Dýravinurinn - 01.01.1891, Blaðsíða 16

Dýravinurinn - 01.01.1891, Blaðsíða 16
16 Um hesta. JaRPUR föður míns, sem hann hafði lengi til reiðar, var mesti stólpa gripur, en enginn kosta hestur eða gæðingur. I>egar byljir komu uppá, haust eða vor, var hann vanur að ganga heim í hús, og þó það væri læst með keng og loku, var hann vanur að draga úr lokuna með tönnunum. Jarpur var mesta þægðar skepna þegar beizlið var komið við hann, en annars vegar var hann styggur og slægur og ákaflega stroksainur. J>egar hann var lokaður inni á bæjum, beitti hann list sinni til að kornast út, og fór hann fyrst að með lagi, rej'ndi að setja hurðina af hjörunum ineð því að fara undir hana með framfót-unum. En gæti hann ekki ýtt henni upp með lagi, og án þess að brjóta, eða dregið út hurðar- krókana með framtönnunum, þá rann honurn í skap, og þá lamdi hann og braut með framfótunum allt hvað fyrir varð. J>að var eitt haust, eptir rjettir, að smalað var saman mörgum hestum úr sveitinni, til láns, til þess að fara með þá í kaup- staðinn eptir timbri. Til þess að hafa hestana alla vísa snemma morguninn eptir. eða seinni hluta nætur, voru þeir allir rjettaðir og Jarpur með þeim. Ramgjörð grind og umbúnaður var í rjettardyrunum og lás var settur fyrir grindina og gengið svo frá, að húskarlar ætluðust til að ekkert skyldi bila. Nú var útlit fyrir að umbúnaðurinn mundi halda jafnvel gamla Jarp, eins og Gleipnir Loka. En hversu brá ekki ferðamönnum í brún, er þeir ætluðu að taka hestana um nóttina og fundu rjettina tóma en grindina inn í iniðri rjettinni. pegar bjart var orðið, urðu menn þess varir af vegsummerkjunum, að hesturinn hafði gjört margar til- raunir til þess að ná upp dyrunum, en þegar ekkert dugði og grindin var of sterk til þess að hann gæti brotið hana, hafði hann smeygt hausnum, með mesta lagi, milli rimanna og dregið svo að sjer og tekið svo fast á að hann rjetti upp krókana í dyrastafnuin, og var það býsíia mikil aflraun, en ekki þurfti ininna lag til þess að koma grindinni aptur fram af hausnum, og á því furðaði alla, en engan furðaði á því að klárinn var bólginn nokkuð aptan á kjálkunum eptir þetta átak. AUÐBLESA föður míns sál. var allt öðruvísi háttað en Jarp; hann var mesta þægðar skepna og tryggða tröll. Aldrei þurfti að binda hann í hlaði; því þegar við hann var komið beizlið og hnakkurinn lagður á hann, stóð hann og beið þangað til honum var farið á bak. Faðir minn var mjög fljótur að sofna og^eins fljótur að vakna aptur. Meðan hann ljet hestinn blása dálítið mæðinni, er hann var á ferð, lagði hann sig opt útaf og sofnaði, hann mátti vera óhræddur um Blesa, hann fór ekki frá honum, heldur var að bíta í kringnm hann. Ef

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.