Muninn - 01.03.1972, Side 4
Framboð «■»
Fratnhald af bls. 6.
varð góðfúslega við þeirri
beiðni okkar að gera nokkra
grein fyrir framboði sínu og
tilgangi Raunvísindadeildar.
„Ég tel, að Raunvísinda-
deild fullnýti engan veginn
fræðslumiðia sína. Ég vil að
nemendur standi sjálfir fyrir
fyrirlestrum um raunvísinda-
leg efni, og veki áhuga manna
með því að setja þau í sem
skýrast samband við stjórn-
mál, almennar þjóðfélagsað-
stæður og hugvísindi. í ræðu
og riti má færa raunvísindin
miklu lengra út.
Bókmenntad.
Pálmar Anarson býður sig
fram \ bókmenntadeild.
Hann sagðist bjóða sig
fram vegna starfsáhuga í hest
aflavís.
Hann taldi tilgang bók-
menntadeildar vera kynningu
á verkum meistaranna, svo og
kynningar á ungum og efni-
legum höfundum. Það sagði
hann að tryggði fjölbreytt
verkefnaval.
Framatotafélagið (Saltator-
ar, til aðgreiningar frá öðrum
framatotum) býður fram í bók
menntadeild, raunvísinda-
deild og málfundadeild.
Hvatirnar að framboðinu
sögðu þeir, að væru Estrogen
um.
LM: Hvern teljið þið til-
gang þeirra embætta sem þið
bjóðið ykkur fram í?
Þeir: Það fer eftir því í
hvaða deild það er.
Um það hvernig þeir ætl-
uðu að ná fram þessum tih
gangi, svöruðu þeir á eftirfar-
andi hátt:
,,í málefnasamningi vorum
eru skýr ákvæði þess efnis,
hvurt mat vér leggjum á mál-
in hvurju sinni.“
Ingibergur -
Framhald a bls. 6.
auk skólameistara, og hafi
þeir allir jafnan atkvæðisrétt
(sbr. ályktanir LÍM-þings og
skólamálaþings MA).
Stærsta hlutverk fulltrúa
nemenda í skólaráði teljum
við vera að gæta hagsmuna
nemenda og sjá um að álykt-
anir þeirra og tillögur verði
teknar til greina og komið í
framkvæmd eftir föngum, en
ekki hundsaðar eins og borið
hefur við. Einnig viljum við
benda á 7. kafla reglugerðar-
innar, sem fjallar um stjórn
skólanna. Við bjóðum okkur
fram vegna þess að við höf-
um áhuga á, að þessa réttar
nemenda verði gætt í hvívetna
og ef við náum kosningu mun
um við reyna að sjá til þess
að svo verði.
Við lýsum yfir stuðningi
við ályktanir skólamálaþings
MA og viljum leggja sérstaka
áherzlu á nokkur atriði í því
sambandi:
Gaumgæfileg athugun verði
gerð á framkvæmd stiga- og
punktakerfis og hvernig henni
myndi verða bezt hagað hér í
skóla. Stefnt verði að því að
koma á félagsfræðikennslu í
skólanum. 72. gr. reglugerð-
arlnnar verði framfylgt. í sam
ræmi við 80. gr. reglugerðar
og ályktunar skólamálaþings
verði nefnd kosin af nemend-
um og kennurum. er skrái sér
reglur MA í samráði við skóla
stjórn. Skuli þær bornar und-
ir skólafund og gefnar út. —
Heimavistin og skólinn verði
tvær aðskildar stofnanir. Á-
lyktanir gkólamálaþings verði
teknar til athugunar og reynt
af fremsta megni að taka þær
til greina. Reglugerðinni verði
framfylgt eftir því sem við á
hér, en tekið tillit til vilja
LÍM-þings og títtnefnds skóla
málaþings. Síðast en ekki sízt
víljurn við leggja áherzlu á
nauðsyn náíns sambands skóla
ráðsfulltrúanna við hagsmuna
ráð og skólablaðið, því á þann
hátt verða þeir bezt í góðri
snertingu við nemendur og
hagsmuni þeirra. Einnig er at-
hugandi að hafa viðtalstíma
fyrir þá, sem erindi eiga við
skólastjórn.
Skólafélagar, við skorum á
ykkur að veita okkur brautar-
gengi í þessum kosningum. —
Ingibergur Guðmundsson og
Rúnar Sigþórsson.
Ávarp m
Framhald af bls. 1.
lega framfylgd þeirra að ræða
og raun ber vitni, Við mennta
skólanemar höfum, eins og
áður segir, sett fram kröfur
og tillögur til úrbóta, varð-
andi reglugerð þessa, en við
erum þar látnir lönd og leið,
stjórnvöld margsnúa reglu-
gerðinni og ef það dugir ekki
þegar að efndum kemur, þá
er einfaldlega flúið út um ein-
ar af bakdyrum hennar.
Við slíkt má ekki sitja!!!
Menntskælingar sæta hér
freklegri átroðslu og sem full-
gildir þegnar lýðveldisins ís-
lands getum við ekki látið
slíkt viðgangast, svo framar-
lega sem við berum snefil af
lýðræðislegum tilfinningum í
brjósti.
Kröfur okkar um endurbæt
ur á reglugerð eru aðeins kröf
ur dagsins í dag. Við hljótum
að stefna hærra, því reglugerð
in í sjálfu sér er hlægileg. Það
sem ísl. menntafólk þarfnast
er umsköpun menntakerfisins.
Ég geri mér grein fyrir því,
að umsköpun menntakerfisins
er mikið fyrirtæki, en þetta
er ekki draumsýn, og því hljót
um við að setja markið þar
og stefna ótrauð að því.
Skólinn á ekki að vera í-
troðslustofnun, þar sem nem-
endur eru eingöngu þiggjend-
ur, en kennarar yfirvaldið,
sem hefur það hlutverk að
troða fróðleiksmolum í nem-
endur, sem með sínu „pass-
íva“ ástandi nýta ekki hæfi-
leika sína að neinu verulegu
marki. Skólinn á að vera
starfsvettvangur, þar sem
nemendur og kennarar eru
jafnir og vinna saman að hin-
um ýmsu verkefnum. Skólinn
þarf að færast mun nær þjóð-
félaginu, svo að það fólk sem
kemur úr skólum sé ekki eins
og skynlausar skepnur, þegar
það þarf að takast á við þjóð-
féjagsleg vandamál. Þetta eru
aðeins tvö atriði, sem ég tel
þó sýna glöggt að mikilla um-
bóta er þörf og þar dugir
okkur engin reglugerð. Við
þörfnumst algerlega nýrrar
stefnu, nýs kerfis, sem að öllu
leyti myn.di takast betur að
aðlaga sig að nútíma þjóðfé-
lagi. Hins vegar verðum við
rð gera okkur grein fyrir
þeirri staðreynd, að við fá-
um ekki slíkar tillögur sam-
þykktar af stjórnvöldum, ef
við ætlum aðeins að halda
fundi og skrifa í blöð. Það
sem við þörfnumst er völd.
En hvernig eigum við að öðl-
ast þessi völd? Jú, hér tel ég
að korni til kasta Landssam-
bands ísl. menntaskólanema.
Ef við menntskælingar stönd-
um einhuga að baki þessara
samtaka, munum við þar í
framtíðinni eignast öflug bar-
áttusamtök, sem gætu komið
því til leiðar að við fengjum
fulltrúa í öllum þeim opin-
beru nefndum, sem snerta
okkur hið minnsta. Það myndi
því leiða af sjálfu sér, að við
fengjum ekki aðeins aukna
hlutdeild í stjórnun skólanna,
heldur og í stjórnun alls
Framhald af bls. 1.
má segja þeim það til afsök-
unar, að í fyrra tókst íhaldinu
að spila með nægilega stóran
hóp nemenda til að það fengi
sumum áhugamálum sínum
framgengt. En síðan hefur mik
ið vatn runnið til sjávar, enda
fékk tillagan verðskuldaða af
greiðslu.
Þessi stefna íhaldsins, að
reyna alls staðar að drepa nið
ur alla starfsemi, sem er eitt-
hvað meira en nafnið tómt,
hefur birzt í fleiri myndum.
Nægir þar að minna á 1. des.
málið, og ef farið er út fyrir
veggi skólans, tilraunir hægri
manna til þess að eyðileggja
LÍM.
- - SJÁLFUM SÉR
SAMKVÆMIR
Af þeim dæmum, sem
nefnd hafa verið, er það ljóst,
að hægri menn eru í verki á
móti öllu því félagslífi, sem
beinist að háleitari verkefnum
en skrítlusöfnun, sjoppu-
rekstri og skemmtanahaldi.
-Þða breytir hér engu um, þó
einstakir liðsmenn þeirra skor
ist undan merkjum í einstök-
um málum (svo sem Vilhjálm
ur Egilsson varðandi skóla-
blaðið). Enda er þetta í full-
komlega rökréttu samhengi
við grundvallarstefnu þeirra.
Forsendur allrar hægri stefnu
eru sofandaháttur og undir-
gefni við ríkjandi vald.
Það er í samræmi við þessa
stefnu, að á meðan annar full
trúi skólans í SLlM, Björn
Garðarsson, lá veikur, gerði
hinn, Hjörtur Gíslason, ekk-
ert til þess að undirbúa nýaf-
staðið skólaverkfall, sem þó
hafði verið full eining um (í
orði) á LlM-þinginu í haust.
Það var ekkert gert í málinu
fyrr en Björn komst á fætur
daginn áður, og ritnefnd og
menntakerfisins. Þá fyrst
verður möguleiki á frjóum
hugsunum í skólamálum! Þá
fyrst megu mvið vera viss um
viðunandi úrbætur! Það hlýt-
ur því að vera sjálfsögð krafa
okkar, að fá mjög aukin völd
í stjórnun þess kerfis, sem við
erum neydd til að vera hluti
af. Þær kröfur, sem við erum
að leggja áherzlu á, í þessari
baráttu okkar í dag, eru að-
eins áfangi á þessari leið, en
þessi áfangi er mikilvægt
skref, og því vil ég ljúka þessu
með því að leggja þunga á-
herzlu á þær kröfur, sem sett-
ar hafa verið fram um end-
urbætur á reglugerð.
Við höfum mótmælt mikið.
Nú viijum við sjá árangur af
öllum okkar mótmælum! Við
látum elcki hundsa okkur enn
einu sinni!! Nemendur MA, í
dag munum við breyta!!!
vinstri menn í skólanum tóku
málið í sínar hendur. Þ°tt þá
væri ekki nema tæpur hálfur
sólarhringur til stefnu, var
gefið út blað, sem var tilbúið
4 klukkustundum eftir að á-
kvörðun var tekin um útgáf-
una, og sem að mínum dómi
var mun betra en það sem
hægri menn í stjórn LÍM
stóðu að, og ekki var gefið út
án þess að hafa ritstjóra á
launum.
- - FRAMBOÐ
Með hliðsjón af dagskipun-
um ungra íhaldsmanna frá
SUS-þinginu í haust — „Efla
þarf starf ungra Sjálfstæðis-
manna og félög þeirra þurfa
að leita eftir áhrifum í skól-
um, á vinnustöðum og hinum
ýmsu ýmsu samtökum ungs
fólks,“ — verður það að telj-
ast sýnilegt, að hægri menn
reyni að bjóða fram í einhver
embætti við skólafélagskosn-
ingarnar, enda þótt ekki sé
um auðugan garð að gresja í
liði þeirra. Með hliðsjón af
reynslunni frá í fyrra, má
reikna með því að þeir muni
ekki leggja neitt upp úr því
að komast í þau embætti, sem
gefa möguleika til starfs, held
ur leggja aðaláherzluna á að
komast í þau embætti, sem
gefa mesta möguleika til þess
að hindra starf. Það væri al-
veg eftir þeim að bjóða sömu
mennina fram til margra emb
ætta, þar sem þeir eru ákaf-
lega liðfáir, en embættin
mörg, sem gera þarf óvirk.
— Væri vissulega ósk-
andi, að nemendur notuðu
tækifærið í kosningunum, og
sýndu svo rækilega, að jafn-
vel íhaldið skildi, hvað um
væri að vera, að þeir eru að
vakna og láta ekki bjóða sér
hvað sem er.
Einar Kjartansson.
Fálmaunnendur
athugið!
Félag áhugaljósmyndara í MA óskar eftir myndum í
albúm félagsins. — Myndum sJcal skilað til stjórnar-
innar fyrir vorið.
Stjórnin.
IMemendasýning
Myndlistardeild Hugins og Fálma ásetla sameiginlega
sýningu á verkum nemenda um miðjan marz.
Menn eru vinsamlega beðnir um að veita sköpunar-
hæfileikum sínum útrás, og byrja nú þegar.
Verkunum má skila til stjórnarmeðlima félaganna.
Myndlistardeild. Fálma.
HÆGRI IVIENN -
4 ™ LITLI MUNINN