Morgunblaðið - 03.08.1960, Síða 20

Morgunblaðið - 03.08.1960, Síða 20
Þórsmerkurför Sjá bls. 8. 173. tbl. — Miðvikudagur 3. ágúst 1960 IÞROTTIR er á bls. 18. Eyjólfur hyggst synda trá Kefla- vík til R.-víkur í NÓTT hugðist Eyjólfur Jóns. son sundkappi gera tilraun til að synda frá Keflavík til Reykja víkur. Kl. eitt í nótt lagði Eyjólfur af stað frá Keflavík. Tveir bát- ar fylgdust mcð honum, Gísli Johnsen og róðararbátur, sem fjórir lögreglumenn reru, allt binir mestu kappar. Svipuð vegalengd og yfir Ermarsund Bein sundiína milli þessara staða er 32 km og 150 metrar, en Ermarsund er tæpir 32 km á breidd. Hins vegar var sjávar- hiti í Keflavík á miðnaetti í nótt 11,2 stig, en í fyrra, þegar Eyjólf ur reyndi við Ermarsund, var það 18,5 stiga heitt. Eyjólfur býst við að vera 18—19 tima á leiðinni, ef allt gengur að ósk- um. Veður var stiilt og gott. — Þess má geta til samanburðar, að 0 00000-00 0-0 0 0 0 0 0 0 Brúarár- slysiö ÞESSI mynd er tekin við brúna á gamla Kóngsvegi við Brúará sumarið 1958. Sýnir hún, hvar hestar koma aust- an að og fara í röð yfir brúna og vestur veginn vest- an hennar. Brezki skátahópurinn kom vestan að ánni og reið Stuart Mclntosh upp með henni og upp fyrir flúðina, sem sést lengst til vinstri á myndinni. Þar lagði hann í ána, sem ekki virðist vera stór né straumhörð, en hún leynir á sér, enda sést aðalstrengur- inn ekki á myndinni, því ár- bakkinn að vestan skyggir á. Lengst til hægri á myndinni eða á þeim hluta hennar, sem á forsíðunni er, sést gamla brúin, en undir henni fannst hestur sá, er Stuart reið, og nokkru neðar lík hans sjálfs. Frásögn af slysinu er á bls. 13. — Ljósm. vig. 1958 var Eyjólfur 13 og hálfan tíma frá Reykjavík upp að Akranesi, en þangað eru 23 km. Eyjólfur og fylgdarmenn hans tóku skýrt fram, að hér væri einungis um æfingu að ræða, n. k. tilraun hvað varðar kuldaþol og annað úthald, — en að vísu tilraun með Ermarsund í huga. Júlíus Havsteen Júlíus Havsteen sýslumaður látinn JÚLÍUS IIAVSTEEN, fyrrver- andi sýslumaður andaðist hér í Reykjavík aðfaranótt 31. júlí sl. eftir stutta sjúkdómslegu, rúm- lega 74 ára að aldri. Þessi þjóð- kunni embættismaður var fædd- ur á Akureyri 13. júlí árið 1886, snur J. V. Havsteen kaupmanns og etazráðs og Þóru Havsteen konu hans. Hann varð stúdent árið 1905 og lögfræðingur frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1912. Júlíus Havsteen var í nokkur fyrsxtu árin eftir embættispróf sitt settur bæjarfógeti á Akureyri og Siglufirði. Sýslumaður Þing- eyjarsýslu var hann frá árinu 1920 þar til hann varð sjötugur árið 1956 eða i 36 ár. Hann gekkst fyrir fjölmörgum umbótum í hér- uðum sinum og naut þar al- mennra vinsælda. I slysavörnum fslendinga tók hann mikinn og virkan þátt. Aukin vernd ís- Ienzkra fiskimiða var honum hjartfólgið áhugamál og beitti Arekstur KLUKKAN ellefu á sunnudags- kvöldið varð árekstur á mótum Miklubrautar og Eskihlíðar. Þar óku saman P-70 bifreið úr þjáli og Opel-bíll. Kona í fyrrnefnda bílnum viðbeinsbrotnaði og skrámaðist, en í hinum hlaut kona höfuðhögg. Þær voru báðar fluttar í Slysavarðstofuna. hann sér mjög'fyrir því um ára- tugaskeið. Júlúus Havsteen var kvæntur Þórunni Jónsdóttur, Þórarinsson- ar fræðslumálastjóra, hinni glæsi- legustu konu. Áttu þau átta mann vænleg börn, sem öll eru á lífi. Frú Þórunn lézt árið 1939. Július Havsteen var mikill at- ofkumaður. Má segja, að hann hafi verið vinnandi fram til hinztu stundar. Þessi merki maður verður jarð- sunginn frá Dómkirkjmnni 10. ágúst n.k. iystisnekkju hvolfir undir Finnhoga Rúf BLAÐIÐ hefur haft spurnir af því, að fyrir skömmu hafi legið við slysi hjá skemmti- siglingamönnum í Fossvogi. Finnbogi Rútur Valdimarsson, bankastjóri, hefur fyrir nokkru fengið sér seglbúna lystisnekkju og skemmt sér við siglingar a voginum. Fyrir nokkru var hann að ^sigla á lystiskipinu ásamt öðrum manni, sem mun hafa verið að þjálfa bankastjórann í siglingalistinni. Tókst þá svo slysalega til, samkvæmt frásögn sjónarvotta, að er þeir vildu snöggvenda snekkjunni, láðist þeim að færa sig til í henni eftir kúnstarinnar reglum til þess að hún reisti sig réttilega í beygjunni, með þeim afleiðing- um að henni hvolfdi og menn- irnir hrukku báðir útbyrðis. Til allrar hamingju höfðu þeir báðir björgunarbelti um hálsinn, en án þeirra telja sjónarvottar, að hætta hefði verið á ferðum. Tókst þeim að svamla í áttna að landi, unz þá tók niðri á grynningum, en þaðan gengu þeir í land. Það verður víst aldrei nóg- samlega brýnt fyrir þeim, sem fást við skemmtisiglingar á sjó eða vötnum, — en þeir hafa víst aldrei verið fleiri en í sumar —, að fara varlega, og sjálfsögð Héraðsmót að Laug- arhakka ásunnudag Stofnfundur Sjálfstæðisfélags i V.Hún. SJÁLFSTÆÐISMENN í Vest ur-Húnavatnssýslu halda hér aðsmót að Laugarhakka sunnudaginn 7. ágúst kl. 5 síðdegis. — Á mótinu flytja ræður og ávörp þeir Einar Ingimundar- son, alþm. og bændurnir Guð- jón Jósefsson og Óskar Leví. Árni Jónsson, óperusöngvari syngur einsöng með undirleik Hafliða Jónssonar og leikararnir Gunnar Eyjólfsson og Ómar Ragnarsson flytja skemmtiþátt og syngja gamanvísur. Um kvöldið verður stiginn dans. Sama dag kl. 2 e. h. hefur ver- ið boðað til stofnfundar félags Sjálfst'æðismanna í Vestur-Húna vatnssýslu. Verður fundurinn haldinn að Laugarbakka og mun Birgir Isl. Gunnarsson stud jur. mæta á fundinum. regla ætti það að vera hjá öll- um að hafa jafnan spennt á sig björgunarbelti. Ók inn í stofu KLUKKAN 3 í gærdag vildi það slys til, að bifreið ók á hús norður í Sigliufirði og staðnæmdist ekki fyrr en inni i stofu. Þetta vildi þannig til, að bifreiðinni F-26, sem er stór vörubifreið, var ekið niður halla ofan hússins nr. 42 við Hlíðarveg. Hemlar bifreiðar- innar urðu þá skyndilega ó- virkir, svo að hún skall á töluverðri ferð á austurhlið hússins, sem er nýreist íbúð- arhús. Veggurinn brotnaði fyrir vélarhúsi bílsins, sem staðnæm's t svo inni í stofu. Gatið í veggnum er um einn og hálfur metri á breidd og metri á hæð. Skemmdir urðu furðulitlar á bilmum, og bíl- 1 stjórinn slapp ómeiddur. Það er talið hafa orðið honum til láns, að veggurinn, sem er hlaðinn, lét undan, því að ella hefði höggið orðið harð- ara. Eitthvert tjón mun hafa orðið innanhúss, en eins og áður var getið er húsið ný- byggt, og húsmunir að miklu leyti nýir. — Stefán. Drengirnir komnir heini Á mánudaginn var auglýst eftir tveimur drengjum í útvarpinu. Höfðu þeir haldið austur á Þórs- mörk um heigina, en ekki komið heim til sín, þegar búizt var við þeim. í gær komu þeir svo til Reykja- víkur heilu og höldnu. Höfðu þeir gist á bæ fyrir austan, en ekki athugað að tilkynna það heim til sín.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.