Muninn - 01.11.1951, Síða 4
4
MUNINN
Fimmtándi aðalfundur í. M. A. var
haldinn miðvikudaginn 10. október.
Axel Kvaran, V. bekk M., setti fund-
inn og skipaði Ólaf Ásgeirsson fundar-
stjóra og Einar Baldvinsson fundarrit-
ara. Fráfarandi formaður, Jón Arn-
þórsson, flutti skýrslu félagsins frá síð-
astliðnu ári. Hann gerði og grein fyrir
starfi og fjárhag þess, sem er mun betri
nú en undanfarin ár, þar eð félagið
er skuldlaust.
Við stjórnarkosningu voru þessir
kosnir: Formaður: Jóhannes Sölvason,
varaformaður: Axel Kvaran, aðrir
meðstjórnendur: Vilhjálmur Þórhalls-
son, Hreggviður Hermannsson og
Stefán Hermannsson. Að kosningu
lokinni kvaddi hinn nýkjörni for-
maður sér liljóðs og þakkaði Jrað
traust, senr honum væri sýnt, og lét í
ljós þá von, að starf félagsins yrði til
fyrirmyndar á komanda vetri.
Þann 15. október var aftur boðað
til fundar, og skyldi fara fram stjórn-
arkjör í annað sinn. Málavextir voru
Jreir, að við stjórnarkjörið 10. október
kusu nokkrir nemendur úr svokölluð-
um námsflokki. Á þessum forsendum
þótti stjórn í. M. A. ólöglega kosin,
og var því boðað til þessa fundar. Til-
laga var borin fram um, að stjórnin
vænta af formanni þess, sem er maður
ótrauður. Má og búast við, að mælsku-
menn reyni málbein sín í vetur, enda
er vel, að orðsins list sé í heiðri höfð.
Enn hefir eigi heyrzt um stofnun
bridgefélags, en þess er að vænta, að
Jrað verði innan skamms.
B. R.
yrði öll endurkjörin. \rar luin sam-
Jrykkt með yfirgnæfandi meirihluta.
Knattspyrnumót í. M. A. hófst á
Þórsvellinum Jrann 17. okt. Er Jrað
úttökumót, þannig að hver bekkur,
sem tapar tveinr leikjum, er úr mót-
inu.
Keppt er um eirstyttu, sem Hannes
Halstein, stúdent ’47, gaf, og skal hún
al'hent Jreim, er sigrar alla sína keppi-
nauta.
Úrslit þeirra leika, sem kunn eru:
4. bekkur við 3. bekk 3:1
6. 2. 3:0
5. „ „ L 20:0
4. 2. ,, 1:0
6. „ L 20:0
5. „ „ 3. 3:2
4. „ 6. 3:0
5. „ „ 6. ,, 2:0
Eltir þessa leiki stendur því mótið
þannig, að 4. og 5. bekkur eiga eftir
að keppa úrslitaleikina, þar sem þeir
hafa ekki tapað neinum leik enn, og
skal óspáð um, hvor bera muni sigur
úr býtum. Hinir einstöku leikir hala
sumir hverjir verið mjög ójafnir, eins
og markafjöldinn sýnir, enda eru Jrað
yfirleitt einstaklingar, sem bera liðin
uppi, en ekki hópurinn í heild. Ein-
stakir leikir verða ekki ræddir hér, en
örlítið minnst á liðin.
U ndirbúningsdeildin
sendi lið til keppni, sem var svo
óheppið að Jrurfa að leika við 5. og 6.
bekk. í liði þessu eru, ef til vill, marg-
ir, sem eiga eftir að sýna hæfileika í
náinni lramtíð, en vegna ofureflisins
gerði liðið lítið annað en Jrvæla í
lmapp fyrir framan mark sitt og senda
knöttinn út af, ef færi gafst.
II. bekkur
stóð sig allvel og sýndi öðruhvoru
viðleítni til samleiks, og er vonandi,
að þeir reyni að gera alvöru úr þeirri
viðleitni. Af einstökum mönnum má
nefna Jakob, Jósep, Árna og Óla
markvörð, sem allir sýndu ágætan
leik.
III. bekkur
sendi allsæmilegt lið til leiks. Og ef
skotmenn hefðu verið fyrir hendi,
hefðu upphlaup þess, sem voru oft
byggð á góðum samleik, getað orðið
árangursrík. Stefán og Kristinn eru
beztu menn liðsins.
IV. bekkur.
Lið 4. bekkjar er mjög harðsnúið
og að líkindum heilsteyptasta lið móts-
ins, og eru Jreir mun betri nú en í
fyrra, enda hafa þeir fengið mikinn
styrk nýrra manna. Annars einkennir
liðið mest snerpa og góð samvinna.
Beztu menn framlínunnar eru Frið-
leifur og Sverrir, einnig er Sveinn all-
góður. í vörninni bar mest á ísfirðing-
unum Sigurði og Ágúst, að hinum
ólöstuðum.
V. bekkur.
I.iðið er nokkuð sundurlaust í
heild, en hefir á að skipa góðum ein-
staklingum. Framlínan er betri hluti
liðsins og sýndi meiri dugnað og bar-
áttuvilja en vörnin, sem hafði oft ekki
góðar staðsetningar og fylgdi upp-
hlaupunum ekki nógu vel eftir. Lang-
bezti maður liðsins er Vilhjálmur,
einnig er Bjarni allgóður. Af varnar-