Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1922, Page 14

Heimilisblaðið - 01.07.1922, Page 14
94 HEIMILISBLAÐIÐ sagði, að hann ætti bæði konu og börn«. — »Já, einmill það sagði einhver háðslega, það er gamla sagan, það segja þeir altaf«. »Já, en þessi gamla saga er altaf sönn«, svaraði Brian hvatlega, »eg hygg hann hafi sagt satt og eg er sannfærður um, að þcr hefðuð líka látið hann fara, ef þér hefðuð séð framan í hann. En ábyrgðinni verður ekki varpað á hann einn«, sagði Brian ennfremur og leit í augu stúlkunnar, sem nú hlustaði grant eftir þvi, sem talað var. »Hafið þér aldrei hugsað út i það, ungfrú, að þér getið freistað þessara fálældinga, scm búa við sult og seyru, til að grípa demantana, með því að láta þá skina í augum þeirra svona ónærgætnislega, þvi að fyrir einn slíkan demant gela þeir auðvit- að keypt nægilegt viðurværi handa sér og lítlu börnunum sinum lil langs tíma«. Áhejrrendunum hnikli svo við þetta, að þeir gátu ekkert sagt og blóðið hljóp fram í kinnar hinnar ungu hefðarmeyjar; en ekki leið á löngu áður en hún mætti mæla. Hún dró andann djúpt, og þó að hún væri lágmælt, þá gátu þó allir heyrt, hvað hún sagði. »Hann hefir algerlega rétt að mæla; eg heíi aldrei hugsað út í þella«. »Nei, heyrðu mig nú, lafði Vivien«, sagði Darnleigh lávarður, »þetta er samskonar þvættingur og hann fór með áðan«. »Hann er auðvitað samsekur hinum«, kallaði þá stór og feitur maður upp, og nú sló í ákafa brýnu með og móti. í sömu andránni gekk lögreglumaður inn i forsal- inn og Darnleigh lávarður veik sér að hon- um hvatlega. ^Þessi maður þarna hefir stolið demant- inum, við fundum hann hjá honum —«. »Einmitt það, herra lávarður«, sagði lögregluþjónninn, hann þekti lávarðinn, »þér viljið þá eftir þvi láta taka hann fast- an?« En áður en Darnleigh fengi svarað, ruddi roskinn maður sér inn i mannþröngina; hafði liann komið utan af götunni, þó að enginn tæki eftir honum; hann gekk beint þar að, sem þeir stóðu lögregluþjónninn og Brian. Hann leit á þá á víxl dálitið kimi- leitur. Betta var Purfleet lávarður, faðir Vivien. »IIvað er hér um að vera, Vivien?« spurði hann, eins og hann væri að gera að gamni sínu, þvi að lávarður var ekki að eins við- urkendur stjórnmálamaður og trúnaðar- ráðgjafi konungs, he/dur var hann flestum mönnum fyndnari og gamansamari. »Hefir hér orðið slys eða eldur kviknað i húsinu?« sagði hann. Svo kom hann auga á Brian og þekti hann og þá varð hann allur annar á svip- inn. — »Nei, gott kvöld, Aden!« kallaði hann upp og rétli fram höndina. «Eruð þér að halda eina af yðar alkunnu samkomum hér? Eða er það máske eitthvert mannúð- armál, sem hér er um að ræða?« og leit brosandi til lögregluþjónsins. Þó að eldingu hefði lostið niður í þenn- an vel búna skara, þá hefði hún ekkí get- að komið flatara á þá en þetta, sem lá- varðurinn sagði. Það varð steinhljóð, og þegar lávarðurinn var búinn að taka þétt- an í hönd Brians, þá leit hann til beggja hliða með kímnishros á vörum. »Það er útlit fyrir, að hinn ungi vinur minn, hr. Aden, hafi á einhvern hátt gert þá alla rammforviða«, sagði hann, »hann hefir máske haldið tölu fyrir þeim um alt það vanrétti, sem fátæklingarnir verða að þola«. Af því að enginn svaraði, þá brosti Brian og leit rólega á lávarðínn. »Þér komuð hingað á mjög tvísýnu augna- bliki, að því er mig snertir, Purfleet lávarð- ur, eg er sem sé kærður fyrir þjófnað«. — »Ó, bull«, sagði lávarðurinn og hló »það hafa orðið misgrip — anðvitað«. »Já, en ógn skiljanleg«, sagði Brian »og það er eingöngu sjálfum mér að kenna. Eg gekk fram hjá af hendingu, þegar þessi hópur karla og kvenna stóð á gangstéltinni og beið eftir vögnunum sínum og svo kom þjófur og hrifsaði demantinn«.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.