Muninn

Volume

Muninn - 01.05.1959, Page 4

Muninn - 01.05.1959, Page 4
vistinni og skólalít'inu. Hann á að kenna mönnum (þ. e. nemöndum) að hvílast lieilsusamlega í vikulokin, teygja þá út úr bæjarrykinu og úr Bótinni og lélegum danskrám upp í fjallaloft og fjalladýrð, vera ósýnileg og listfeng lögregla skólans, laða nemendur til vasklegra fjallgangna og leika undir beru lofti. Þangað á að safna íslend- ingasögum, þjóðsögum Jóns Árnasonar, kvæðabókum og heilnæmum fræðum, og þar á að endurreisa íslenzkar kvöldvökur. Þær eiga aðeins að vera í æðra veldi en áður.“ Eg vil minna á orð þessara vitru manna. Þau eru ábyggilega enn í fullu gildi og verða alltaf haldbetri rök, heldur en nart einhverra nafnlausra huldumanna. Nemendur M. A. munu aldrei sætta sig við að leggja Útgarð niður og leita upp í skíðahótel Akureyringa. Útgarður er annað heimili M. A., því hlutverki getur skíða- liótelið aldrei gegnt. En nú vantar Útgarð vaska menn. Húla-hoppið getur verið útrætt mál. All- ir, meira að segja Gambra-menn, viður- kenna, að félagið, sem stofnað var gegn því, hafi unnið þarft verk. Annars mun Femina Iðunn vera fulikomlega fær um að halda uppi vörnum fyrir félagið. Það væri því eigi annað en bjarnargreiði við hana að revna að bæta þar nokkru um. U. f. F. telur sig færan um að halda því fram, „að í eitt þúsund ár hafi þjóðir Ev- rópu myrt menn í milljónavís með guðs- blessuðum vígtólum.“ Ætli þau séu mörg malarbörnin, sem trúa þessu? Það er til lítils að trúa í orði kveðnu. Hugur verður að fylgja máli. Hefðu þessar þjóðir lifað eftir kenning- um Kristninnar, mundi a'ldrei til neinna styrjalda hafa komið. Ég vil svo minna greinarhöfund á þessi orð þjóðskáldsins: „Guði gleyma glapráðir menn, dýrka sjálfa sig, en svíkja þó.“ Vegna þess, að greinarhöfundur vitnar í orð, sem ég viðhafði um íslenzka stjórn- málamenn í ræðu, er ég flutti á árshátíð M. A„ þykir mér rétt að birta þennan kafla ræðunnar. Er ég hafði reynt að gera nokkurn saman- burð á ástandi og lífsviðhorfum íslenzku þjóðarinnar á Sturlungaöld og nú á 20. öld, sagði ég svo: „Ég held, að stjórnmálamennirnir séu yf- irleitt ekki nógu hreinlyndir og eigi all gruggugt blóð. Sundurlyndi foringjanna getur orðið hættulegt fyrir sjálfstæði og hamingju landsins, ekki síður en á Sturl- ungaöld. Það eru enn þá til erlendir valda- menn, sem sitja um smáþjóðirnar og vilja hremma þær köldum klóm. Stjórnmálaforingjarnir þurfa að takast í hendur og vinna samstilltir og með sáttfús- um höndum að hamingju þjóðar sinnar.“ U. f. F. er mótfallinn þessu, en treystist ekki til að færa nein rök fyrir máli sínu. Ekki veit ég, hvort það er vegna hans eigin blóðs eða af öðrum ástæðum. Greinarhöfundur fer lofsverðum og rétt- um orðum um aldamótamennina, en hann virðist ekki lifa í samræmi við hugsjónir þeirra. Ég vil minna á það, að aldamóta- mennirnir þurftu ekki að fela sig af ótta við það, sem inni fyrir bjó. Þeir þorðu að nema staðar og leita móti straumnum, er þeim sýndist svo. Þeir niðurníddu ekki rímnakveðskap og vikivaka eða annað, sem var þjóðlegt og hollt, heldur hófu það til vegs. Þeir voru menn, sem stigu á stokk og strengdu þess heit að vinna þjóð sinni og að framgangi allra göfugra og góðra mála. Tilgangsleysi og efi voru ekki uppistaðan og ívafið í lífi þeirra, heldur trúin á landið og trúin á sig- ur hins góða. Stefna þeirra var andóf gegn vélrænum hugsanagangi og múgmennsku. Djarfhuga 80 M tl N I N N

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.