Muninn - 01.05.1959, Qupperneq 10
RÆTT VID NÝKJÖRINN RITSTJÓRA MUNINS
Nú fyrir nokkru var Már Pétursson
kjörinn ritstjóri Munins næsta vetur. í til-
efni þessa var mér falið að ganga á fund
Más og hafa tal af honum.
„Hvað heldur þú, Már, að mætti helzt
verða Munin til framdráttar?“
„Ja, ég er að mörgu leyti ánægður með
blaðið eins og það er. Ég tel það bera af
skólablöðum þeit'ra Reykvíkinga og I.aug-
vetninga. Annars þyrfti að koma betri skip-
an á rekstur blaðsins. Upplagið þarf t. d. að
stækka. Þá hefði blaðið rýmri fjárhag og þá
er hægt að gera það betur úr garði, gefa út
fleiri tölublöð. Þó er það ritleikni og and-
ríki nemenda, sem máli skipir. Nú eru
menn of tregir til að birta ritsmíðar sínar,
því að fjölmargir ágætir skriffinnar og lið-
tæk skáld eru í skólanum auk þeirra, sem
hingað til hafa kvatt sér hljóðs í skólablöð-
unum. Auk þess eiga menn að gera meira
af því að skrifa í tómstundum sínum að
sumrinu og senda blaðinu ávexti iðju sinn-
ar, þegar þeir koma í skólann.
Fyrsta blaðið á að koma út strax að rit-
nefndarkosningum loknum. Fjölbreytni
blaðsins þarf að auka og birta meira af léttu
og skemmtilegu efni fyrir lýðinn.“
„Hvernig telur þú, að hægt sé að stækka
upplagið?“
„Fyrst og fremst hef ég hugsað mér að
leita hófanna meðal „dimmittenda“, hvort
einhverjir vilja kaupa blaðið næsta vetur.
Gætu þeir þá sent blaðinu heimilisfang sitt
og fengju það sent um hæl. Einnig er sjálf-
sagt að veita Norðanmönnum í Háskólan-
um færi á að kaupa blaðið. Auk þess er
sjálfsagt að skiptast á blöðum við M. R. og
jafnvel Laugvetninga líka. Þá hef ég hugsað
mér að setja mig í samband við fleiri gamla
nemendur og vita hvort þeir vilja gerast
áskrifendur. Það eru að vísu nokkrir hér í
bænum, sem kaupa eitt og eitt blað í bóka-
búðum, en það dregur skammt."
„Hvað um Munin næsta vetur? Er það
nokkuð fleira nýtt, sem þú hefur á prjón-
unum?“
„Það eru næg verkefni. Annars vil ég sem
minnst segja. Það er hægara sagt en gert og
eftir að vita, hvað kemst í framkvæmd, þótt
manni detti ýmislegt í hug. Mig hefði lang-
að til að koma út góðu blaði strax í október
eða nóvemberbyrjun, og jólablaðið þyrftiað
vera myndarlegt, ef maður reyndi að dreifa
því eitthvað meira en hinum. Lengra hugs-
ar maður ekki enn.“
„En hvað um framtíð Munins?“
„Það er ekki mitt að spá neinu um hana.
Við vorum einmitt að velta þessu fyrir okk-
ur, við Jón Sigurðsson, um daginn. Hann
telur takmarkið vera fullkomna fjölritunar-
stofu í skólanum, þá sennilega í norður-
álmu vistarinnar, og blað hálfsmánaðarlega.
Nemendur sæju þá um útgáfuna að öllu
leyti. Ég býst við, að það sé bezta lausnin.
Blaðið stæði nær okkur þá, en yrði varla
eins glæsiilegt og nú er og líkist þá frekar
dagblaði en bókmenntatímariti. En lág-
markskrafan hlýtur að vera sæmileg skrif-
stofa fyrir Munin og það fyrr en seinna."
Gamma Sigma.
FYRIR hönd Munins þakka ég öllum þeim, sem
honum hafa rétt hjálpandi hönd: prenturum lipurð
og úrræði, skriffinnum andagift, raunsæi og nú
síðast skæting, kaupendum og auglýsendum. Senn
fellir Muninn flugfjaðrirnar, en að hausti bregður
hann sér í Máfs-líki og krunkar i eyru ykkar eða
situr á Baðstofu-kvistinum eins og collega minn
forðum. — Hafið svo þökk fyrir; kærar þakkir!
í guðs friði,
Halldór Blöndal.
86 M U N I N N