Morgunblaðið - 03.08.1960, Side 19

Morgunblaðið - 03.08.1960, Side 19
Miðvikudagur 3. ágúst 1960 MORGVNBLAÐIÐ 19 Gómsœt jarÖar- ber í verzlunum U M síðustu helgi kom hing- að til lands, með flugvél Flugfélags íslands, heldur nýstárlegur farmur, því með vélinni var 5 tonn af fryst- um berjum, jarðarberjum, hindberjum og bláberjum. — Varningur þessi kom frá Hol- landi og er fluttu- inn af Samkaup h.f. Vita — framleiðsla Forráðamenn Samkaup hf. leyfðu fréttamönnum að kynnast jþessari framleiðslu í gær, er Þrír svöluungar — Kirkjubæjarklaustri, 2. ág. ÞEGAR Vilhjátmur Eyjólfs- son á Hnausum í Meðallandi var á ferð hér í dag, barst í tal svöiuhreiðrið með ófrjóu eggjunum á Svínafelli í Ör- æfum, kom þá upp úr kafinu að svala er nú að koma upp ungum sínum í fjóshlöðunni á Hnausum. Fónu svöluhjónin að búa hreiður sitt upp á sperrum í hlöðunni um miðjan júní og var ekki kastað höndunum til þess verks. Gekk nú allt eins og í sögu og komu 4 egg í hreiðrið. Mánudaginn 4. júlí varð fólkið á bænum vart við að meira en lítið var um að vera á svöluheimilinu. Þegar að var gáð lá annar fuglanna (kvenfuglinn?) dauður á eggjiunum, en hinn var að reyna að velta honum út úr hreiðrinu. Var dauði fuglinn fjarlægður, og hinn settur á eggin og ungaði hann þeim út. Eitt var fúlegg, en ung- arnir 3 eru hinir sprækustu og farnir að fljúga um hlöð- una. Svalan hefur, ef svo má segja, lagt undir sig hlöðuna og varið ríki sitt af mesta skörungsskap. Er henni mein illa við allan umgang, óg hnindurinn fær ekki að koma þar inn fyrir dyr. Þess skal getið að Hnausar eru ekki langt frá Steinsmýri í Meðallandi, en þar verpti svala á árunum 1930—30. — Fréttaritari. ___________________________ Bíl- slys ÞAÐ slys varð á sunnudaglnn suður í Gerðum, að bifreið ók út af vegi og valt, en tveir menn, sem í hennivoru, slösuðust. Siysið vildi til með þcim hætti, að skammt fyrir innan Garð var G-bifreið — eldri gerð af Ford — á ferð seinni hluta sunnudags. Af einhverjum ástæðum Ienti hún út af veginum og ók þar nokkurn spöl meðfram og á veg- brúninni, unz bifreiðarstjóranum tókst að koma henni upp á veg- inn aftur en lenti þá út af hinum megin. Þar fór hún tvær veltur. í bílnum voru tveir menn. Öku- maðurinn mun hafá slasazt mjög illa og m.a. brotnað í baki. Var hann fluttur í sjúkrahúsið í Kefla vík og leið eftir vonum i gær. Farþeginn slasaðist mun minna. Bifreiðin er afar illa útleikin og mun nær gerónýt. þeir boðuðu þá upp á Naust, þar sem berin voru borin á borð fyr- ir fréttamennina. Þeyttur og fljótandi rjómi var og á borðum og var þessu lostæti gerð góð skil af frétamönnunum. UM fyrri helgi komu 10 herskip, tundurspillar og freigá'tur inn á höfnina í Grimsby. Þetta var hluti af þeim mikla herskipaflota sem Bretar hafa sent á tslands- mið til að vernda togara sína fyr- ir íslenzku landhelgisgæzlunni. Mikið. var um dýrðir i Grimsby til að fágna herskipunum. Hátíða- hÖId í sambandi við komu herskip anna stóðu í skemmtigarði borg- arinnar óg söfnuðust þúsundir manna þar saman. Voru hinir brezku sjóliðar gerðir heiðurs- borgarar Grimsby og munu héð- an í frá hafa rétt til að ganga um götur borgarinnar með sverð dregin úr slíðrum, með byssu- stingi á byssum og einnig mega Hér er um að ræða nýjan inn- fluttning og mjög kærkominn. Eins og fyrr segir er hér um mjög þekkta hollenzka vöru að ræða. Berin eru í mjög smekk- legum og þægilegum umbúðum og verður útsöluverð þeirra sem hér segir. Jarðaber í lausu kr. 80,50 kílóið, en í tveggja punda kössum kosta þau 74,95 kg. Hind'berin eru í 17ö gr. pakkn- ingu og kosta 23,00 og bláberin eru í 225 gr. pakkningu og kosta 20,85. þeir berja bumbur, eins og segir í heiðursborgaraskjalinu. Við hátíðahöld þessi flutti H. Bracken yfirmaður verndar- deildarinnar ræðu, þar Sem hann sagðist fýlgjast af miklum áhuga með atburðunum við fsland og kvaðst hann vona að þetta fengi allt góðan enda. Við athöfnina stpðu 400 sjólið- ar heiðursvörð og gengu síðan fylktu liði um götur Grimsby. Flotadeildin dvaldist í fjóra daga í borginni og segir Fishing News að margt hafi verið til skemmt- unar, kokkteilboð, dansleikir, knattspyrnu- og krikketkappleik- ir og si^lingakeppni. Öllum þeim sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, skeytum og hlyjum handtökum á áttatíu ára afmæli mínu, 15. júlí s.l., þakka ég hjartanlega. Guð blessi ykkar öll. Abígael Halldórsdóttir, Litlabæ, Vatnsleysuströnd. Hjartanlega þakka ég öllum sem glöddu mig með heim- sóknum, gjöfum og skeytum á sjötugsafmæli mínu 28. f- m- — Sérstaklega þakka ég konum þeim sem rétt hafa heimili mínu hjálparhönd. Sigurjón H. Sigurðsson, Teig, Akranesi. UíNI SIGURJÖNSSON frá Hörgshóli í Vesturhópi andaðist 1. ágúst. Vandamenn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma ELÍSABET ÁBNADÓTTIK fyrrum húsfreyja að Garði, Fnjóskadal, verður járðsungm fimmtudaginn 4. ágúst n.k. og hefst athöfnin með bæn kl. 1 e. h. frá heimili hennar Stórholti 5 Glerárhverfi, Akureyri, kveðjuathöfn frá Akureyrar- kirkju kl. 2 e. h. Jarðsett verður að Grund í Eyjafirði sama dag. Ásrún Pálsdóttir, Jón G. Pálsson, Ásmundur Pálsson, Margrét Hallgrímsdóttir, Garðar B. Pálsson, Kristbjörg Líney Árnadóttir, Borghildur Garðarsdóttir, Guðm. J. Guðmundsson, Páll G. Björnsson, Hulda A. Garðarsdóttir, og barnabörn. Þakka auðsýnda sanr.úð við andlát og jarðarför mannsins míns HEL«A JÓNASSONAR fyrrverandi héraðslæknis og alþingismanns. Sérstaklega vil ég þakka Rangæingum fyrir vináttu og hlýhug fyrr og siðar. Oddný Guðmundsdóttir. Minningarathöfn um STKI ÁN LUÐVlKSSON frá Heiði í Fáskúrðsfirði, fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 4. ágúst og hefst kl. 10,30 f h. — Athöfninni verður útvarpað. Systkinin. Höfnin í Grimsby full af herskipum SIGRÍÐUR KJARTANSDÓTTIR prestsekkja frá Holti undir Eyjafjöllum, and''.ðist sunnudaginn 31. júlí síðastliðinn. Börn, tengdaböru og bamabörn. D.VVIÐ KRISTJÁNSSON kaupmaður, Skólavörðustíg 13, andaðist mánudaginn 1. ágúst. líörn og tengdabörn. Maðurinn minn og faðir okkar LÁRUS BJARNASON Eskihlíð 20A, andaöist 31. júlí. — Jarðarförin ákveðin frá Fossvogs- kirkju n.k. fimmcudag ki. 10,30 f. h. — Blóm vinsam- legast afþökkuð. Elísabet Jónasdóttir og börn. Móðir okkar INGIBJÖRG JÚLÍANA INGIMUNDARDÓTTIR verður jarðsett frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. ágúst kl. 10,30. — Athöíninni verður útvarpað. Ragnheiður Guðmundsdóttir, Guðmundur Jón Magnússon. Jarðarför EMELlU ÞORSTEINSDÓTTUR Grund.Akranesi, sem lézt þann 30. júlí s.l. fer fram fimmtudaginn 4. ágúst og hefst með húskveðju frá heimili hennar kl. 2 e. h. Blóm eru vinsamiegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir. Vandamenn. Fiðir og tengdafaðir okkar ISLEIFUR GlSLASON sem andaðist 29. júlí s.l.,verður jarðsettur frá Sauðár- krókskirkju laugardaginn 6. ágúst klukkan 2. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Elísabet Isleifsdóttir, Kristjón Kristjónsson. Hjartkæri eiginmaður og faðir ERIK FRÍMANN JENSEN trésmiður, Heiðargerði 96, x sém andaðist 23. júlí verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 4. ágúst kl. 13,30. Ánna Jóusdóttir, Ester Frímann Eiríksdóttir, Jón Frímann Eiríksson. Hugheilar þakk'r fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför konu minnar, móður okkar, dóttur og systur ' SIGURKÖGNU VILHJÁLMSDÓTTUR Steinþór Hóseasson og synir, Guðrún Sigmundsdóttir, Tómas Vilhjálmsson. Maðurinn minn SVEINN TÓMASSON málarameistari, Bræðraborgarstíg 35, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 4. ágúst kl. 3 e. h. ■— Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd vandamanna. Sigríður Alexandersdóttir. Þökkum hjartaniega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar .tengdamóður og ömmu GUÐBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR Ólafía Ólafsdóttir, María Ólafsdóttir, Briet Ölafsdóttir, Sigurbjörg Olafsdóttir, Snorri Ólafsson, Óskar Ólafsson, tengdabörn og barnabörn. Þökkum auðsýr-da samúð og vinarhug við andlát og útför Séra HARALDAR ÞÓRARINSSONAR Sólvöllum 2, Gai-ðahreppi. Vandamenn. Innilega þökkum við öllum nær og fjær, sem hafa auðsýnt okkur samúð og hlýhug við andlát og útför VAI.GERÐAR G. NORÐDAHL frá Hólmi. Eggert G. Norðdahl, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.