Alþýðublað Hafnarfjarðar - 05.05.1966, Síða 7
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
7
TU/I AUC.LVSING
0,00
%
\\
0 \
<í
>
4 *
NYTT
HAPP
DRŒTTB
$
ð
s
Vali fyria?
ISHXXS
»IILL
eftir
o«riR
^y^ir 3
Umboðið í Hafnarfirði
Verzlunin
FÖT OG SPORT
Vesturgötu 4 - Sími 50240
Hátíðahöldin 1. maí
Fulltrúaráð verkalýðsfélag-
anna og Starfsmennafélags Hafn
arfjarðar efndu til hátíðahalda
1. maí, eins og venja hefur verið.
Var fyrst gengið í kröfugöngu
um bæinn, en Lúðrasveit Hafn-
arf jarðar lék fyrir göngunni und-
ir stjórn Hans Ploder Fransson-
ar. Kröfugöngunni lauk við Fisk
iðjuver Bæjarútgerðarinnar, en
þar setti formaður fulltrúaráðs
verklýðsfélaganna, Gunnar S.
Guðmundsson, fundinn. Ræðu-
menn dagsins svoru tveir,, þeir
Hermann Guðmundsson, formað
ur Verkamannafélagsins Hlífar,
og Guðlaugur Þórarinsson, for-
maður Starfsmannafélags Hafn-
arfjarðar. Veður var heldur leið-
inlegt, rigning, og hefur vafa-
laust átt mikinn þátt í því, að
hátíðahöldin voru ekki eins fjöl-
menn og vera bar, þegar jafn
þýðingarmikil og voldug hreyf-
ing og verkalýðslireyfingin á í
hlut. '
Kröfur dagsins voru þessar:
1. Að dýrtíðinni sé haldið í
skefjum.
2. Að kaup verði hækkað veru-
lega.
3. Að gerðar verði ráðstafanir
til að gera styttingu vinnu-
dagsins að veruleika.
4. Að orlofslöggjöfinni verði
breytt á þann veg, að laun-
þegar geti nýtt sumarleyfi
sín.
5. Að kaupgreiðsluvísitala verði
með þeim hætti, að hún gefi
rétta mynd á hverjum tíma
af framfærsluþörfum rneðal-
fjölskyldu.
Lœvís
Því virðist enginn takmörk
sett, hve lélegan áróður fram
bjóðendur Félags „óháðra“
geta boðið mönnum. Ef þeir
tala við vinstri mann þá eru
þeir að berjast við Sjálfstæðis
flokkinn. Ræði þeir við Sjálf-
stæðismann þá eru þeir dul-
búnir frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins, sem eru að
berjast gegn komrnum og
krötum. Þeir benda gjarnan
Sjálfstæðismönnum á, í und-
irlægjuhætti sínum við Sjálf-
stæðismenn, að þeir hafi
endurvakið hið gamla íhalds-
blað hér í Hafnarfirði „Borg-
arann“ og það séu marg-
ir Sjálfstæðismenn á lista
óháðra. — Gott er að hafa
tungur tvær og tala sitt með
hvorri. —
Það var staðhæft hér í síð-
asta blaði, að framboð óháðra
þjónaði engum öðrum til-
gangi en gera hlut Sjálfstæðis
floksins sem mestan, þó Sjálf
stæðisflokkurinn væri fjær
því en áður að fá hér hreinan
meirihluta. Við þessa stað-
hæfingu er litlu að bæta, því
framboð „óháðra“ hefur auk-
ið líkurnar fyrir því að Sjálf-
stæðisflokurinn haldi sínum
4. rnanni í bæjarstjóm.
6. Að afnumin verði sá víta-
hringur, að kjarabætur þær,
sem verkalýðshreyfingin knýr
frarn liverju sinni, færist af
sjálfu sér auknar og endur-
bættar, til þeirra þegna þjóð-
félagsins, sem búa við hærri
laun og betri kjör og þar á
rneðal hátekjumanna.
xA
Ibsen í lceri hjá
Vorboðanum
Sjálfstæðiskvennafélagið Vor-
boðinn hefur boðað til fundar
næstkomandi fimmtudagskvöld.
Harnar auglýsti þennan fund síð
ast liðinn laugardag, og sást þar
að Þorgeir Ibsen, 5. maðurinn
á lista Sjálfstæðisflokksins,
myndi verða þar á fundinum
með konunum. Málgögn Sjálf-
stæðisfloksins hafa haldið því
mjög á lofti, hversu mikill skóla
maður og uppeldisfræðingur
Þorgeir Ibsen væri og er það að
vonurn. Þess vegna datt ýmsum
í hug, að þarna myndi Þorgeir
kominn til þess að fræða kon-
urnar um þessi mál.
En þennan sama dag kom
Morgunblaðið með viðtal við frú
Helgu Guðmundsdóttur, en hún
skipar baráttusæti flokksins, svo
sem kunnugt er. Fer hún þar
lofsamlegum orðum um kunn-
áttu Þorgeirs í þessum málurn
og segir síðan orðrétt: „Þó karl-
mennirnir séu dugmiklir, hefur
konan rneiri áhuga og innsýn í
mannúðar- og uppeldismál, því
börnin og velferð þeirra standa
hug hennar næst“.
Af þessu sézt, svo að ekki
verður urn villzt, að konurnar í
Vorboðanum hafa tekið að sér
að kenna Ibsen, en hvort hann
er að nema uppeldisfræði eða
fær tilsögn um mannúðarmál
hjá Vorboðanum, það er ekki
upplýst ennþá.