Muninn - 01.05.1959, Blaðsíða 11
RÆIT VIÐ ATKVÆÐAMANN
í páskahretinu kom ritstjóri að máli við
mig og bað mig hitta Guðmund formann
Sigurðsson og frétta af ætlunum hans varð-
andi Hugin og hvað hann vildi segja okkur
um skoðanir sínar á skólamálum.
Óþarft er að kynna Guðmund frekar,
hann er einn af stóru spámönnunum hér í
skóla. Guðmundur hefur setið í stjórn Hug-
ins nú í vetur, enda ókrýndur konungur
síns bekkjar. Enn hækkar stjarna hans, því
að nú eftir páskana var hann kjörinn for-
maður með hærri atkvæðatölu en hingað til
hefur þekkzt. Er því ljóst, að Guðmundur
er mikill atkvæðamaður og enginn eftirbát-
ur bræðra sinna, Jóns og Þóris.
Hvað viltu segja um starfsemi Hugins,
Guðmundur?
„Eg tel, að starfsemi félagsins hafi verið
nokkuð góð þessa vetur, sem ég hef verið
hér í skólanum. Starfsemin hefur verið f jöl-
þætt, þótt málfundir skipi að sjálfsögðu
æðstan sess. En um þá er það að segja, að
þeir hafa alla jafna verið vel sóttir og um-
ræður góðar. Ef til vill má segja, að það séu
full oft sömu mennirnir, sem tala á fund-
unum, og verði fundirnir fyrir þá sök nokk-
uð keimlíkir."
Hvernig telur þú, að bæta megi úr þessu?
„Það verður að sjálfsögðu aðeins gert
með því að vanda val umræðuefna, þannig
að valin séu efni, sem almennur áhugi er á
og eru ofarlega á baugi það og það sinnið?"
Hvað um áætlanir varðandi starfsemina
næsta vetur?
„Jú, starfsemi félagsins er nú yfirleitt
nokkuð svipuð frá ári til árs, og ég býst
varla við róttækum breytingum. En að sjálf-
sögðu verður reynt að brydda á nýmælum,
eftir því sem tækifæri gefast. í því sambandi
dettur mér helzt í hug, að Huginn ætti að
gera meira af því að efna .til almennra
fræðslu- og skemmtikvölda um ýmis efni.
Að vísu vinna bókmennta- og tónlistarkynn-
ingarnefnd merkt starf í þessum efnum, en
ég tel, að taka ætti fleiri efni fyrir en þau,
sem þær nefndir fjalla um, t. d. vísindaleg
efni. Annars er víst bezt að lofa sem
minnstu.“
Sem Guðmundur segir þetta brosir hann
góðmannlega, og ég sé, að hann vill ekki
gefa nein ótímabær loforð.
En við treystum honum þeim mun betur
til að sjá hag Hugins borgið.
Við óskum Guðmundi heilla í starfi.
Már.
RÚSTIR
i
Dægrin renna svo ótt, svo ótt
ævi mín styttist svo fljótt;
til einskis eilifa nótt.
II
Hrundar eru hallir mínar,
hrunin öll mín vé.
Það, sem ég fyrrum ungur átti,
er einskis virði nú.
Dauðinn heimtir hreysti mína,
hjarta mitt geymir þú.
Hrundar eru hallir mínar
hrunin öll mín vé —
yfir rústunum hræfuglar hlakka.
ANONYMUS.
M I NM 87