Morgunblaðið - 03.08.1960, Page 6
6
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvitcudagur 3. ágfúst 1960
Ánœgja ríkti meÖ þiny
Norðurlandaráös hér
Rœtt irið nokkra fulltrúa
fararstundu
á brott-
EFTIR að fundum Norður-
landaráðs lauk síðla á sunnu-
daginn og þangað til fyrstu
fulltrúarnir héldu af landi
brott fáum klukkustundum
síðar, gáfu tíðindamenn
Mbl. sig á tal við nokkra
þátttakendur og inntu þá eft-
ir, hvað þeim væri efst i
huga. —
★
Meðal þessara manna var Ole
Björn Kraft, fyrrum utanríkis-
ráðherra Dana. Hann sagðist
gleðjast mjög yfir því, að Norð-
urlandaráðið, sem nú hefði
starfað í 8 ár, hefði einnig getað
haldið þing sitt hér á landi, eftir
að komið hefði verið saman til
funda í öllum hinum aðildarlönd
unum.
— Með því höfum við fundið
áþreifanlega skyldleikann við
íslenzku þjóðina, og þau marg-
háttuðu tengsl, sem í milli okk-
ar hggja, sagði Kraft, sem
á sínum 67 árum hefur kom-
ið fjórum sinnum til íslands og
sagðist alltaf hlakka til að heim-
sækja landið.
Efnahagsmálin tekin fastari
tökum
Kraft gaf sig einkum að efna-
hagsmálum á þinginu, en sam-
starf Norðurlandanna á því sviði
var mikið rætt af fulltrúum og
þótti hafa verið nokkuð laust í
reipunum. Um þau sagði Kraft
m. a.:
— Efnahagsmálin verða nú
tekin fastari tökum og gengið
frá ýtarlegri greinargerð um
þau fyrir næsta fund Norður-
landarláðsins. f>ar munu verða
dregnir fram bæði kostir og
annmarkar norrænnar samvinnu
á þessu sviði. f>egar þetta liggur
fyrir, verður auðveldara að gera
sér grein fyrir, hvað til bragðs
á að taka til að mæta þeim nýju
viðhorfum, sem skapazt hafa í
þessum málum með þátttöku
þriggja þjóðanna í öðru markaðs
bandalagi álfunnar — og hvern-
ig Norðurlandaþjóðirnar geta
náð beztum árangri á heims-
markaðnum.
Helge Seip, fertugur ritstjóri
og þingmaður frá Noregi, varð
heldur alvarlegur á svip, þegar
hann á flugvellinum fékk í
hendur eintak blaðs síns, með
grein um fund Norðurlandaráðs-
ins hér undir fyrirsögninni:
„Sumarskóli í skrafi ....“! Hon
nm virtist þó verða heldur
rórra, þegar í ljós kom að hún
var skrifuð undir nafni af göml-
um andstæðingi ráðsins. og við
tíðindamann M'bl. sagði Seip
m. a.:
Árangurinn mikilvægastur
í menningarmálum
— f»egar haft er í huga, að
þingið er haldið að sumarlagi og
r»ynt hefur verið að takmarka
mlálafjöldann eins og unnt var —
verður árangurinn að teíjast
góður. Mikilvægast er máske
það sem áunnizt hefur á sviði
menningarmálanna — en líka
mætti nefna sitthvað af vett-
vangi lögfræðinnar.
>á ræddi Seip nokkuð um við-
skiptamálin og þá meðferð, sem
þau hefðu fengið innan Norður-
landaráðsins, og vék í því sam-
bandi m. a. að Austur-Evrópu
viðskipunum, sem full ástæða
væri til að fjalla nokkuð um,
eins og fram hefði komið af
hálfu íslendinga.
í fornfrjálsu umhverfi
Erling Fredriksfryd, stórþings-
maður og formaður kristindóms-
fræðslu- og menningarmála-
nefndar norska stórþingsins,
sagði:
>að hefur verið mjög merki-
legt, að dveljast þessa daga á
íslandi og Norðurlöndin hafa
tengzt traustari böndum við
dvölina hér. Hér stóð vagga lýð-
ræðisins og er við vorum á >ing-
völlum, fannst mér ég standa á
helgri jörð. >að hefur sitt að
segja, að halda þing Norður-
landaráðsins á slíkum stað.
>etta frjálsa umhverfi,
höfðar til aldagamallar
rifjar uþp þá fornu frelsisþrá,
sem varð þess valdandi, að ís-
land byggðist.
'L
Atvinnumálaráðh. danski,
Kaj Bundvad, sem er á miðjum
sextugsaldri, hafði nj. a. orð á
því, að árangurinn af starfsemi
Norðurlandaráðsins væri i
tvennu fólginn: 1) Ályktunun-
um, sem gerðar eru á þingum
þess, og 2) Kynnum þeim, sem
á þingunum stofnast og treyst-
ast milli þátttakenda.
Jákvæð meðferð mála
— Meðferð mála á þinginu nú
var mjög jákvæð. í sumum efn-
um voru samþykktar ályktanir
— og í öðrum unnið mikilvægt
undirbúningsstarf, sém vænta
má góðs árangurs af í framtíð-
inni.
Bundvad lét mjög vel yfir há-
skólanum sem fundarstað og
rómaði einnig mjög þá gestrisni,
sem þeir þátttakendur í þinginu
hefðu orðið aðnjótandi hér.
Flestir fulltrúa á þingi Norður
landaráðsins fóru heim á léið á
sunnudagskvöldið. Laganefnd og
félagsmálanefnd fóru þó norður
til Akureyrar og koma aftur í
fyrramálið, en fara þá beint
seml heim til sín.
sögu,| j. h. a. — Ól.
Er ráðherrar og þingmenn af fundi Norðurlandaráðs voru á
leið í flugvél á sunnudagskvöldið, birtist formaður Dansk-
ísl. félagsins, dr. Friðrik Einarsson, læknir, á vellinum og
rétti gríðarstóran lax að Viggo Kampmann. forsætisráðherr*
Dana. Var laxinn veiddur á sunnudag. Hér sést forsætisr ið-
herrann taka við laxinum úr hendi Friðriks.
(Ljósm. Sv. >ormóðsson).
Norrœnt tryggingamót
hefst í Reykjavik í dag
I DAG hefst í Reykjavík nor-
rænt almannatryggingamót.
Verður það sett í hátíðasal
Háskólans kl. 10,30. Þetta er
fimmta norræna almanna-
tryggingamótið, sem haldið
hefur verið og hið fyrsta hér
á landi. Þetta er jafnframt
eitt fjölmennasta norræna
mót sem hér hefur verið hald-
ið og sitja það 156 fulltrúar,
rúmlega hundrað frá hinum
Norðurlöndunum og um 50
íslendingar.
ár Mikili undirbúningur
Tryggingamótið stendur 3.
—5. ágúst. Starfað verður í fjór-
um deildum, slysa-, sjúkra-, líf-
eyris- og atvinnuleysistrygg-
ingadeild. Starfa deildirnar í
Alþingishúsinu, Tjarnarkaffi og
í Framsóknarhúsinu, en alls-
herjarfundir verða haldnir í há-
tíðasal Háskólans.
>að hefur verið mikið verk að
undirbúa svo stórt mót hérlendis.
í undirbúningsnefndinni eiga
sæti: Sverrir >orbjörnsson for-
stjóri, Guðjón Hansen trygginga-
fræðingur, Gunnar J. Möller
framkvæmdastjóri, Hjálmar Vil-
hjálmsson ráðuneytisstjóri og
Sigurður Sigurðsson landlækmr.
Fulltrúar frá hinum löndun-
um hafa verið að koma til lands-
ins undanfarna daga og þeir síð-
ustu eru væntanlegir með skip-
inu Heklu snemma í dag, en
margir munu búa um borð í skip
inu meðan mótið stendur, enda
hefur verið erfitt að finna hótel-
pláss fyrir alla þátttakendurna.
Konur
slasast
TVÆR konur meiddust í bíta-
árekstri á sunnudagskvöldið á
Miklubrautinni, við mót Eskihlíð
ar. Hafði annar bílanna ætlað
að beygja af Miklubrautinni inn
í Eskihlíðina, en þá kom bíll á
móti og varð harkalegur árekst-
ur. Kona séra Gunnars Árnason-
var í öðrum bílanna og meiddist
hún svo að flytja varð hana í
slysavarðstofuna einnig var flútt
þangað kona úr hinum bílnum,
Ingibjörg >orsteinsdóttir Eskihlíð
21. Báðir bílarnir stórskemmdust.
♦ Óverðskulduð árás
Húsmóðir í Ólafsvík skrif-
, <
ar: — Kæri Velvakandi. Eg
get ekki látið hjá líða að mót-
mæla hinni óverðskulduðu ár-
ás, sem „'húsmóðir" í Reykja-
vík gerir á okkar hvaladráp.
í fyrsta lagi lýsir hún mik-
illi ógleði sinni. Sú kona sem
í 270 kílómetra fjarlægð finn-
ur til ógleði, væri ráðlegast
að leita til læknis þegar í stað.
í öðru lagi heldur hún því
fram, að Ólsarar hafi af tómri
drápfýsn rekið hvalina á land
upp og drepið þá og síðan fa'r-
ið að hugsa um ráð til að nýta
aflann. >að myndi kannske
hressa hana að fá þá vit-
neskju að hvalirnir eru allir
með tölu komnir í lóg, kjötið
í frystihús, spikið suður í
Hvalfjörð.
Færeyingar mænustungu
alla hvalina, sem er skjótasti
dauðdagi sem hvalur getur
fengið. Get ég lýst ánægju
minni yfir kjötinu. Úr því má
búa til ágætan mat.
Húsmóður í Reykjavík væri
óhætt að reyna að gera sér í
hugarlund, hve villimannlegt
dráp hefur átt sér stað í hvert
sinn, sem hún lætur svið í
pottinn, og kannske fyndi hún
þá til ógleði.
• Varð ekki var við há-
mmmmm^mmmmmmmmmmmammmmammmmm^mmmmm
s|>ennustrenginn
Jarðýtustjórinn, sem sleit
FERDINAIMD
☆
rafmagnsstrenginn í Kópa-
vogi á dögunum, skrifar á
þessa leið m. a.:
— Ég held að Kata í Kópa-
vogi viti ekki hvað hún er a8
skrifa um. Það er ekki satt að
ég hafi trassað að láta vita
um slit strengsins því ég veit
ekki á hvaða tíma hann slitn-
aði.
Starfsmenn Rafmagnsveit.
unnar gáfu rangar upplýsing-
ar um legu strengsins. >eir
tjáðu starfsmönnum bæjar-
skrifstofunnar, að hann væri
sprengdur niður í klöppina og
lægi í miðjum veginum. Hann
var ekki merktur
Um kl. 15.30 kom húsmóðir
til miín og spurði mig hvort
ég hefði orðið var við raflögn.
Sagði hún að rafmagnslaust
væri orðið í nágrenninu. Ég
hafði ekki orðið var við neina
raflögn, en taldi þó réttara að
hringja til RR og vita hvort
bilunin stafaði af mínum
völdum.
^•_Tíndust_á^staðiim
Er ég hafði talað við nokkra
menn taldi einn þeirra að svo
gæti verið og komu þeir
fyrstu á bilunarstaðinn um
klukkutíma síðar. Var liðið
svo að tínast á staðinn til kl.
18. Leituðu sumir strengsins í
lyngmóunum sunnan vegar,
en hann lá utan vegar í 10 til
25 centimetra dýpt, ómerktur,
— Jarðýtustjóri.