Good-Templar - 01.01.1903, Blaðsíða 14
10
ræðumenn þar Indriði Einarsson og Pétur Zóphóníasson. Fund-
ir þessir hafa verið fremur velsóttir, sérstaklegu.tveir hinirsiðustu.
3. Fyrirlest.ur Hjálniars Sigurðssoriur: „Hvert sem vér
lítum“ var prentaður í Good-Templar, og siðan sérprentaður.
Hann er nú til söiu, með sama fyrirkomulagi og „Meira ijós,“
hjá U. R. og ættu stúkurnar að kaupa hann. Honum hefir ver-
ið útbýtt um Hraunin til hvers búanda þar.
4. Samþykt var að setja leyninefnd til þess að koma
upp óleyiilegri vínsölu; lieíi eg skipað þá nefnd, og hún hefir
þegai starfað. nokkuð, en ókunnugt er mér um, hvort það hef-
ir borið árangur. En nauðsyn er fyrir Umdæmisstúkuna að
iiafa nóg fé, er hún ræðst í slíkt, og þvi hefir framkvæmda-
nefndin beðið Stór-Stúkuna um styrk - - 100 krónur— en svar
ókornið. Ætla má, að hún veiti það, þegar um slíkt þarfaverk
er að ræða.1)
5. Stór-Stúkan fól umdæmisstúkunni að sjá um undir-
skriftasöfnunina í Umdæminu. Yar valin nefnd til þess að sjá
urn það, en þeim er ekki enn lokið. Á Kjalarnesinú fengust
ekki undirskriftirnar, og var maður því sendur þangað að safna
þeim, kom hann með undirskrift frá 22 af 38 kjósendum, en
von er á henni erm frá 10 kjósendnin. Af þessum 22 voru
10 í fremsta dáiki, og 6 í hvorurn hinna.
6. Umdæmisstúkan lét safna undirskriftum hér, þegar
Muus kaupmaður bað um vínsöluleyfl. Um það hvernig það
gekk og árangur þess er áður kunnugt af Good-Templar.
7. Nefnd var sett til jiess að kenna mönnum siðastartið,
og e.r hún að byrja á starfi sínu.
8. Framkvæmdanefndin gaf út hagnefndarskrár stúkn-
anna í einni bók. Er það framför mikil, sérstakiega þar sem
það reynist enginn kost.naður fyrir stúkuna né undirstúkurnar.
Nauðsynlegt er, að hagnefndarskrárnar séu eftirleiðis alt af
sendar mánuði fyrir hver ársfjórðungamót, og ritinu sé býtt vel
út meðal meðlirnarma.
1 trú von og kærleika.
Reykjavík 1. Nóv. 1902.
J^éíur jíópýóníasson.
(U. æ. t.)
i) Styrkinn hefir hún veitt.