Good-Templar - 01.07.1903, Side 4

Good-Templar - 01.07.1903, Side 4
68 hryglu og angistarvein, sjái fyrir mér fjölda slysfaranna og öll sjálfsmorðin, ’sem hann kemur til leiðar. En þeir sem áfengið selja, standa uppstroknir fyrir innan húðaiborðið með blíð- iegu brosi ogdásamlegum dánusvip, oghalda áfram að veita synda- flóði af vínföngum út yflr landið. Og löggjafarvald þjóðarinnar er svo önnum kafið að semja nýjar stjórnarskrár, ný kosningalög, taka upp ný og leggja niður gömul embætti, o. s. frv., að eigi er við að búast að það megi vera að að taka eftir öðrum eins smámunum og því, að hundruð og aftur hundruð af sonum landsins eyðileggi sig og lífsgæfu sína, og deyi fyrir örlög fram drykkjumannadauða; að hundruð efnilegra ungra sjómanna eyði öllum sjö mánaða arði sinum í brennivín ogskaðskemmi sjálfa sig og svívirði stétt sína. Jú, menn hrista höfuðin yflr fáráðlingunum, ræfilsdónunum, og fást allmikið um vitleysu þeirra, en gera ekkert, og hinir „fínu“ menn drekka fin vín og haga sér oft ófínna en dónarnir. Er þetta ekki myrkur! Blindir löggjafar leiða blinda þjóð ofan í gröfina. Eða er það ekki blindni, að þjóðfélagið skuli þola og láta viðgangast eins svívirðiiega og skaðlega verzlun og áfengisverzlunin er og hafa tekjur af henni? Nema það koini til af því að þjóðfélag vort sé of kristilegt eða of þjóðrækið! En erfitt mun verða að hrekja, að öll áfengisverzlun yfir höfuð or ósiðleg, ókristilcg og ómannúðleg; stórhneyksli fyrir krirkjuna og smánarhlettur á lög- gjöfinni. — íöð þætti nær líflátssök, ef sonur væri valdur að og léti viðgangast, að móður hans væri byrlað eítur; en hvað eiga þeir skilíð, sem brugga eitur og löghelga eitur lnmda móður- jörð sinni og taka blóðpeninga fyrir? f’jóðrækið er það ekki.— Myndi nokkur geta beðið „faðir vor“ fyrir áfengisverzluninni eða signt öltunnurnar í Jesú nafni? Nei, því kristileg er áfengisverzlunin ekki. Og þó þolir hið svo kallaða kristna þjóðfélag, að flutt sé inn i landið sú vara, sem menn fyrirfram vita að ieiða muni eymd og volæði og spiiling yfir hundruð landsins barna, já, ekki einasta þola hana, heldur láta jafnvel landssjóðinn hafa inntekt af gæfuráni margra einstakra meðlimá þjóðfélagsins. Tollur er iagður á, og til þess að hann e'gi missist, vilja menn ekki stífla algerlega áfengiselfuna, enda þótt menn viti að hundr- uðum saman drukni menn í henni. Menn heyra veinin og ópið úr þeim, sem eru að farast; menn líta snöggvast við,

x

Good-Templar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.