Muninn - 01.03.1972, Page 6
Ingibergur Jón
Hjörtur Magnús Arinbjörn Sigurður S. Kristinn Sigríður Stef.
FRAMBJÓÐENDUR KYNNTIR
Ritnefnd ákvað að gefa út
blað til kynningar á frambjóð
endum. Þessi síða er þeim til-
gangi helguð. Við höfum geng
ið á milli manna og reytt út
úr þeim kosningaheit. Nú er
það þitt, lesandi góður, að
Ieggja mat á, að svo miklu
leyti sem mælistiku prent-
svertu verður við komið í
mati á hæfileikum frambjóð-
enda til að taka við embætt-
um.
Skólaráð
Ingibergur Guðmundsson
og Rúnar Sigþórsson bjóða sig
fram sem fulltrúa nemenda í
skólaráð.
Með nýju menntaskólareglu
gerðinni er nemendum veitt
aukin hlutdeild í stjórnun
skólanna. Þetta er .að vísu
spor í rétta átt, en þó teljum
við að kröfum menntaskóla-
nema í þessu máli sé langt
frá því fullnægt. Ekki verður
sagt að langt sé gengið í þessa
átt, þegar í skólastjórn sitja
sex fulltrúar: Skólameistari,
aðstoðarmeistari og tveir
kennarar á móti tveim nem-
endum. Við teljum eðlilegt að
ákvæðum reglugerðarinnar
verði breytt í átt til meira
jafnræðis nemenda og kenn-
ara í skólastjórn, þannig að
þrír fulltrúar yrðu frá nem-
endum og tveir frá kennurum,
Framhald á bls. 4.
Jón Sigurjónsson býður sig
fram í skólaráð.
LM: Hvaða hvatir liggja að
baki framboði þínu? *
Jón: Framatot,
LM: Hver telur þú að sé
tilgangur skólaráðs?
Jón: Svo hnötturinn geti
haldið áfram að snúast.
LM: Hvernig ætlar þú að
ná fram þessum tilgangi og
með hvaða aðferðum?
Jón: Hreinskilni.
Hjörtur Gíslason býður sig
fram í skólaráð og þjóðmála-
deild.
LM: Af hvaða hvötum býð-
ur þú þig fram?
Hjörtur: Til þess að fá sem
mesta fjölbreytni og til þess
að flestir taki þátt í félags-
málum.
Hjörtur taldi tilgang þjóð-
máladeildar að efla þekkingu
nemenda á þjóðmálum og ætl
að að stuðla að því með því
að halda sem flestar þjóð-
málakynningar, gefa út blað
og reyna að mesta megni að
vanda val þeirra manna, sem
fengnir verða til að kynna
þjóðmálin.
Hjörtur taldi skólaráð vera
vísi að nemendadómstól. Enn-
fremur taldi hann nauðsyn-
legt að nemendur hafi hönd í
bagga í stjórn skólans.
Hann sagðist hafa hugsað
sér að korna á starfshópi með-
al nemenda til þess að fá fram
kröfur þeirra og fylgja þeim
svo eftir af hörku í ráðinu.
Þjóðmáladeild
Þröstur Ásmundsson býður
sig fram í þjóðmáladeild.
LM: Hvaða hvatir liggja að
baki framboði þínu?
Þröstur: Ertu að gera mér
upp einhverjar livatir? Það
korna engar hvatir til greina,
nema þá eðlishvatir hins
sanna vinstri mann, að bjarga
heiminum. Annars hef ég ver-
ið í þjóðmáladeild áður. Skrif
aði sögu hennar, eins og frægt
er orðið.
LM: Til hvers er þjóðmála-
deild?
Þröstur: Við skulurn láta
Ingólf H. svara þessu. Hann
var eitt sinn mikill maður
með oss (en setti ofan fyrir
aldur fram.) Ingólfur spurði
og svaraði,ef ég man rétt, eitt
hvað á þennan veg: „Hvers
vegna þjóðmáladeild?“ „Nem
endur vilja gerast virkari og á
byrgari gagnvart þjóðmálum,
en það geta þeir ekki nema
þekking sé fyrir hendi og að-
staða í skólanum til að afla
hennar. Þess vegna hefur þjóð
máladeild Hugins verið stofn-
uð.“ Og þessi orð eiga við enn
í dag.
LM: Hvað ætlið þið svo að
gera, og hvernig?
Þröstur: Ég býð mig fram
ásamt öðrum. Þau hafa sínar
hugmyndir og ég mínar. Á
þessu stigi málsins er ekki
hægt að gefa út yfirlýsingar
um áætlanir og aðferðir. En
við erum svo hugmyndarík
hérna megin, að það ‘verður
lítill vandi að veita pólitískri
starfsemi í góðan farveg og
virkja hana — í þágu alþjóð-
ar. Að lokum vil ég vara menn
við að kjósa „hægfara og var
kára“ menn í deildina, — þá
getur hæglega orðið um nýja
málfundadeild að ræða.
Einar Steingrímsson býður
sig fram í stjónr þjóðmála-
deildar.
Ástæðu fyrir framboði sínu
lcvað Einar vera geysilegan á-
huga á tilvonandi starfi þjóð-
máladeildar.
Tilgang þjóðmáladeildar
kvað Einar vera að halda uppi
pólitískri umræðu innan skól-
ans og starfa á allan hátt af
fullum krafti.
Einar lofaði að lokum að
starfa af gífurlegum krafti.
Þórhallur Jósepsson býður
sig fram í stjórn þjóðmála-
deildar.
Hann kvaðst bjóða sig fram
í þjóðmáladeild vegná þess að
hann langaði svo mikið til að
sýna nemendum skólans ein-
hverja aðra hlið á stjórnmál-
um en þá, sem sýnir marxism
ann sem hið eina rétta og
USA sem helvíti á jörð.
Hann sagði . tilgang þjóð-
máladeildar að stuðla að um-
ræðum og umhugsun nem-
enda um allt sem við kemur
þjóðmálum okkar og annarra.
Þessum tilgangi vildi hann
ná fram með alls lags kynn-
ingum á-alls lags stjórnmála-
skoðunum með þátttöku sem
flestra nemenda í t. d. um-
ræðuhópum, opnum fundum
og blaðaútgáfu.
Ritnefnd
Þórhallur Jósepsson býður
sig fram til ritnefndar.
Hann kvaðst bjóða sig fram
til að kynnast blaðaútgáfu,
koma hugdettum sínum á
framfæri og hleypa einhverju
smávegis af hægrimennsku í
okkar háverðuga skólablað.
Tilgang ritnefndar sagði
hann að starfa við blaðið, út-
gáfu þess og efnissöfnun.
Þessum tilgangi sagðist
hann ætla að ná fram að
sumu leyti eftir því kerfi, sem
ritnefnd mun skapa sér, að
öðru leyti kvaðst hann fara
eftir sínum eigin aðferðum,
sem eru ekki enn fullmótaðar,
en fara mest eftir kenjum
hans og dyntum.
Kvikmyndad.
Arinbjörn Jóhannsson býð-
ur sig fram í stjórn kvik-
myndadeildar.
Hann kvaðst bjóða sig fram
vegna áhuga á kvikmyndum.
Tilgang kvikmyndadeildar
taldi hann vera að gefa fólki
kost á að sjá kvikmyndir, sem
að efni og efnismeðferð eru
utan víð hinn þrönga ramma
kvikmyndahúsanna í kvik-
myndavali. Styðjast við viður-
kenndar bækur og tímarit um
kvikmyndir við val mynd-
anna.
Hann sagðist ætla að ná
þessum tilgangi fram með því
að tryggja þau sambönd, sem
kvikmyndadeild er nú þegar í
og leita nýrra.
Heiðdís Valdimarsdóttir og
Rannveig Einarsdóttir eru í
framboði í stjórn kvikmynda-
deildar.
Þær sögðust bjóða sig fram
vegna þess að þær töldu sig
hafa mikinn áhuga á kvik-
myndalist.
Þær töldu tilgang kvik-
myndadeildar vera að þroska
smekk nemenda á listrænum
myndum á ódýran hátt.
Þessum tilgangi ætla þær
að ná fram með því að panta
listrænar kvikmyndir.
Raunvísindad.
Við tókum tali Hrein Vil-
hjálmsson og félaga, sem hafa
boðið sig fram í stjórn Raun-
vísindadeildar.
LM: Af hvaða hvötum bjóð
ið þið ykkur fram?
Þeir: Við höfum allir áhuga
á raunvísindalegum efnum, og
okkur langar til að fá fleiri
tækifæri til að starfa að þeim.
LM: Hver teljið þið að sé
tilgangur Raunvísindadeildar?
Þeir: Tilgangur Raunvís-
indadeildar er samkvæmt lög-
um að glæða áhuga nemenda
á raunvísindalegum efnum.
Einnig finnst okkur að koma
ætti upp aðstöðu fyrir þá sem
hafa áhuga á að vinna að ein-
hverju sérstöku viðfangsefni.
LM:Hvernig ætlið þið að
ná fram þessum tilgangi og
með hvaða aðferðum?
Þeir: Við stefnum að því að
gefa út að minnsta kosti eitt
blað um raunvísindaleg efni,
helzt fleiri, reyna að fá ein-
hverja stofu til afnota eftir
skólatíma fyrir áhugamenn
um raunvísindi og reyna að
skapa aðstöðu fyrir þá. Svo
munum við sýna eins mikið af
kvikmyndum og kostur er og
reyna að fá einhverja góða
menn til að halda fyrirlestra
um raunvísindaleg efni.
Tryggvi Líndal býður sig
fram í Raunvísindadeild og
Framhald á bls. 4.
Jón Guðmiinz
Mikið er undir oss! — Ég
bauð mig fram í þrjú embætti
í fyrra en fimm nú!
Vitið þér enn, eða hvað?
■ * .. % f* ’ - % H fl
Rúnar Sigurður G. Skúli Hörður Pálmar Tryggvi Form. kjörstjórnar