Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.05.1959, Qupperneq 14

Muninn - 01.05.1959, Qupperneq 14
BLÓÐ Hann gekk yfir fjöllin með pjönkur sín- ar bundnar í lítinn böggul. Veðurofsinn hvein fyrir eyrum hans og barði iandið þungum höggum.og regnið steyptist úr loft- inu, rann í ólgandi straumum niður rauð granítbjörgin, og niðri á sléttlendinu sam- einuðust vatnsflaumarnir í straumþungar elfur, sem sýndu íbúum landsins dularfull- an, töfrandi mátt sinn á ógnandi hátt. Skýin þeyttust áfram, grá og þétt og huldu allt útsýni. Hann var holdvotur, en um hvíld var ekki að tala. Hann var á flótta. Hann gekk yfir fjöllin á daginn og um nætur. Þetta var jrriðji dagurinn, síðan hann lagði af stað að heiman, og engan matarbita hafði hann borðað á leiðinni, svo að hann barðist við sultinn .Skórnir hans voru löngu slitnir, svo að hann varð að setja upp skóna, sem hann hafði tekið með sér og hann vildi ekki glata. Skóna, sem móðir hans hafði gefið honum að skilnaði, sem örlítinn þakklætisvott fyrir liðnu árin, sem þeim voru báðum minni- stæð. Hún hafði lengi sparað fyrir þeim, því að efnin voru lítil og verðið hátt á öll- um nauðsynjum. Hugur hans hvarflaði yfir liðna tímann. Að baki voru erfið ár; ár ótta og kvíða. Úr bernsku minntist hann dauða föður síns. Eftir það varð móðir hans að vinna baki brotnu til að halda lífinu í sjálfri sér og börnunum, sem voru fjögur. Hann minntist jjess, er hann á tólfta ári fór að vinna ýmis erfið störf til þess að hjálpa móður sinni að sjá fyrir yngri systkinum sínum. En út- lendur her var í landinu og aginn strangur. Var því herinn illa liðinn af kúguðu og ánauðugu fólkinu, sem fannst ættjarðartil- finningu sinni misþyrmt. Uppreisn var gerð af þessari friðsömu þjóð gegn herveldinu. F.n hún kostaði aðeins fjölda mannslífa. H(ipar vopnlítils fólks þyrptust fram á blóð- vellina gegn vélbyssukjöftum og skriðdrek- um. Hann hafði tekið þátt í uppreisninni, en varð nú að flýja sína ástkæru fósturjörð til j:>ess að bjarga lífi sínu, vegna þess að upp- reisnarmenn voru miskunnarlaust dæmdir til lífláts, eftir að uppreisnin hafði verið kæfð í grimmu blóðhaði. Með sárum trega hafði hann kvatt móð- ur sína og systkini fyrir þremur sólarhring- um. Móðir hans rétti honum nýja skó, er hann kvaddi hana. Henni þótti leiðinlegt, hversu gjöfin var lítil, en hún hafði ekki efni á að hafa hana stórbrotnari. Samt sem áður hefðu fáar gjafir verið honum dýrmæt- ari. Hugsjónin er peningunum dýrmætari. Og nú komu skórnir vissulega í góðar þarfir. Regnið dundi á flóttamanninum. Örlaga- nornirnar léku æðisgenginn leik á óveðurs- skýin. Landið nötraði og skalf, en engin líf- vera sást nokkurs staðar. Brátt yrði hann kominn að landamærun- um. Hvað skyldi taka við handan þeirra? Þar var fyrirheitna landið. Það var hið ókomna. Um það geta fáir dæmt. Hugsanirnar ásóttu hann: Hvers vegna var hann að fara þetta. Hann var að svíkj- ast undan merkjum. Hann myndi svíkja þjóð sína, ef hann flýði til ókunns lands. Og ekki joýddi fyrir hann að snúa við, úr því sem komið var. Hann tók ákvörðun, og þeirri ákvörðun hefði enginn getað breytt. Hann kleif upp á háan hamar og gekk fram á þverhnípta brúnina. Þar kraup hann á kné og baðst fyrir. Síðan reis hann á fæt- ur, steig nokkur skref aftur á bak. Hann sundlaði í fyrsta skipti og síðasta á lífsbraut- inni. Hann lokaði augunum. Fyrir neðan var hyldýpið, sem ætíð er hið sama. Hvers virði er eitt mannslíf? H. M. 9ö MV.X.I >'.N

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.