Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 05.05.1966, Qupperneq 8

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 05.05.1966, Qupperneq 8
DILKASVIÐ, nýsviðin á 35 kr. kg. Kjöt og Fiskur Vesturbraut 12 - Sími 51632 ALÞYÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR DILKASVIÐ, nýsviðin á 35 kr. kg. Kjöt og Fiskur Vesturbraut 12 - Sími 51632 MÖRGUM, SEM LÁSU síSasta tölublað Borgar- ans, blöskraSi hin furSulegu skrif Árna Gunnlaugssonar um Alþýðuflokkinn. Jafnvel ritstfórinn, Vilhjálrhur Skúlason, skrifar leiðarann í blaðið undir fullu nafni, svo hann verði ekki bendlað- ur við annað efni þess, sem Árni skrifar undir ijmsum dulnefnum t.d. verkamaður, jafnaðarmaður eða húsmóðir. ★ JÓN PÁLMASON, bæjarfulltrúi Framsóknar- flokksins var lánssamur þegar greitt var atkvæði um Álverk- smiðjuna í bæjarstjórn. Tillagan var borin fram í jirennu lagi og gat því Jón verið á móti málinu eins og trúverðugum Fram- sóknarmanni sæmir, hann sat hjá eins og Jón Skaftason og að síðustu fékk hann vonandi að túlka eigin skoðun í málinu, ef hann hefur þá einhverja. Framsóknarflokkurinn missir nú dijgg- an þjón, þegar Jón hverfur úr bæjarstjórn, en bæjarbúar losna jmr við óþarfan skemmtikraft. ★ SÓLVANGUR. Samkvæmt upphjsingum for- manns Sólvangsnefndar, sem unnið hefur að undirbúningi bygg- ingar á dvalarheimili ft/rir aldrað fólk, eru vinnuteikningar að verða tilbúnar og verður fijrri hluti verksins boðinn út mjög bráðlega og stefnt að því að Ijúka byggingunni á árinu 1967. Nánar verður sagt frá þessu máli í næsta blaði. ★ HAMAR BARMAR SÉR í síðasta tölublaði yfir því, að þegar Sjálfstæðisflokkurinn komst hér til valda að loknum síðustu kosningum, hafi bæjarfulltrúar hans hvorki liaft hugmynd um livernig bæjarmálin stóðu né livað hafi átt að gera í þeim málum og þess vegna liafi Sjálfstæðisflokkurinn staðið ráðþrota í heilt ár meðan hann var að hugsa ujn málin. Að vísu gafst hon- um nokkur tími til atvinnuofsókna, enda það mál eflaust löngu þaulhugsað í öllwn atríðum. Á þeim framkvæmdum stóð því ekki. Þetta hugsunarleysi Sjálfstæðisflokksins átti þó ekki að koma Hamri á óvart, því að Alþýðublað Hafnarfjarðar hafði þegar fyrir kosningar bent á, að Sjálfstæðisflokkurinn hafði alveg gleymt stefnuskránni í hita bar- dagans. Hann hafði gleymt að hugsa. Og betra er seint en aldrei. Skyldi fæðast stefnuskrá hjá Sjálfstæðisflokknum fyrir kosningarnar núnaP Skyldu bæjarfulltrúaefni hans kannski vera byrjuð að hugsa? ★ EITT AF ÞVÍ sem Alþýðuflokkurinn benti á fyrir síðustu kosningar í bæjarstjórn, var nauðsynin á gæzlu- leikvöllum hér í bænum. Aðrir sýndu þessu máli þá lítinn áhuga. Nú eru sumir „listamenn‘ Sjálfstæðisflokksins farnir að tæpa á þessu. Er það vissulega virðingarverð framför. Þeir og aðrir mættu gjaman leggja lið ýmsum fleiri umbótamálum, sem Al- þýðuflokkurinn hefur lengi barizt fyrir, því að þau mál horfa öll til heilla fyrir Hafnarfjörð. Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins er í Alþýðuhúsinu • Skrifstofan er opin alla daga frá kl. 10—12 og 13—22. • SÍMAR 52399 og 50499. • Stuðningsmenn A-listarts eru hvattir til að háfa samband við skrifstofuna. Við unclirritun samninga. Hægra megin sita: Aðalsteinn Júlíusson vitamálastjári 'fremst, Jiá Pétur Pétursson for- stjóri. Við enda borðsins situr hafnarstjóri Gunnar Agústsson og hjá honum stendur Yngvi Rctfn Balclvinsson, hafn- arriefndarmaður. A móti jieim eru Pólverjarnir. Samið um kaup ó nýrri dróttar- braut í Hafnarfirði Nýlega voru undirritaðir samn ingar um kaup á stórri dráttar- braut fyrir Hafnarfjörð. I fyrsta áfanga á að vera hægt að taka upp 500 tonna þung skip, en síðar má stækka brautina, þann- ig að hægt verður að taka upp í hana allt að 950—1150 tonna þung skip. Er áformað að byggja dráttarbrautina innanvert við Suður-hafnargarðinn, og verður undirbúningur hafinn þegar í sumar, en miðað er við það, að brautin verði starfhæf árið 1968. Ætlunin er þá að leigja dráttar- brautina út til einkaaðila, sem taka hana til rekstrar. Fyrirkomulag á dráttarbraut- inni er nýtt. Höfð er nokkurs konar kví, sem skipið siglir inn í og er lyftupallur á botninum. Báðum megin eru vindur, sem draga lyftupallinn upp. Þá sezt skipið í vagn, og er hægt að draga það á láréttu yfir á annan vagn, sem kallaður er hliðar- færsluvagn. Er það síðan flutt á honum yfir að því stæði, sem því er ætlað að vera á. Með þessu fyrirkomulagi lokast skip aldrei inni vegna þess að annað er fyrir framan og alltaf hægt að sjósetja það. Lyftan, sem notuð verður, er keypt í Bandaríkjunum en lyftu pallurinn verður smíðaður í Pól- landi eftir amerískum teikning- um, þar sem það er ódýrara. Kostnaður við fyrsta áfanga er áætlaður 30 millj. kr. og greiðir ríkissjóður 40% af öllum kostn- aði. Samningana undirrituðu fyrir Hafnfirðinga Gunnar Agústsson, hafnarstj. í Hafnar- firði, Pétur Pétursson forstj. Iuu kaupastofnunarinnar og vita- málastjóri Aðalsteinn Júlíusson- EITT FEIMNIS- MÁLIÐ ENN? Sjálfstæðisflokkurinn hefur jafnan átt sér mörg feimnis- mál hér í bæ. En nú virðist hann hafa orðið sér úti um eitt enn, ef ekki tvö. Altalað er, að Hafsteinn bæjarstjóri sé senn á förum héðan úr bænum alfarinn. Þessu til stað- festingar er bent á það, að hann muni þegar búinn að selja hús Sitt við Brekkugötuna. Þetta hefur Hamri ekki þótt fréttnæmt hingað til, enda svo komið, að hvorki Sjálf- stæðisflokkurinn né Framsókn vilja hampa bæjarstjóranum sínum, sem þeir réðu hingað. Bæjarstjórinn er því sameigin- legt feimnismál Framsóknar og Sjálfstaíðisflokksins í Hafn- arfirði. Þeir eru fátalaðrí og lágtalaðri um hann nú, en þeir voru fyrir og eftir síðustu kosningar. En nú eru bæjarstjómarkosningar að ganga í garð á nýjan Ieik. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í undanförnum bæj- arstjórnarkosningum hampað mjög bæjarstjóraefnum sín- um FYRIR KOSNINGAR. EN NÚ ERU ÞEIR ÞÖGLIR SEM GRÖFIN. Hvað veldur? Fyrir hvað skammast þeir sín? Er feimnismálunum að fjölga hjá íhaldinu? Það er fullyrt, að Páll V. Daníelsson sé bæjarstjóraefni Sjálfstæðis- flokksins að þessu sinni. Hveis vegna þegir Hamar um þetta mál? Er þetta nýtt feimnismál hjá flokknum, — eða hvað? En feimnismálin verður oft að upplýsa, Hamar sæll. Þess vegna er nú spurt og Hamar krafinn svara: Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að reyna að gera Pál V. Daníelsson að bæjarstjóra eftir kosningar, og ef svo er, hvers vegna er það þá feimniSmál hjá flokknum? .

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.