Alþýðublað Hafnarfjarðar - 05.05.1966, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Útgefandi:
ALÞÝÐUFLOKKURINN í HAFNARFIRÐI
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
SIGURÐUR EMILSSON, SÍMI 51943
Auglýsingar: GUNNAR BJARNASON
PRENTSMIDJA HAFNARFJARÐAR H.F.
Hvers vegna Alpýðuflokkinn?
Hafnfirðingar ættu að hugleiða það rækilega og fordómalaust,
hvort ekki væri skynsamlegt að auka áhrif Alþýðuflokksins á ný
á stjórn bæjarmálanna næsta kjörtímabil.
Reynsla síðustu kjörtímabila, og þá alveg sérstaklega þess, sem
nú er senn á enda, hefur sannað okkur það, að eftir því, sem áhrifa
Alþýðuflokksins hefur minna gætt í bæjarstjórn, þeim mun lakari
hefur stjórn þessara mála verið. Aukinn stuðningur við Alþýðu-
flokkinn er því leiðin til aukinnar hagsældar fyrir bæjarbúa.
Alþýðuflokkurinn heitir því á kjósendur, og þá alveg sérstak-
lega hina ungu kjósendur, að kynna sér vel fortíð þessara mála.
Það er ánægjulegt að geta bent hinum ungu kjósendum á glæsi-
lega fortíð Alþýðuflokksins í Hafnarfirði jafn'framt því, sem flokk-
urinn býður nú fram unga og áhugasama ágætismenn í efstu
sætum listans. Þeir ættu að vera trygging fyrir því, að áfram verð-
ur unnið að áhugamálum æskunnar.
Ef unga fólkið óskar að auka áhrif Alþýðuflokksins í kosning-
unum, þá hefur verið komið til móts við það með því að setja í
vonarsætin tvo glæsilega fulltrúa hennar, sem gjörþekkja óskir
unga fólksins. Auk þess er í öðru sæti á lista Alþýðuflokksins,
öruggu sæti, Hörður Zóphaníasson yfirkennari.
í 4. sæti á lista Alþýðuflokksins er Yngvi Rafn Baldvinsson
sundhallarstjóri. Yngvi hefur m. a. látið íþróttamálin mikið til
sín taka, og hefur verið formaður íþróttabandalags Hafnarfjarð-
ar í mörg ár, en helztu kappsmál íþróttahreyfingarinnar er bygg-
ing nýja íþróttahússins. Er ekki að efa, að málefnum íþróttafélag-
anna er vel borgið, ef Yngvi verður kosinn.
I 5. sæti á lista Alþýðuflokksins er Haukur Helgason skóla-
stjóri Öldutúnsskólanís. Haukur er þegar orðinn kunnur fyrir
ágæta þekkingu á fræðslu- og menningarmálum, og Öldutúns-
skólinn talinn til fyrirmyndar hvað skipulag og tækjabúnað snert-
ir. Valið hjá hafnfirzkri æsku hefur því aldrei verið auðveldara.
I þremur áf fimm efstu sætum á lista Alþýðuflokksins eru glæsi-
legir fulltrúar unga fólksins, auk tveggja þekktra og reyndra
athafnamanna.
Stefnumál Alþýðuflokksins eru visSulega í samræmi við skoð-
anir og vilja unga fólksins, sem með aukinni menntun og víðsýni
vill skapa nýjan heim og ný þjóðfélög á grundvelli félagslegra
umbóta.
Við treystum því, að nógu margir kjósendur í Hafnarfirði kunni
að meta reynslu og hæfileika þessara tveggja ungu manna, og
tryggi þeim báðum sæti í bæjarstjórn næsta kjörtímabil.
w
I fótspor íhaldsins
Þegar Alþýðuflokkurinn hafði
hér forystu í bæjarmálum var
Krýsuvíkurlandið keypt, og bor-
anir hafnar eftir heitu vatni, sem
báru góðan árangur. Ihaldið í
Hafnarfirði bar þungan hug til
þessara framkvæmda af skiljan
legum ástæðum, þar sem hér
voru að opnast ýmsir nýir virkj-
unarmöguleikar. Hún verður
lengi í minnum höfð sagan um
einn bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins,, sem læddist upp í
Krýsuvík, eftir að hann hafði
frétt, að þar hafi fengizt mjög
mikið gos úr einni borholunni.
En þegar hann kom í bæinn
aftur, var eins og manninum
hefði létt mikið, er hann sagði
sigurbrosandi við menn: „Ég
held að gosið sé nú að minnka“.
En það var aðeins hans óska-
draumur.
Og enn læðast menn upp í
Krýsuvík til þess að reyna að
sækja sér efni í níðskrif um Al-
þýðuflokkinn. Að þessu sinni
ritstjóri hjá blaðinu Borgarinn.
Eitt ættu þessir samherjar þó
að vita, og það eru þau einföldu
sannindi, að eins og Róm var
ekki byggð á einni nóttu, verður
Krýsuvík ekki strax að þeim
stað, sem Alþýðuflokkurinn
stefnir að, þó við vonum að það
verði sem fyrst. í Krýsuvík
verða mjög bráðlega reistar sum
arbústaðir Þjóðkirkjunnar, þar
er unglingavinna á sumrin,
ræktun mun halda áfram, sil-
ungsrækt í Kleifarvatni, ylrækt
í gróðurhúsum, garðlönd verða
þar fyrir Hafnfirðinga o. m. fk,
en framtíðar verkefnið verður
svo virkjun þeirrar orku, sem
býr í jörðu. Að þessum málum
mun Alþýðuflokkurinn vinna
eftir því sem fjárhagur leyfir á
hverjum tíma, þó að hann verði
fyrir aðkasti frá íhaldinu og
þeirra nýju samherjum. Þeim
eignum, sem þar liggja undir
skemmdum, verður tafarlaust að
bjarga og girða fyrir að slík
mistök endurtaki sig.
F. H. ÍSLANDSMEISTARAR 1966
Ekki vinstri flokkur
Það er góðra gjalda vert, þegar menn villa ekki á sér
iij heimildir. Það má því virða það við Borgarann, blað
ijÍ „Óháðra“, að þrátt fyrir oft léttúðlega umgengni við sann-
jÍÍ leikann, segir hann með sönnu, að ekki sé hann vinstri
iii sinnaður, eða „Félag óháðra“ vinstri flokkur.
Hins vegar vita allir, að jafnaðarmenn eru vinstri
ÍÍÍ sinnaðir og jafnaðarmannáflokkar taldir vinstri flokkar,
jj! hvar sem er í veröldinni. Það leiðir því af sjálfu sér, að
jjj jáfnaðarmenn eiga ekki heima í fylkingu, sem ekki telur
jjj sig vera vinstri sinnaða. Og með þeirri fullyrðingu Borg-
jjj arans, að samtökin séu ekki vinstri sinnuð, er öllum
jjj vinstri sinnuðum Hafnfirðingum jafnframt sagt, að með
jjj „Óháðum“ eigi þeir ekki samleið. Vinstri stefna fyrirfinnist
jjj þar engin.
Eftir þessa yfirlýsingu Borgarans finnst mönnum ekk-
jjj ert ótrúleg sagan, sem gengur um bæinn núna, að jafnaðar-
jjj rnaður einn, sem taldi sig eiga samleið með þessum sam-
jjj tökum, hafi borið fram tillögu á fundi „Óháðra“ þesS efnis,
;;; að ekki skyldi unnið með Sjálfstæðisflokknum eftir kosning-
jjj ar, — og tillagan verið kolfelld.
i Nýlega hefur F.H. varið
jp meistaratign sína í liand-
jjj knattleik með miklum glæsi-
jjj brag. Mótið var haldið að
jjj Hálogalandi, og verður að
jjj telfa þá ráðstöfun til lítils
|j sóma fyrir Reykfavík, að hafa
jjj ekki annað hús fyrir íslands-
jjj mótið en gamlan bragga frá
jjj stríðsárunum.
Alþtjðublað Hafnarffarðar
pj og Hafnfirðingar allir sam-
jjj fagna F.H., og vonandi verð-
jjj ur þess ekki langt að bíða,
jjj að við getum boðið æsku
jjj þessa bæfar nýtt og glæsilegt
jjj íþróttahús.
Munið fund
stuðningsmanna
A-listans
í kvold kl. 8.30
Höldum sókn-
inni ófram
X-A er heill
Hafnarfjarðar
Lausar lögreglupjónsstöður
2 lögregluþjónsstöður í lögregluliði Hafnarfjarð-
ar og Gullbringu- og Kjósarsýslu (vegna Garða-
hrepps) eru lausar til umsóknar.
Byrjunarlaun samkv. 13. flokki launasamnings
opinberra starfsmanna auk 33% álags á nætur-
og helgidagavaktir. — Upplýsingar um starfið
gefur undirritaður og skulu umsóknir, sem
greina, aldur, menntun og fyrri störf hafa bor-
izt honum fyrir 15. maí n. k.. —
Bæfarfógetinn í Hafnarfirði,
sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kfósarsýslu,
22. apríl 1966.
Einar Ingimundarson.
Gustavsberg hreinlœtistœki nýkomin. Pantanir óskast sóttar.
Kaupfélag Hafnfirðinga
Byggingavörudeild, Vesturgötu 2. Sími 50292.