nema
að undangengnum úrskurði stjórnar Lög-
mannafélagsins um réttmæti þeirra.
Meiri hluti bæjarráðs hefur gert það
eitt í þessu máli, sem honum bar að
gera til þess að verjast röngum og óbil-
gjörnum fjárkröfum á sameicþi bæjar-
búa, — bæjarsjóð. Þær aðgerðir bæjar-
yfirvaldanna miðast við það eitt að gæta
hagsmuna bæjarins gegn ófyrirleitnum
fjárplógsmönnum. Slík viðbrögð af bæjar-
ins hálfu til þess að verja hagsmuni
Hafnarfjarðar kalla Sjálfstæðismenn „at-
vinnuofsóknir". Þannig er umhyggja Sjálf-
stæðisflokksins fyrir fjárhag bæjarins,
þegar á reynir.
Hitt er svo annað mál og athyglisvert
fyrir kjósendur, að Árni Grétar Finnsson
skipar fimmta sætið á lista Sjálfstæðis-
flokksins hér í væntanlegum bæjarstjórn-
arkosningum. Skyldi hann, sem ræðst að
bæjarsjóði með svo óheyrilegar og ein-
stæðar fjárkröfur, vera líklegur til þess
að gæta hagsmuna bæjarins? Eða skyldu
félagar hans í Sjálfstæðisflokknum, sem
verja þetta framferði hans gagnvart bæj-
arsjóði, vera líklegir til þess að standa
trúan vörð í framtíðinni um hagsmuni
Hafnarfjarðarbæjar? Þessu svari hver
fyrir sig.